Sjaldan snjóað jafn mikið á höfuðborgarsvæðinu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. nóvember 2015 11:35 Aðeins fimmtán sinnum frá árinu 1949 hefur mælst meiri snjókoma á einum sólahring. Vísir/Pjetur
Það snjóaði gríðarlega á höfuðborgarsvæðinu í nótt en aðeins fimmtán sinnum frá árinu 1949 hefur mælst meiri snjókoma á einum sólahring. Snjódýpt í Reykjavík mældist í morgun 32 sentimetrar. Er það mesta snjódýpt í Reykjavík í nóvember síðan 1979 og sú fjórða mesta í Reykjavík frá stofnun Veðurstofu Íslands samkvæmt Sigurði Þór Guðjónssyni veðursagnfræðingi. Upp úr ellefu í gærkvöldi tók að snjóa í borginni en samkvæmt upplýsingum frá Birtu Líf Kristinsdóttir, vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands, snjóaði nær linnulaust til klukkan sex í morgun. Ekki gert var ráð fyrir svo mikilli ofankomu en síðdegis í gær var þó ljóst að nokkuð myndi snjóa um nóttina. Ástæðan fyrir að það snjóaði svo mikið og svo lengi var sú að éljabakkinn færðist mjög hægt yfir höfuðborgarsvæðið. Að sögn Birtu snjóaði mest á höfuðborgarsvæðinu sé litið til alls landsins en næst mesta snjódýptin mældist á Hólmavík, 24 sentimetrar. Snjómokstursmenn hafa staðið í ströngu við að moka götur en klukkan fjögur í nótt voru allar snjómoksturvélar ræstar út. Höfuðborgarbúum sem er illa við snjóinn geta þó huggað sig við það að ekki er útlit fyrir viðlíka snjókomu næstu dagana. „Það eru einhverjar líkur á éljum en ekkert í líkingu við það sem var í gærkvöldi og í nótt,“ segir Birta. „En það þarf líklega ekkert að segja Íslendingum það að spár geta breyst.“
Veður Tengdar fréttir Þungfært í íbúðargötum: Lögreglan varar fólk við að vera á ferðinni "Fólk er víða í basli,“ segir varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 28. nóvember 2015 10:57 Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Innlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Grasrót kennara lætur til sín taka á samfélagsmiðlum Innlent „Stjórnmálamenn í Lazy Boy bíði þess að skattgreiðendur sendi þeim peninga“ Innlent Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Áslaug Arna og Guðrún tókust á í Pallborðinu Innlent Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn haldi skólakerfinu í gíslingu Innlent Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs Innlent Fleiri fréttir Kristrún í Kænugarði: „Mjög tilfinningaþrungið ástand hérna“ Ofbýður hvað Reykjavík er ljót „Ekki sitja í störukeppni á meðan molnar undan unga fólkinu“ Myndband af ránstilrauninni: Ýtti ræningja með byssu burt og ýtti á neyðarhnappinn Þriggja ára stríð, myndband af ráni og ljót borg Husky réðst á hreindýr, sem þurfti að aflífa Guðrún nýtur meiri stuðnings hjá almenningi Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn haldi skólakerfinu í gíslingu „Stjórnmálamenn í Lazy Boy bíði þess að skattgreiðendur sendi þeim peninga“ Grasrót kennara lætur til sín taka á samfélagsmiðlum Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Kristrún í Kænugarði og átök innan sveitarfélaganna Fimm hundruð tré felld og ákvörðunar beðið Jón undir feldi eins og Diljá Hafa bæði í hyggju að leiða flokkana sína í næstu kosningum Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Áslaug Arna og Guðrún tókust á í Pallborðinu Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Ökumaður með hníf og kylfu en farþegi með heimatilbúnar sprengjur Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Svefnlyfjaneysla barna og heimildarmynd um úkraínska flóttamenn Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara 20 til 30 ný störf verða til í Árborg með tilkomu nýs öryggisfangelsis Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Sameining sveitarfélaga á Suðurnesjum og stórleikur í körfunni Sjá meira
Þungfært í íbúðargötum: Lögreglan varar fólk við að vera á ferðinni "Fólk er víða í basli,“ segir varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 28. nóvember 2015 10:57