Grindavík komið upp í Pepsi-deildina Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. september 2016 15:59 Grindvíkingar hafa spilað frábærlega í sumar. vísir/hanna
Grindavík er komið upp í Pepsi-deild karla eftir fjögurra ára fjarveru. Þetta var ljóst eftir 1-0 sigur liðsins á Fjarðabyggð í dag. Grindvíkingar eru sem stendur með 41 stig á toppi Inkasso-deildarinnar en KA-menn geta endurheimt toppsætið með sigri á Selfossi í leik sem var að hefjast. Andri Rúnar Bjarnason skoraði eina mark leiksins í Grindavík í dag á 61. mínútu. Alexander Veigar Þórarinsson átti stoðsendinguna en átta mínútum síðar klúðraði hann vítaspyrnu. Það kom þó ekki að sök og Grindvíkingar unnu leikinn og eru komnir upp í Pepsi-deildina þar sem þeir hafa ekki leikið frá árinu 2012. Grindvíkingar enduðu í 5. sæti í fyrra en það var snemma ljóst að þeir ætluðu sér upp í ár. Þeir gulu hafa aðeins tapað tveimur af 19 leikjum sínum í sumar og skorað langflest mörk (46) allra liða í Inkasso-deildinni. Fjarðabyggð er enn í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með 17 stig. Liðið í botnsætinu, Leiknir F., hélt lífi í vonum sínum um að halda sér í deildinni með 3-2 sigri á Þór í dag. Fáskrúðsfirðingar eru nú aðeins þremur stigum frá öruggu sæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Leiknismenn leiddu 2-0 í hálfleik þökk sé mörkum Guðmundar Arnars Hjálmarssonar og Almars Daða Jónssonar. Ármann Pétur Ævarsson minnkaði muninn í 2-1 á 68. mínútu en Ignacio Poveda Gaona jók muninn aftur í tvö mörk þegar þrjár mínútur lifðu leiks. Ingi Freyr Hilmarsson lagaði stöðuna í uppbótartíma en nær komust Þórsarar ekki. Þeir eru enn í 4. sæti deildarinnar með 29 stig.Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Körfubolti „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Körfubolti Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik Körfubolti „Að lokum var það betra liðið sem vann“ Körfubolti Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Enski boltinn Tatum með slitna hásin Körfubolti Stendur ekki steinn yfir steini hjá Orra-lausu Sociedad Fótbolti Kristinn Gunnar sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð 2025 Sport Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Íslenski boltinn Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Enski boltinn Fleiri fréttir Þór komið áfram eftir öruggan sigur á Suðurlandi Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Víðir og Reynir ekki í eina sæng Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Uppbótartíminn: „Ég hef miklar áhyggjur af þeim“ Þróttur skoraði sex og flaug áfram Valur marði Fram í framlengingu Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Hafa notað sama byrjunarliðið í öllum leikjunum Áttar sig ekki á Stjörnunni: „Bíð bara eftir því að Garpur poppi þarna upp“ Hafa unnið FH tólf sinnum í röð Hrósuðu Alexander: „Varð ekkert var við það að þarna væri fimmtán ára strákur inni á vellinum“ Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Sjáðu skrípamörkin í Víkinni og öll mörkin úr sjöttu umferðinni Þeir bestu: Fylgt úr hlaði Eiður Smári missir hvert metið á fætur öðru til ungra KR-inga Heimir Guðjónsson: Ef það var einhvern tíma lag að vinna Víking þá var það núna „Þurftum að grafa djúpt“ Uppgjörið: Víkingur - FH 3-1 | Víkingar aftur á toppinn eftir hauskúpuleik Rosenörn „Ef við mætum svona í leiki munum við fá fullt af stigum” Uppgjörið: KA - Breiðablik 0-1 | Blikar sluppu með skrekkinn í blálokin „Finnst að þeir eigi að vera betri en við í reglunum“ Sjáðu mörkin sem tryggðu Fram sinn fyrsta sigur, þrennu Söndru Maríu og öll hin Myndaveisla: Grindvíkingar léku loks á heimavelli Yngsti markaskorari efstu deildar: „Langaði í annað“ Uppgjörið: Valur - ÍA 6-1 | Valsmenn tóku pirringinn út á Skagamönnum Alexander Rafn yngsti markaskorari í sögu efstu deildar Uppgjörið: Stjarnan - Fram 2-0 | Stjörnumenn á beinu brautina Uppgjörið: KR - ÍBV 4-1 | KR-ingar enn eina taplausa liðið Fjölnir fékk ekki minnisblaðið fyrir fyrsta heimaleik Grindvíkinga Sjá meira
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð