Frábær sigur Atlético á Bayern | Sjáðu markið Tómas Þór Þóraðrson skrifar 28. september 2016 20:30 Fernando Torres í baráttunni við Philip Lahm. vísir/getty
Atlético gerði sér lítið fyrir og vann Þýskalandsmeistara Bayern München, 1-0, á heimavelli sínum í Madríd í kvöld. Eina mark leiksins skoraði Belginn Yannick Carrasco sem hefur fengið stærra hlutverk í liði Diego Simeone á þessari leiktíð og hann þakkaði traustið í kvöld. Carrasco skoraði með fallegu og föstu skoti á 35. mínútu en boltinn fór í stöngina og inn, óverjandi fyrir Manuel Neuer í marki Bayern. Bayern sótti nokkuð stíft í seinni hálfleik og fékk ágæt færi en tókst ekki að skora gegn skipulögðu og sterku liði Atlético. Atlético fékk besta færi seinni hálfleiksins þegar Felipe Luis var felldur í teignum af Arturo Vidal og vítaspyrna dæmd. Antoine Griezmann fór á punktinn en skaut í slána. Heimamenn héldu út og unnu, 1-0, en með sigrinum komst Atlético á toppinn í riðlinum. Spænska liðið er með sex stig eftir tvo leiki en Bayern er í öðru sæti með þrjú stig.Yannick Carrasco skorar sigurmark Atlético:
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti „Ég trúi þessu varla“ Sport United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar Fótbolti Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Enski boltinn Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Fótbolti „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Fótbolti Fleiri fréttir Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Galatasaray sakar Mourinho um rasisma „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Sjá meira