Stoðsendingakóngurinn Justin: Þetta er mikill heiður Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. febrúar 2016 21:32 Justin hefur gefið 1394 stoðsendingar í efstu deild á Íslandi. vísir/stefán
Justin Shouse bætti stoðsendingametið í efstu deild á Íslandi þegar Stjarnan tapaði, 78-65, fyrir Grindavík í kvöld. Justin gaf tvær stoðsendingar í leiknum, báðar í 1. leikhluta. Með þeirri fyrri jafnaði hann met Jóns Arnars Ingvarssonar og með þeirri seinni sló hann svo metið. Justin hefur leikið í efstu deild á Íslandi síðan 2006 og á þeim tima hefur hann gefið 1394 stoðsendingar. En hvaða þýðingu hefur þetta met fyrir þennan magnaða leikstjórnanda? "Að ég hef verið lengi hérna," sagði Justin og hló. Hann kom upphaflega hingað til lands árið 2005 og lék þá með 1. deildarliði Drangs frá Vík í Mýrdal. Þaðan fór hann til Snæfells og svo til Stjörnunnar 2008. Justin fékk íslenskan ríkisborgararétt 2011. "Þetta þýðir að ég hef spilað með mörgum frábærum leikmönnum. Ég vissi ekkert af þessu fyrr en mér var bent á þetta í dag. "Þetta er mikill heiður og segir sitt um hversu góða samherja og þjálfara ég hef haft í gegnum tíðina. Þetta gerist ekkert nema samherjarnir setji skotin niður og ég hef verið heppinn með bæði samherja og þjálfara síðan ég kom hingað. Þetta hefur verið frábær tími." Justin segir félagsskapinn í efstu sætum stoðsendingalistann vera góðan. "Það eru frábærir leikmenn á þessum lista; Jón Arnar og Jón Kr. (Gíslason) sem ég þekki vel. Og það vita allir að ef það hefði verið haldið utan talningu á stoðsendingum á fyrstu árunum hans í boltanum, þá ætti hann þetta met," sagði Justin um Jón Kr. en þess má geta að hann spilaði með sonum Jóns Kr., Degi Kár og Daða Lár, hjá Stjörnunni. Justin vildi þó að sjálfsögðu fagna þessum áfanga undir öðrum kringumstæðum en Stjörnumenn fundu sig engan veginn í sóknarleiknum í kvöld. "Að sjálfsögðu, við komum hingað til að vinna leikinn og vorum ekkert að hugsa um nein met. Ég hefði frekar viljað vera með enga eða eina stoðsendingu í sigurleik en að tapa og slá metið," sagði Justin. Stjörnumenn fá ekki langan tíma til að sleikja sárin því á sunnudaginn mætir liðið Þór frá Þorlákshöfn í mikilvægum leik. "Við verðum að læra af þessu og koma betur stemmdir til leiks á sunnudaginn. Við þurfum að vera tilbúnir, vinna betur og spila meira saman sem lið í sókninni," sagði Justin, stoðsendingakóngurinn á Íslandi, að lokum.
Dominos-deild karla Mest lesið „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Handbolti Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Enski boltinn Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Handbolti Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg Handbolti Hinn reynslumikli Stafford eftirsóttur Sport „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ Handbolti Bologna kom til baka gegn AC Milan Fótbolti „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Handbolti Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Handbolti Fleiri fréttir Rosaleg troðsla í NBA: „Greyið sem var undir honum“ „Ég elska að vera á Íslandi“ Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð Valskonur unnu meistarana Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Sjá meira