Bretar hætta flugi yfir Sínaí Guðsteinn Bjarnason skrifar 6. nóvember 2015 07:00 Ættingjar í Moskvu syrgja við jarðarför eins farþeganna, sem fórst með rússnesku Airbus-vélinni í Egyptalandi um síðustu helgi. Fréttablaðið/EPA
Bresk og írsk stjórnvöld hafa bannað allt flug yfir Sínaískaga í Egyptalandi. Bandaríkin hafa sömuleiðis bannað bandarískum flugvélum að fljúga þarna yfir. Með þessu er brugðist við grun um að rússneska farþegaþotan, sem hrapaði þar um helgina, hafi verið sprengd niður. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að meiri líkur en minni séu nú til þess að sprengja hafi grandað þotunni. „Við vitum ekki fyrir víst að þetta hafi verið hryðjuverkasprengja, en það eru miklar líkur á því,“ sagði Cameron í gær. Hann sagði nauðsynlegt að bíða niðurstöðu rannsóknar á flugvélarhrapinu, sem nú er unnið að í Egyptalandi. Hann sagðist að vísu hafa mikla samúð með Egyptum, enda sé ferðaþjónustan mikilvæg í efnahagslífi Egyptalands. Hins vegar eigi hann ekki annars kost en að láta öryggi breskra ferðamanna hafa forgang. Egypsk stjórnvöld vara menn eindregið við því að hrapa að ályktunum áður en rannsókninni er lokið og segja flugbannið vera allt of harkaleg viðbrögð. Rússnesk stjórnvöld hafa einnig sagt að of snemmt sé að fullyrða nokkuð um það, hvort þarna hafi hryðjuverkamenn verið að verki. „Það er ekki hægt að útiloka neina eina kenningu, en sem stendur er engin ástæða til að segja bara eina kenningu vera áreiðanlega,“ sagði Dmitrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútín Rússlandsforseta við blaðamenn í Moskvu í gær. Flugvélin hrapaði á laugardaginn í Sínaíeyðimörkinni stuttu eftir flugtak frá ferðamannabænum Sharm el-Sheikh. Með henni fórust 224 manns, allir farþegar vélarinnar og áhöfnin. Öfgasamtökin Íslamska ríkið lýstu fljótlega yfir ábyrgð sinni á hrapinu, en egypsk stjórnvöld hafa ekki séð ástæðu til að taka mark á þeirri yfirlýsingu og segja liðsmenn samtakanna ekki færa um að skjóta niður farþegaflugvél með þessum hætti. Undanfarin misseri hafa fleiri svæði í heiminum þótt ótrygg til almenns flugs vegna átaka þar. Þar á meðal má nefna svæði í austanverðri Úkraínu og nokkur svæði í Afríku. Nú hefur Sínaískagi bæst við.
Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Fleiri fréttir Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Sjá meira