Pavel: Kem í besta falli inn í úrslitakeppnina Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. febrúar 2015 13:54 Pavel fylgist með lokamínútum leiksins gegn Stjörnunni. Vísir/Þórdís Inga „
Það er engin nánari greining komin á meiðslunum. Ég er enn að bíða eftir því að komast í ómskoðun," segir KR-ingurinn Pavel Ermolinskij en meiðslin sem hann varð fyrir í bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni um helgina hafa valdið heilabrotum.Sjá einnig: Stjarnan bikarmeistari 2015 Eins og áður hefur verið fjallað um rann Pavel til á lokamínútum leiksins gegn Stjörnunni um helgina. Garðbæingar urðu svo bikarmeistarar eftir æsilegan lokasprett en Pavel neyddist til að fylgjast með öllu saman af hliðarlínunni. „Mín fyrstu viðbrögð eftir að þetta gerðist að þetta væri aftan í læri enda fann ég að það var eitthvað sem gaf sig,“ sagði hann við Vísi í dag.Hér er beðið um skiptingu fyrir Pavel.Vísir/Þórdís Inga„Hins vegar er ég með fullan styrk aftan í lærinu. Ég finn það alveg. En það eru svo vissar hreyfingar sem framkalla mikinn sársauka og get ég ekki sagt að þetta sé hefðbundin meiðsli aftan í læri.“ „Fyrsta mál á dagskrá er að komast að því hvers kyns meiðslin eru nákvæmlega og vonandi kemur það í ljós í ómskoðuninni. Þangað til er lítið hægt að gera. Það er líka afar einkennilegt að finna fyrir sársauka en geta ekki staðsett hann nákvæmlega.“Sjá einnig: Hannes: Vitum ekki hvort að dúkurinn var til vandræða KR getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri á botnliði Skallagríms á morgun ef Tindastóll tapar fyrir Grindavík á sama tíma. Fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni og má heyra á Pavel að hann er ekki bjartsýnn á að geta tekið þátt í þeim. „Ég er auðvitað ekki læknir sjálfur en það kæmi mér mjög á óvart. Ég hef reynslu af svona meiðslum og mig grunar að þetta verði einhver tími sem ég verð frá. Ég vona auðvitað að ég spili með í úrslitakeppninni en eins og staðan er nú lít ég á það sem allra besta raunhæfa kostinn í stöðunni.“ „Kannski að maður sé full neikvæður gagnvart öllu saman. Það er auðvitað betra að vera jákvæður en það er of snemmt að segja til um hvernig þetta þróast.“
Körfubolti Mest lesið „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Handbolti Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Enski boltinn Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Handbolti Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg Handbolti Hinn reynslumikli Stafford eftirsóttur Sport „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ Handbolti Bologna kom til baka gegn AC Milan Fótbolti „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Handbolti Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Handbolti Fleiri fréttir Rosaleg troðsla í NBA: „Greyið sem var undir honum“ „Ég elska að vera á Íslandi“ Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð Valskonur unnu meistarana Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Sjá meira