Eldgos og jarðhræringar

Farþegaflug milli Íraks og Bretlands
Farþegaþota flaug í gær í fyrsta sinn í tvo áratugi milli Íraks og Bretlands. Eldgosið í Eyjafjallajökli olli því að fresta þurfti fluginu um níu daga.

Salan aðeins svipur hjá sjón eftir gosið
Ráðast þarf í miklar aðgerðir til að fá erlenda ferðamenn aftur til landsins. Þetta er mat framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, Ernu Hauksdóttur.

Stefnt að innanlandsflugi eftir helgarhlé
Vonast er til að sú breyting verði á dreifingu ösku frá Eyjafjallajökli að hægt verði að taka innanlandsflug upp að nýju í dag. Innanlandsflugið lá niðri um helgina.

Gosóróinn svipaður og undanfarna daga
Ekkert sást til gosmökksins úr Eyjafjallajökli í gærdag, hvorki ofan né neðan frá, að sögn sérfræðinga Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands.

Sala á flugferðum aðeins fjórðungur af því sem var fyrir gos
Það sem stefndi í að verða mesta ferðamannasumar í manna minnum er aðeins svipur hjá sjón eftir eldgosið. Salan er aðeins fjórðungur af því sem var fyrir gos. Þetta segir Matthías Imsland forstjóri Iceland Express. Hann vonar þó að hægt verði að lenda á Keflavíkurflugvelli á morgun.

Minnt á lokun á Emstruvegi
Lögreglan á Hvolsvelli vill minna á að lokað er um Emstruveg og hafa núna verið sett upp sérstök umferðarskilti til að vekja athygli á því. Mjög hart verður tekið á brotum gegn banni við umferð á þessum vegi.

Enn heyrast drunur úr Eyjafjallajökli
Miklar drunur hafa heyrst frá Eyjafjallajökli í allan dag, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli.

Flugsamgöngur enn í lamasessi
Enn liggur innanlandsflug hjá Flugfélagi Íslands niðri og er ekki búist við því að það verði neitt flogið í dag.

Iceland Express flýgur til Kaupmannahafnar og Lundúna
Iceland Express flýgur til Kaupmannahafnar og London frá Akureyri núna eftir hádegið. Vélin til Kaupmannahafnar fer klukkan þrjú og vélin til London klukkustund síðar eða klukkan fjögur. Sætaferðir fyrir farþega eru frá BSÍ .

Drunur heyrðust frá Eyjafjallajökli
Miklar drunur heyrðust frá Eyjafjallajökli í gærkvöldi, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Hraun rennur nú hægt til norðurs og bræðir ís en ekki er talin flóðahætta á svæðinu. Karen Kjartansdóttir ræddi við jarðfræðing á Veðurstofu Íslands.

Hátt í hundrað manns ætla að taka þátt í hreinsunarstarfi í dag
Nóttin var róleg í grennd við gosstöðvarnar á Eyjafjallajökli. Lögreglan á Hvolsvelli á í dag von á hátt í hundrað manns, félögum björgunarsveita, jeppaklúbbnum 4x4, félögum Fésbókarsíðu og öðrum sem vilja aðstoða við hreinsun og störf á bæjum undir Eyjafjöllum.

Engin merki um að gosi sé að ljúka
Gosmökkur stendur upp frá gígnum í Eyjafjallajökli til suðvesturs upp í 4 kílómetra hæð. Gjóskufall er lítið og ekki hefur frést af öskufalli á láglendi. Gróflega áætlað er vatnsrennsli frá Gígjökli um 100 til 120 rúmmetrar á sekúndu, samkvæmt tilkynningu sem send var frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans nú á áttunda tímanum.

Enn órói í Eyjafjallajökli
Órói er enn í Eyjafjallajökli, samkvæmt upplýsingum sérfræðinga Veðurstofu Íslands á fjölmiðlafundi í Skógarhlíð í morgun. Öskuframleiðsla er enn í gangi en gosmökkurinn er undir 3 km hæð og mælist því ekki á ratsjá.

Gosmistur yfir höfuðborgarsvæðinu
Mistur liggur yfir höfuðborgarsvæðinu nú og segir sérfræðingur frá Veðurstofunni að það sé af völdum gossins í Eyjafjallajökli. Dökkan mökk leggur nú frá eldstöðvunum og einhver öskumyndun er enn til staðar.

Öllu vanur eftir þrjú eldgos um ævina
Kristján Guðmundsson býr að Steinum undir Eyjafjöllum og er því í nágrenni eldgossins í jöklinum. Hann kippir sér ekkert upp við eldsumbrotin, enda öllu vanur þar sem þetta er þriðja gosið sem hann sér í návígi.

Hefur trú á að grasið spretti
„Ég hef fulla trú á að grasið spretti upp úr öskunni í sumar því hér er rigningasamt og hlýtt en ég óttast að erfitt verði að heyja á túnunum þar sem askan rótast upp undan vélunum.“ Þetta segir Guðni Þorvaldsson, doktor í gróðurfræðum og einn þeirra sem nú sinnir kindum sínum og klárum við erfiðar aðstæður austur undir Eyjafjöllum. Jörðin hans Raufarfell er á því svæði sem öskulagið er hvað þykkast.

