Afdrifaríkt tap fyrir Spánverja í kvöld | Erfið leið framundan á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júní 2016 21:27 Sergio Ramos horfir á Króata fagna eftir að hann klikkaði á vítaspyrnu. Vísir/EPA
Evrópumeistarar Spánverja þurfa að fara erfiðu leiðina að þriðja Evrópumeistaratitlinum í röð eftir að þeir misstu efsta sæti riðilsins til Króatíu í kvöld. Spánn komst í 1-0 á móti Króatíu og þurfti bara jafntefli til þess að vinna riðilinn. Króatarnir jöfnuðu fyrir hlé og nýtt sér síðan vel að Sergio Ramos lét verja frá sér vítaspyrnu í seinni hálfleiknum. Það var síðan Ivan Perisic sem skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok og tryggði Króatíu efsta sætið í D-riðlinum. Þetta var fyrsta tap Spánar í úrslitakeppni EM í tólf ár eða síðan á EM í Portúgal 2004. Króatarnir léku án stórstjarnanna Luka Modric og Mario Mandzukic en sýndu gríðarlegan styrk og karakter að koma til baka á móti svona sterku liði. Tapið þýðir hinsvegar að í stað þess að mæta einu af liðunum sem endaði í 3. sæti í sínum riðli þá bíður Spánverja leikur á móti Ítölum í sextán liða úrslitunum. Það er ekki nóg með það því takist Spánverjum að vinna Ítali á mánudaginn kemur mætir liðið væntanlega Þýskalandi í átta liða úrslitunum. Þýskaland mætir einu af liðunum úr þriðja sæti í sextán liða úrslitunum og síðan bíður leikur á móti annaðhvort Ítalíu eða Spáni. Í undanúrslitaleiknum mæta þessi lið síðan annaðhvort heimamönnum í Frakklandi eða Englandi sem eru líkleg til að mætast í átta liða úrslitunum. Frakkar mæta einu af liðunum úr þriðja sæti en Englendinga bíður leikur á móti liðinu í öðru sæti í riðli Íslands. Það gæti orðið Ísland.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti „Þetta var hræðilegt og 2025 verður sársaukafullt“ Formúla 1 Valur og KR unnu Scania Cup Körfubolti Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Fótbolti Fleiri fréttir Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Í beinni: Þór/KA - Tindastóll | Slagurinn um Norðurland Í beinni: FHL - Valur | Fyrsti leikur í Fjarðabyggðarhöllinni Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Sjá meira