Ráðgjafarvefur í uppnámi í kjölfar samningsrofs ESB Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 24. febrúar 2015 11:00 Á vefnum naestaskref.is eiga að vera gagnvirk tæki og meðal annars áhugasviðskönnun til að auðvelda fólki að átta sig á við hvað það vill starfa. Vísir/GVA
Þróun vefsins naestaskref.is, sem veitir landsmönnum upplýsingar um nám og störf, er í uppnámi þar sem ekki liggur fyrir hvernig fjármagna á smíði hans áfram. Þegar Evrópusambandið, ESB, sagði upp samningum um svokallaða IPA-styrki í febrúar í fyrra var styrkveitingum til Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem stýrði verkefninu hætt í kjölfarið. Þá hafði 30 milljónum króna verið varið til smíði vefsins. Áætlað var að verkefnið, sem hófst árið 2012, myndi kosta um 100 milljónir. „Það er mikilvægt að við getum haldið þessari vinnu áfram til þess að vefurinn hafi það gildi sem hann á að hafa. Upplýsingar á vefnum, sem var opnaður í desember síðastliðnum, um störf og nám gætu orðið úreltar eftir tvö til þrjú ár,“ segir Fjóla María Lárusdóttir, sem veitir verkefninu forystu hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Fjóla getur þess að sent hafi verið erindi vegna samningsrofsins til umboðsmanns Evrópusambandsins sem styðji málstað Fræðslumiðstöðvarinnar. „En óvíst er hvort við fáum aftur fjármagn frá Evrópusambandinu. Það er mikilvægt að einhver grípi boltann. Það er mikið í húfi fyrir markhópinn okkar. Það eru komnar um 200 starfs- og námslýsingar á vefinn en við eigum eftir að ljúka hátt í 300 til viðbótar. Við eigum eftir að bæta við gagnvirkum tækjum um meðal annars áhugasviðskönnun sem gæti verið tæki fyrir fólk til að átta sig á hvað það vill verða. Fólk þarf að vita hvaða störf eru á markaði og vita leiðina að þeim. Það er ástæða til að upplýsa um heim starfanna en ekki bara um nám sem er í boði. Við höldum glæðum í vefnum meðan við getum en það er ekki hægt að gera það af afli fyrr en búið er að skilgreina hvar verkefnið á að vera. Féð er horfið og við þurfum að sinna annarri starfsemi.“ Sérfræðisetur um ævilanga náms- og starfsráðgjöf var samstarfsaðili í þeim þætti verkefnisins sem lýtur að hönnun og þróun vefsins. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, stýrði þeirri vinnu. „Við erum hálfnuð með verk sem lengi var þörf á hér. Nágrannaþjóðir okkar eru allar með svona vefi og þar þykir þetta sjálfsagt. Megintilgangur vefsins er að jafna aðgengi fólks að hlutlausum upplýsingum um nám og störf og veita stuðning á starfsferli í formi ráðgjafar og fræðsluefnis en einnig að vera þeim hvatning sem alla jafna myndu ekki leita persónulegrar náms- og starfsráðgjafar. Nú finnst mér verkefnið vera eins og píanó sem búið er að skera í tvennt og bara vírarnir upp í loftið. Verkefninu var hætt í miðju kafi án þess að gengið væri frá neinu.“ Fjóla tekur það fram að vilji sé hjá mörgum hagsmunaaðilum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um að verkefninu verði haldið áfram. „Við þurfum að finna leiðir til að halda áfram að þróa vefinn og uppfæra upplýsingar þannig að hann sé tæki sem gagnast almenningi í því að taka ákvarðanir um náms- og starfsval.“
Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Innlent Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Erlent Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður Innlent Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent Fleiri fréttir Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Sjá meira