Hreinsað á Önundarhorni
Þegar hefur verið hafist handa við hreinsum á bænum Önundarhorni undir Eyjafjöllum, en jörðin varð sérstaklega illa úti þegar Svaðbælisá hljóp skömmu eftir að gosið hófst í Eyjafjallajökli.

Eru á móti bótum frá ríkinu
Flugumferð Finnair, ríkisflugfélags Finna, færist í eðlilegt horf um helgina eftir að hafa farið mjög úr skorðum í vikunni vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Í tilkynningu félagsins í gær var haft eftir Mika Vehviläinen, forstjóra Finnair, að farþegar sem orðið hefðu fyrir röskunum yrðu aðstoðaðir eftir megni. Enn voru þá nokkur þúsund strand.

Eldgos seinkaði skákeinvíginu
Heimsmeistarinn Viswanathan Anand og Búlgarinn Veselin Topalov hefja einvígi um heimsmeistaratitilinn í skák í dag.

Telja að Keflavíkurflugvöllur verði lokaður fram yfir helgi
Icelandair gerir ráð fyrir lokun Keflavíkurflugvelli verði lokað fram yfir helgi og hefur sett upp flugáætlun fyrir mánudaginn sem tekur mið af áframhaldandi lokun Keflavíkurflugvallar vegna spár um dreifingu ösku frá gosinu í Eyjafjallajökli.

Flugumferð um Akureyri takmörkuð
Flugumferð um Akureyrarflugvöll verður takmörkuð í kvöld og nótt vegna nýrrar öskufallsspár. Þar verður ekki gefin svokölluð blindflugsheimild, að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur upplýsingafulltrúa Flugstoða. Von er á næstu öskufallspá á miðnætti.

Fólk virði lokanir
Lögreglan á Hvolsvelli minnir á að öll almenn umferð er bönnuð nærri eldstöðinni á Eyjafjallajökli. Bannsvæðið nær yfir jökulinn og hlíðar hans, Fimmvörðuháls og Mýrdalsjökul. Einnig er vegurinn í Þórsmörk lokaður allri umferð. Fólk er beðið um að virða þessar lokanir. Gert hefur verið kort af bannsvæði Eyjafjallajökuls sem fylgir með þessari frétt.

Allt flug um Akureyrarflugvöll
Allt flug, til og frá landinu, fer nú um Akureyrarflugvöll á meðan Keflavíkurflugvöllur er lokaður af völdum eldgossins. Mikið álag hefur verið á starfsfólkinu fyrir norðan en allt hefur gengið áfallalaust fyrir sig.

Grunnskólabörn með rykgrímur
Grunnskólabörn á Hvolsvelli þurfa að bera rykgrímur til að verja sig fyrir öskunni úr Eyjafjallajökli sem nú er tekin að fara yfir þéttari byggðir. Almannavarnir vara foreldra og skólayfirvöld við því að leyfa börnum að vera úti að leik á meðan öskufall er.

Flogið til Varsjár og Alicante á morgun
Iceland Express flýgur frá Akureyri til Varsjár í Póllandi klukkan 6 í fyrramálið. Sætaferðir verða frá BSÍ á miðnætti. Þá fer önnur vél félagsins frá Akureyri til Alicante klukkan 15:30 á morgun og verða sætaferðir frá BSÍ klukkan 9:30 í fyrramálið.

Ekki búist við öskufalli á höfuðborgarsvæðinu
Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu hefur heldur dregið úr öskufalli frá eldgosinu í Eyjafjallajökli en spáð er suðaustlægri átt í dag og vaxandi vindi. Eitthvað öskufall er nú í átt að Fljótshlíð og verður líklega áfram norðvestur af eldstöðinni næstu daga. Í dag var tilkynnt um „öskufjúk“ á Rangárvöllum og í Hveragerði, að fram kemur í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna.

Evrópureisan hófst með rútuferð til Akureyrar
Vélar Iceland Express til Kaupmannahafnar og Berlínar, sem áttu að fara í dag, verða sameinaðar í einu flugi frá Akureyri í dag. Farþegarnir eru nú á leið til Akureyrar og fóru rútur frá BSÍ áleiðist norður klukkan tvö. Vél félagsins til London Gatwick, sem fara átti snemma í fyrramálið verður frestað um 24 tíma.

Ekkert öskufall í Reykjavík
Ekki verður neitt öskufall í Reykjavík þótt búið sé að loka flugvöllum á suðvesturhorninu.

Tún á bænum Önundarhorni verða hreinsuð
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur kynnt þá ákvörðun í samráði við stjórn Bjargráðsjóðs að heimila að hafist verði handa við hreinsun túna á bænum Önundarhorni undir Eyjafjöllum.

Engar breytingar á gosinu - öskufall til vesturs
Engar breytingar urðu á eldgosinu í Eyjafjallajökli frá því sem hefur verið í rúmann sólarhring. Vindur hefur hinsvegar snúist í austurátt þannig að líitlsháttar öskufall er nú vestur af eldstöðinni.