Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Bernie Sanders segir upp starfsfólki
Þrátt fyrir litlar sem engar líkur á sigri segist Sanders ætla að halda áfram baráttunni.

Línur skýrast frekar
Clinton og Trump hafa nánast tryggt sér sigur í forkosningum flokkanna fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum. Þátttakan í forkosningum repúblikana hefur reyndar dregist verulega saman, eftir því sem valkostunum fækkar.

Mikilvæg nótt fyrir Trump og Clinton
Báðir frambjóðendurnir gera ráð fyrir því að hljóta útnefningu flokka sinna og eru farnir að skjóta föstum skotum að hvorum öðrum.

Félög Trump og Clinton deila heimilisfangi með 285.000 öðrum
Forsetaframbjóðendur beggja fylkinga eru taldir nýta sér glufu í skattalöggjöf Delaware.

Leiða saman hesta sína gegn Trump
Ted Cruz og John Kasich gera það sem þeir geta til að koma í veg fyrir að Donald Trump verði forsetaefni Repúblikana.

Sanders efast um að sígarettur eigi að vera löglegar
"Sígarettur valda krabbameini, augljóslega, og tugum annarra sjúkdóma. Maður spyr sig hvers vegna þetta sé lögleg vara í okkar landi,“ sagði Sanders í viðtali hjá NBC í gær.

Sanders: Ég tapa vegna þess að fátækir kjósa ekki
"Það er bara staðreynd,“ segir Bernie Sanders.

Trump hjólar í Hillary og heitir því að vera ekki leiðinlegur
Donald Trump er farinn að horfa til mögulegra andstæðinga í forsetakosningum Bandaríkjanna sem fara fram í nóvember.

Strax rýnt í næstu varaforseta
Forvali í forsetakosningum í Bandaríkjunum lýkur ekki fyrr en í júní, en fjölmiðlar eru nú þegar farnir að velta fyrir sér varaforsetaefnum flokkanna. Varaforsetaefnið verður kynnt á flokksþingi í júlí.

Ætlar að breyta ímynd sinni eftir forvalið
Yfirmaður framboðs Donald Trump segir að frambjóðandinn sýni ákveðinn karakter í forvalinu með tilgangi.

Allt útlit fyrir forsetaslag Clinton og Trump
Eftir úrslit gærdagsins í forvalskosningu tveggja stærstu flokka Bandaríkjana fyrir forsetakosningarnar í ár virðist vera sem Bernie Sanders og Ted Cruz séu úr leik. Ekki er þó öll von úti enn.

Gífurleg breyting frá fyrstu kappræðunum
Hillary Clinton og Bernie Sanders tókust á í gær fyrir forvalið í New York ríki. Kappræðurnar voru á köflum harkalegar.

Trump: Sakar forystu repúblíkanaflokksins um samsæri gegn sér
Washington Post spáir því að enginn frambjóðandi nái kjörmanna meirihluta og í forkosningu repúblíkana og að Ted Cruz muni þá sigra í kosningu flokksins í júlí.

Clinton og Trump jöfn
Ef Hillary Clinton og Donald Trump yrðu forsetaframbjóðendur flokka sinna myndi Clinton hljóta 38 prósent atkvæða en Trump 36 prósent. Sextán prósent myndu kjósa annan frambjóðanda og átta prósent sitja heima eða skila auðu. Þetta kemur fram í nýrri könnun fréttastofu NBC í Bandaríkjunum.

Clinton og Sanders takast á um New York
Aukin harka hefur færst í kosningabaráttu Demókrata eftir góða siglingu Bernie Sanders að undanförnu.

Cruz og Sanders voru sigurvegararnir í Wisconsin
Sigur Cruz er áfall fyrir Donald Trump sem hingað til hefur verið á sigurbraut.

Trump myndi skera á flæði fjár til Mexíkó
Þannig segist hann ætla að neyða nágranna sína til að borga fyrir byggingu veggs við landamærin.

Trump skammast yfir NATO þrátt fyrir gagnrýni Obama
Barack Obama gaf í skyn að Donald Trump vissi ekki mikið um utanríkismál eða heiminn.

Trump vill beita refsingum verði fóstureyðingar bannaðar
„Þegar maður hélt að þetta gæti ekki versnað,“ er haft eftir Hillary Clinton þegar hún var spurð álits á þessari afstöðu Trump.

Kosningastjóri Donald Trump ákærður fyrir líkamsárás
Corey Lewandowski hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðist á fréttamann á kosningafundi Trump þann 8. mars síðastliðinn.

Kosningabarátta forsetaframbjóðenda vandræðaleg fyrir Bandaríkin
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að kosningabaráttan fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum sé farin að hafa slæm áhrif á ímynd landsins.

Trump segir Bandaríkin hafa verið rænd um árabil
Heitir því að setja „Bandaríkin fyrst“ þegar kemur að utanríkismálum.

Sanders sigraði í þremur ríkjum
Hillary Clinton leiðir forval Demókrata þó áfram.

Afgerandi sigrar Sanders í Alaska og Washington
Sigur Bernie Sanders í Washington-ríki þykir sérstaklega mikilvægur fyrir áframhaldandi kosningabaráttu hans.

Fuglar og framhjáhald í bandarískum stjórnmálum
Hjá Repúblikönum þykir mörgun kosningabaráttan vera farin að færast fyrir neðan beltisstað

Furðu lostinn eftir að smáfugl flögraði upp á pontuna
Bernie Sanders vonast til að saxa á forskot Hillary Clinton en hann getur fagnað því að dýraríkið virðist styðja hann alla leið.

Segir rógsfrétt vera frá Trump
Bandaríska tímaritið The National Enquirer birti í gær umfjöllun þar sem öldungadeildarþingmaðurinn Ted Cruz, sem sækist eftir útnefningu repúblikana til forsetaframboðs, er sakaður um að hafa haldið fram hjá eiginkonu sinni Heidi með fimm öðrum konum. Tímaritið hefur áður fjallað með sambærilegum hætti um golfarann Tiger Woods og stjórnmálamanninn Johns Edwards.

Gagnrýnir stefnu Cruz og Trump
Hillary Clinton segir stefnu Cruz siðferðislega ranga og að hún ýti undir að komi verði fram við bandaríska múslima sem glæpamenn.

Trump segir múslimum að gera meira til að stöðva hryðjuverk
Hefur verið harðlega gagnrýndur af yfirvöldum í Bretlandi og bandarískum múslimum.

Clinton vinsælust meðal Íslendinga
Tæplega 53 prósent Íslendinga myndu kjósa Hillary Clinton til embættis forseta Bandaríkjanna.