Treyja Hólmfríðar seldist á 1,8 milljónir: Ég táraðist Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. desember 2015 18:55 Kolfinna Rán og Hólmfríður Magnúsdóttir. Mynd/Facebook
1.778.000 krónur söfnuðust í uppboði á treyju landsliðskonunnar Hólmfríðar Magnúsdóttur til styrktar Kolfinnu Ránar, þriggja ára stúlku sem greindist með krabbamein í sumar. Í haust lék Hólmfríður sinn 100. landsleik og ákvað hún eftir það að bjóða treyjuna til sölu til að styðja við Kolfinnu Rán og fjölskyldu hennar en foreldrar hennar eru fyrrum liðsfélagar Hólmfríðar úr KR, þær Olga Færseth og Pálína Guðrún Bragadóttir.Sjá einnig: Dóttir Olgu Færseth greindist með krabbamein: „Ofboðslegt kjaftshögg“ Fyrir nokkru síðan stofnaði hópur fólks sem þekkir vel til Olgu og Pálínu viðburð á Facebook þar sem framlögum var safnað til að geta lagt fram eitt stórt boð í treyjuna. Markmiðið var að safna einni milljón króna.Olga með Kolfinnu Rán, dóttur sinni.Myndir/Olga FærsethTvö þúsund manns í hópnum „Máttur Facebook er ótrúlegur,“ sagði Guðlaug Jónsdóttir, einn stofendna hópsins og fyrrum liðsfélagi Olgu og Pálínu hjá KR, í samtali við Vísi. Hún segir að haft hafi verið samband við alla þá sem tengdust þeim og að lokum hafi um tvö þúsund manns verið í hópnum. „Það lögðu allir sitt af mörkum - allt frá 250 krónum upp í 100 þúsund krónur. Fólk tók svo við sér undanfarna átta daga og talan rauk upp,“ segir hún en á lokasprettunum sameinuðust tvær aðrar safnanir við þessa. „Það komu tvö stór framlög inn á lokasprettinum. Annars vegar frá vinnufélögum Pálínu og svo í gegnum Fríðu í Noregi.“Sjá einnig: Olga hleypur fyrir krbbameinssjúka dóttur sína: „Við munum tvímælalaust komast í gegnum þetta“ Hólmfríður frétti fyrst af söfnun Guðlaugar og félaga á föstudaginn og þá fór allt á fullt. „Þetta var mjög fljótt að smita út frá sér og svo endaði þetta í þessari ótrúlegu tölu. Ég á eiginlega ekki til orð og táraðist við að sjá niðurstöðuna. Ég bjóst ekki við þessu en er svo þakklát,“ segir Hólmfríður sem var einmitt stödd uppi á sjúkrahúsi þar sem Kolfinna Rán er í meðferð.Olga og Pálína með börnin sín þrjú.Mynd/Olga FærsethGott að geta endurgoldið þeim „Hún er að ganga í gegnum erfiða tíma núna og er nú í sinni næstsíðustu lyfjagjöf. En hennar bíður svo ströng geislameðferð eftir áramót en hún er samt svo ótrúlega dugleg,“ segir Hólmfríður um Kolfinnu Rán. „Það er frábært að geta hjálpað til. Þær Olga og Pálína hafa verið til staðar fyrir mig í gegnum tíðina og það er gaman að geta endurgoldið þeim. Þetta er það besta sem ég hef gert um ævina.“ Guðlaug tekur í svipaðan streng og segir að Hólmfríður megi vera stolt. „Við erum það líka. Þetta er alveg frábært.““Lokaboð í treyjuna er 1.778.000.-. Boðið kemur frá: 160 einstaklingum og félagasamtökum; samferðafólki Olgu og Pálu,...Posted by Holmfridur Magnusdottir on Tuesday, December 1, 2015
Íslenski boltinn Mest lesið „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Selfoss jafnaði metin Handbolti „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ Körfubolti Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Körfubolti „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” Íslenski boltinn Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR ÍA og Vestri mætast inni Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Fimmtán ára og skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum í efstu deild Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Uppbótartíminn: „Draumar eru til þess að stefna hátt“ „Þetta var skrýtinn leikur“ „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ „Hugur minn er bara hjá henni“ Sjá meira