Kane með þrennu í sigri Tottenham | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. mars 2015 00:01 Harry Kane skoraði þrennu í dag. Vísir/Getty
Sex leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í dag.Manchester City vann öruggan sigur á West Brom í fyrsta leik dagsins, Aston Villa og Swansea gerðu markalaust jafntefli á Villa Park og Arsenal vann Newcastle á útivelli. Harry Kane átti enn einn stórleikinn þegar Tottenham vann torsóttan 4-3 sigur á botnliði Leicester City á heimavelli.Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan Kane skoraði þrjú fyrstu mörk Tottenham og er því orðinn markahæstur í deildinni með 19 mörk, einu meira en Diego Costa hjá Chelsea. Kane kom Tottenham yfir á 6. mínútu og bætti öðru marki við sjö mínútum síðar. Jamie Vardy minnkaði muninn í 2-1 fyrir hálfleik með sínu fyrsta marki frá því í sigrinum fræga á Manchester United 21. september 2014. Wes Morgan, fyrirliði Leicester, jafnaði svo metin með skalla eftir fyrirgjöf Matt James á 50. mínútu. En Kane skaut upp kollinum á 64. mínútu þegar hann skoraði sigurmark Tottenham úr vítaspyrnu eftir að brotið var á Danny Rose. Tottenham komst í 4-2 þegar Jeffrey Schlupp setti boltann í eigið mark á 85. mínútu en David Nugent gaf sínum mönnum smá von þegar hann minnkaði muninn í 4-3 á lokamínútunni. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og Tottenham fagnaði sigri. Spurs er í 7. sæti með 53 stig en Leicester situr í botnsætinu með 19 stig og er komið langleiðina niður í B-deildina. Southampton hélt enn og aftur hreinu þegar liðið lagði Burnley á heimavelli með tveimur mörkum gegn engu. Shane Long kom Dýrlingunum yfir á 37. mínútu og á þeirri 58. setti Jason Schackell boltinn í eigið mark. Þetta var í 14. sinn sem Southampton heldur marki sínu hreinu í vetur en liðið er í 6. sæti með 53 stig, þremur stigum frá Meistaradeildarsæti. Burnley er í 18. sæti deildarinnar, einu stigi frá öruggu sæti. Þá vann Crystal Palace góðan endurkomusigur á Stoke á Brittania, 1-2. Mame Biram Diouf kom heimamönnum yfir á 14. mínútu en Glenn Murray jafnaði metin úr vítaspyrnu þegar fjórar mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Þetta var fjórða mark Murray í síðustu fjórum leikjum Palace. Það var síðan Wilfried Zaha sem tryggði gestunum stigin þrjú með marki á lokamínútu fyrri hálfleiks. Með sigrinum komst Palace upp fyrir Newcastle í 11. sæti deildarinnar en lærisveinar Alans Pardew hafa unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum. Stoke er í 9. sæti með 42 stig, sex stigum meira en Palace.Tottenham 1-0 Leicester Tottenham 2-0 Leicester Tottenham 2-1 Leicester Tottenham 2-2 Leicester Tottenham 3-2 Leicester Tottenham 4-2 Leicester Tottenham 4-3 Leicester
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Körfubolti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Segir að Amorim þurfi 2-3 félagaskiptaglugga til að laga hópinn Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Pep varð fyrst hræddur um Haaland en er nú vongóður Sjá meira