Eldveggur Clinton utan um lykilríki leið hennar að sigri Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 7. nóvember 2016 15:30 Clinton treystir á að svokallaður eldveggur um sex lykilríki muni halda og tryggja að kona verði í fyrsta sinn forseti Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Þrátt fyrir að Donald Trump, forsetaefni Repúblikana, hafi sótt á Hillary Clinton, forsetaefni Demókrata, í skoðanakönnunum í Bandaríkjunum á síðustu dögum eru sigurlíkur hennar umtalsvert meiri en Trump. Clinton treystir á að svokallaður eldveggur um sex lykilríki muni halda og tryggja að kona verði í fyrsta sinn forseti Bandaríkjanna. Sé horft til síðustu forsetakosninga í Bandaríkjunum eru ákveðin ríki sem flokka má sem svokölluð sveifluríki (Swing states) þar sem stuðningur kjósenda sveiflast á milli kosninga. Þessi ríki eru Michigan, Wisconsin, Virginía, Colorado, Pennsylvanía, New Hampshire, Flórída, Norður-Karólina, Ohio, Iowa og Nevada.Sigurlíkurnar samkvæmt tölfræðilíkani vefsíðunnar FiveThirtyEight.Trump hefur sigið fram úr Clinton í ríkjum á borð við Flórída, Ohio, Iowa og Norður-Karólínu þar sem alls 68 kjörmenn eru í boði. Þessi ríki eru í lykilhlutverki fyrir Trump en hann þarf að vinna sigur í þeim öllum til að eiga möguleika á að vinna Clinton. Clinton og helstu samstarfsmenn virðast þó ekki hafa haft miklar áhyggjur af þessari þróun enda er langt síðan framboð hennar kom auga á sex sveifluríki sem tryggja munu Clinton sigur takist henni að vinna þar. Í öllum þessum sex ríkjum hefur Clinton haft mikla og góða forystu lengst af.Hvaða ríki eru þetta og af hverju eru þau kölluð eldveggur?Michigan - 16 kjörmennVirginía - 13 kjörmennWisconsin - 10 kjörmennColorado - 9 kjörmennPennsylvanía - 20 kjörmennNew Hampshire - 4 kjörmenn Eldveggur er hugtak úr tölvuheiminum og á við hugbúnað sem ver tölvur fyrir utanaðkomandi árásum. Ekkert á að geta komist í gegnum vegginn og þannig er hugtakið nýtt í tengslum við kosningarnar í Bandaríkjunum. Clinton og starfsmenn hennar telja að sama hvað Trump geri geti hann ekki unnið eitt af þessum sex ríkjum á sitt band. Sé miðað við þau ríki sem yfirleitt kjósa frambjóðendur Demókrata nægir Clinton að vinna sigur í þessum sex ríkjum til þess að komast yfir þá 270 kjörmenn sem þarf til þess að verða næsti forseti Bandaríkjanna. Takist það skiptir engu máli þó að Trump vinni sigur í öðrum sveifluríkjum, honum tekst ekki að ná 270 kjörmönnum.Úrslit kosninganna sigri Clinton í hefðbundnum Demókrataríkjum auk lykilríkjanna sex en tapi öðrum sveifluríkjumTöluvert er síðan framboð Clinton hætti að eyða miklu púðri í auglýsingar í þessum ríkjum sem er öruggt merki um að framboðið telji að úrslitin þar séu ráðin. Sumir telja að þetta hafi verið misráðið hjá framboðinu enda hafi framboð Trump eytt miklu í auglýsingar í þessum ríkjum til þess að reyna að komast inn fyrir eldvegg Clinton. Ætli Trump sér sigur þarf hann að næla sér í að minnsta kosti ellefu kjörmenn innan við eldvegg Clinton. Trump hefur sótt á, helst í New Hampshire sem er þó aðeins með fjóra kjörmenn. Bilið hefur einnig minnkað í öðrum ríkjum ogt ljóst er að Clinton og framboð hennar líta þessa þróun alvarlegri augum nú en fyrir nokkrum vikum. Clinton og eiginmaður hennar Bill, ásamt Barack Obama og öðrum þungavigtarmönnum innan Demókrataflokksins stefna á að koma við í þessum ríkjum á lokasprettinum. Kosið verður aðfaranótt miðvikudags að íslenskum tíma. Spennan er mikil þó að Clinton þyki sigurstranglegri.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Trump bannað að nota Twitter á lokametrunum Nánustu samstarfsmenn Trump eru kampakátir með að hafa náð Twitter af Trump. 7. nóvember 2016 09:45 Litríku dragtirnar hennar Hillary Clinton Forsetakosningar Bandaríkjana eru á morgun og þá er mikilvægt að kíkja yfir dragtirnar sem Clinton hefur boðið upp á í framboðinu. 7. nóvember 2016 14:30 FBI dregið inn í hringiðu stjórnmála Stofnunin sem hefur um árabil haldið sér utan stjórnmála í Bandaríkjunum hefur valdið miklum usla. 7. nóvember 2016 12:00 Trump neitar að samþykkja niðurstöðu FBI "Það er ekki hægt að skoða 650 þúsund tölvupósta á átta dögum.“ 7. nóvember 2016 08:14 Um hvaða ríki liggur leið Trump í Hvíta húsið? Flórida og Norður-Karólína eru lykilríki ætli Trump sér að fá lykla að Hvíta húsinu. 7. nóvember 2016 14:00 Mest lesið Dr. Bjarni er látinn Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Erlent Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Innlent Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Innlent Fleiri fréttir Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Sjá meira
Trump bannað að nota Twitter á lokametrunum Nánustu samstarfsmenn Trump eru kampakátir með að hafa náð Twitter af Trump. 7. nóvember 2016 09:45
Litríku dragtirnar hennar Hillary Clinton Forsetakosningar Bandaríkjana eru á morgun og þá er mikilvægt að kíkja yfir dragtirnar sem Clinton hefur boðið upp á í framboðinu. 7. nóvember 2016 14:30
FBI dregið inn í hringiðu stjórnmála Stofnunin sem hefur um árabil haldið sér utan stjórnmála í Bandaríkjunum hefur valdið miklum usla. 7. nóvember 2016 12:00
Trump neitar að samþykkja niðurstöðu FBI "Það er ekki hægt að skoða 650 þúsund tölvupósta á átta dögum.“ 7. nóvember 2016 08:14
Um hvaða ríki liggur leið Trump í Hvíta húsið? Flórida og Norður-Karólína eru lykilríki ætli Trump sér að fá lykla að Hvíta húsinu. 7. nóvember 2016 14:00
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent