Ólafur Ragnar sækist eftir endurkjöri Birgir Olgeirsson og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa 18. apríl 2016 16:15 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Mynd/Anton
Ólafur Ragnar Grímsson mun sækjast eftir endurkjöri til embættis forseta Íslands. Þetta kom fram í máli forseta á blaðamannafundi rétt í þessu. Forsetakosningar verða haldnar í júní en kjördagur er þann 25. júní. Ólafur Ragnar hefur gegnt embættinu síðan 1996 og býður hann fram krafta sína í sjötta skiptið.Ólafur Ragnar sagði í tilkynningu, sem hann las að Bessastöðum, undanfarin ár hafa verið tími umróts og erfiðrar glímu. Mótmæli árið 2009 kölluðu á að stjórnvöld færu frá völdum og boðað yrði til kosninga. Fjöldaaðgerðir leiddu svo til þess að þjóðin hafnaði Icesave-samningum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Einnig nefndi hann fjölda mótmælin við Alþingi fyrir tveimur vikum þar sem mótmælendur kröfðust afsagnar forsætisráðherra og nýrra kosninga.Fjöldi fólks beðið hann um að endurskoða Hann sagði ástandið í þjóðfélaginu viðkvæmt og að stjórnvöld og kjörnir fulltrúar verði að vanda sig. Hann sagði fjölda fólks víða að úr þjóðfélaginu hafa höfðað til skyldu sinnar, reynslu og ábyrgðar og beðið hann um að endurskoða ákvörðun sína sem hann tilkynnti í nýársávarpi sínu um að gefa ekki kost á sér áfram. Sagðist hann hafa verið hvattur til að gefa áfram kost á sér og standa vaktina með fólkinu. Sagði hann þá sem hafa komið að máli við sig hafa vísað til þess að nú sé fyrir hönd kosningar þar sem myndun nýrrar ríkisstjórnar gæti reynst erfið og flókin og sambúð þings og þjóðar áfram þrungin spennu. Ólafur Ragnar sagði ýmsa hafa borið upp slíkt erindi við sig fyrir atburðina sem áttu sér stað fyrir tveimur vikum en sú alda hafi orðið þyngri undanfarna daga.Tæki tapi með æðruleysi Forsetinn sagðist gera sér grein fyrir því að það séu ekki allir á þeirri skoðun og tími sé kominn til að annar skipi þetta embætti. Hann sagðist engu að síður hafa komist að þeirri niðurstöðu að verða við óskum þeirra sem hafa hvatt hann áfram og gefa kost á sér til endurkjörs í komandi kosningum. Yrði niðurstaða forsetakosninganna sú að þjóðin kysir annan frambjóðanda en hann þá myndi hann taka því vel, óska honum heilla og ganga glaður til móts við frelsið. Ef þjóðin hins vegar kýs að fela honum að gegna þessar stöðu að nýju muni hann auðmjúkur þjóna áfram hagsmunum Íslands og standa vaktina með fólkinu. Þá sagði hann Dorrit Moussaieff, eiginkonu hans, hafa verið þeirrar skoðunar lengi vel að gott væri komið. Það hefði hins vegar breyst, eins og skoðun hans, í ljósi atburða undanfarinna vikna. Þau myndu þó taka úrslitunum með æðruleysi, hver svo sem þau yrðu.Upptöku af aukafréttatíma og blaðamannafundi Ólafs Ragnars á Bessastöðum má sjá hér fyrir neðan.
Forsetakosningar 2016 Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Erlent Fleiri fréttir Velta barna á veðmálasíðum fimmfaldast milli ára Veðmál barna og verslunarmiðstöð í Vogum Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Sjá meira