Þetta kom mikið á óvart Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. ágúst 2015 06:30 Hrafnhildur varð í gær fyrsta íslenska konan til að komast í úrslit á heimsmeistaramóti í 50 metra laug. fréttablaðið/valli
Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir gleymir gærdeginum eflaust ekki í bráð. Hrafnhildur er þessa dagana stödd í Kazan í Rússlandi þar sem heimsmeistaramótið í sundi fer fram. Hún hóf gærdaginn á því setja nýtt Íslandsmet í 100 metra bringusundi í undanrásunum og náði um leið A-lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Ríó í Brasilíu á næsta ári. Og hún fylgdi því svo eftir með því að tryggja sér sæti í úrslitum síðdegis. Frábær árangur hjá Hrafnhildi sem var að vonum sátt með afrakstur dagsins þegar hún ræddi við Fréttablaðið í gærkvöldi. „Þetta kom mikið á óvart og ég er mjög ánægð með þetta og hefði ekki getað beðið um neitt meira,“ sagði Hrafnhildur. „Ég hugsaði ekkert mikið út í þetta. Ég var búin að æfa eins vel og ég gat og ákvað bara að hafa gaman af þessu. Og það gekk allt upp.“Var mjög stressuð Hrafnhildur synti á 1:06,87 mínútum í undanrásunum. Gamla Íslandsmetið hennar, sem hún setti á Smáþjóðaleikunum í júní, var 1:08,07 mínútur en það féll með látum í Kazan í gær. Þessi tími Hrafnhildar var sá sjötti besti í undanrásunum. Eins og áður sagði náði Hrafnhildur einnig A-lágmarki fyrir Ólympíuleikana en hún er nú búin að tryggja sér þátttökurétt í þremur greinum í Ríó; 100 og 200 metra bringusundi og 200 metra fjórsundi. Í undanúrslitunum synti Hrafnhildur í fyrri riðlinum og kom í bakkann á 1:07,11 mínútum. Hún viðurkennir að það hafi verið erfitt að fylgjast með seinni riðlinum en aðeins átta sekúndubrotum munaði á Hrafnhildi og Taylor McKeown frá Ástralíu sem fékk níunda besta tímann. Átta bestu tímarnir fóru í úrslit. „Ég var mjög stressuð. Ég sá þær allar koma í bakkann á svipuðum tíma og ég vissi ekki hvort ég væri komin áfram eða ekki,“ sagði Hrafnhildur og bætti við: „Seinna sundið var aðeins hægara en sundið um morguninn. En það dugði til að komast inn í úrslitin.“Sögulegur árangur Þessi árangur Hrafnhildar er sögulegur en þetta er í fyrsta sinn sem íslensk sundkona kemst í úrslit á heimsmeistaramóti í 50 metra laug. Hún segir að sú staðreynd geri þetta ennþá sérstakara. „Já, það er mjög skemmtilegt. Það er gaman að vera komin í úrslit á svona risastóru móti. Ég gleymi þessu ekki á næstunni,“ sagði Hrafnhildur sem viðurkennir að hún eigi stundum í vandræðum með að muna tíma og annað sem tengist sundferlinum en hún sé með gott fólk í kringum sig sem sjái um þessa hluti. Stóra stundin er svo í dag en úrslitasundið hefst klukkan 16:07 að íslenskum tíma, en 18:07 að staðartíma. Hrafnhildur segir að undirbúningurinn fyrir úrslitasundið verði hefðbundinn. „Undirbúningurinn verður ekkert öðruvísi en hann hefur verið. Ég tek því rólega fyrri partinn, sef út, syndi eitthvað og kýli svo á þetta um kvöldið,“ sagði Hrafnhildur, en er hún með eitthvert ákveðið sæti í huga á morgun? „Það er engin leið nema upp þegar maður er í áttunda sæti. Ég fer í úrslitin með það markmið að gera eins vel og ég get og hafa gaman af þessu,“ sagði þessi öfluga sundkona sem fagnaði 24 ára afmæli sínu á sunnudaginn.Eldroðnaði í afmælissöngnum „Liðið kom mér á óvart og var búið að tala við matreiðslufólkið á hótelinu og það kom með köku handa mér. Þetta kom mér á óvart og ég eldroðnaði í miðjum matsalnum þegar allir voru að syngja. En þetta var skemmtilegt.“ Hrafnhildur segir stemninguna í íslenska hópnum vera mjög góða en Ísland á fimm fulltrúa í Kazan. „Þetta er góður hópur og við vinnum vel saman og styðjum hvert annað,“ sagði Hrafnhildur sem er ekki eini íslenski keppandinn sem hefur gert það gott á HM. Á sunnudaginn setti Anton Sveinn McKee nýtt Íslandsmet í 100 metra bringusundi og í gær bætti Eygló Ósk Gústafsdóttir eigið Íslandsmet í 100 metra bringusundi um 64 hundraðshluta úr sekúndu. Anton og Eygló náðu auk þess bæði Ólympíulágmörkum.
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Sund Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Öskjuhlíð Sport Leik lokið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Handbolti KKÍ breytir reglum varðandi erlenda leikmenn Körfubolti Annað dauðsfall í CrossFit keppni Sport Enn eitt tapið á Old Trafford Enski boltinn Arsenal kom til baka á móti meisturunum á Anfield Enski boltinn Meistaradeild Evrópu: Þar sem markmenn eru markverðir Fótbolti Barcelona með níu fingur á titlinum Fótbolti Sveindís Jane skoraði og lagði upp í kveðjuleiknum Fótbolti Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Handbolti Fleiri fréttir „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Í beinni: Víkingur - FH | Lið á sitthvorum enda töflunnar Þór/KA og Blikar áfram í bikar: Sextán ára aldursmunur á markaskorurum Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Leik lokið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Arsenal kom til baka á móti meisturunum á Anfield Stefán Ingi og Sveinn Aron báðir á skotskónum í sigurleikjum Í beinni: KA - Breiðablik | Stembið verkefni botnliðsins Daníel Tristan og Mikael með stoðsendingar KKÍ breytir reglum varðandi erlenda leikmenn Sjáðu draumamark Ísaks Andra Sveindís Jane skoraði og lagði upp í kveðjuleiknum Barcelona með níu fingur á titlinum Newcastle upp í þriðja sætið eftir sigur á Chelsea Enn eitt tapið á Old Trafford Palace fór létt með Tottenham sem hvíldi marga „Stoltið sem fylgir því að verja sinn heimavöll verður að vera til staðar“ „Snýst um félagið, liðið og hvað við áorkum saman“ „Finnst að þeir eigi að vera betri en við í reglunum“ „Við ætluðum bara ekki að tapa“ Úlfarnir búnir að snúa einvíginu sér í vil Meistaradeild Evrópu: Þar sem markmenn eru markverðir Sjáðu mörkin sem tryggðu Fram sinn fyrsta sigur, þrennu Söndru Maríu og öll hin Myndaveisla: Grindvíkingar léku loks á heimavelli Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígið heldur áfram í Garðabæ Hæstánægður með að Dýrlingarnir séu ekki lélegasta lið sögunnar Meistararnir á lífi eftir stórsigur í New York „Við verðum bara að horfast í augu við sannleikann“ Yngsti markaskorari efstu deildar: „Langaði í annað“ „Persónulega fannst mér þær byrja að fagna of snemma“ Sjá meira