Umfjöllun: Frakkland - Ísland 31-25 | Frakkar hnykluðu vöðvana eftir hlé Henry Birgir Gunnarsson skrifar 21. janúar 2017 18:45 Rúnar Kárason í hörðum slag. vísir/afp
Íslenska landsliðið í handbola er úr leik á heimsmeistaramótinu í Farkklandi eftir 31-25 tap fyrir gestgjöfunum í 16 liða úrslitum í kvöld. Eftir frábæran fyrri hálfleik var valtað yfir strákana okkar gegn sterkum Frökkum í Lille. HM-ævintýrinu er því lokið þetta árið en liðið fer heim með mikla reynslu í farteskinu. Þeir féllu út með mikilli sæmd. Það höfðu margir áhyggjur af því að 28 þúsund áhorfendur myndu hræða okkar menn svo rosalega að það yrði keyrt yfir þá í upphafi leiks. Það var sko öðru nær. Á meðan okkar menn mættu með kassann úti virtist hið reynda lið Frakklands vera drullustressað. Með þjóðina á herðunum og allt það. Okkar menn gengu á lagið og skoruðu þrjú fyrstu mörk leiksins. Það var yndislegt að heyra þöngina í húsinu er strákarnir röðuðu inn mörkunum. Nikola Karabatic skoraði fyrsta mark Frakkanna eftir fimm og hálfa mínútu. Strákarnir okkar héldu áfram að spila frábæra vörn og uppstilltur sóknarleikur var sá besti til þessa á mótinu. Smám saman klóruðu heimamenn sig inn í leikinn og eftir korter náðu þeir í fyrsta skipti að jafna, 7-7. Fimm mínútum síðar voru Frakkar komnir yfir í fyrsta skipti, 9-8. Vörnin farin að smella hjá Frökkunum og maður beið eftir að þeir settu í fimmta gírinn. Það var bara ekkert í boði hjá okkar mönnum. Þeir gáfu ekki tommu eftir og munurinn aðeins eitt mark, 14-13, í hálfleik. Stórkostleg frammistaða í fyrri hálfleiknum og með smá klókindum hefði íslenska liðið getað verið yfir. Það voru fáir varðir boltar og eftir mikinn aga í sókninni fyrstu 20 mínúturnar komu óþarflega margir tapaðir boltar á síðustu tíu mínútunum. Ólafur Guðmundsson var að eiga sinn langbesta leik á mótinu, Rúnar klúðraði svolítið framan af en kom svo sterkur til baka. Við fengum ekki mark úr horni eða línu heldur í hálfleiknum en við fengum frábæra vörn, hugrekki og ákveðni sem skilaði liðinu því að það var enn inn í leiknum. Eins og strákarnir byrjuðu fyrri hálfleikinn vel þá byrjuðu þeir þann seinni jafn illa. Þeir tóku léleg skot, köstuðu boltanum frá sér hvað eftir annað og Frakkar gengu á lagið. Þegar aðeins fimm mínútur voru búnar af hálfleiknum voru heimamenn komnir með fimm marka forskot, 19-14. Geir Sveinsson varð að taka leikhlé. Menn algjörlega búnir að missa hausinn og meira að segja vörnin hætt að virka. Markvarslan engin sem fyrr. Vörn Frakka var vissulega frábær en sóknarleikurinn var of hægur og ekki sama hugrekki hjá okkur mönnum og í fyrri hálfleik. Því er nú verr og miður. Fyrra leikhlé Geirs skilaði nákvæmlega engu og hann neyddist til að taka seinna leikhléið sitt eftir aðeins ellefu mínútur í síðari hálfleik. Staðan 23-16 og verið að labba yfir drengina okkar við mikla kátínu 28 þúsund Frakka í höllinni. Eftir að hafa aðeins tapað einum bolta fyrstu 20 mínútur leiksins tapaði liðið fimm á síðustu tíu. Það tapaði svo aftur fimm boltum á fyrstu tíu mínútum síðari hálfleiks. Það er einfaldlega allt, allt of mikið. Geir prófaði að spila með sjö í sókn og við það lagaðist sóknarleikurinn aðeins. Svo kom vörn og markvarsla. Við það opnaðist smá rifa á glugganum. 24-20 og tólf mínútur eftir. Það verður ekki tekið af strákunum okkar að þeir eru með stórt hjarta. Þeir bara neituðu að gefast upp og köstuðu sér á alla bolta. Það var því miður bara ekki nóg. Andstæðingurinn of sterkur og strákarnir urðu að játa sig sigraða en þeir skildu svo sannarlega allt eftir á gólfinu.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur Handbolti „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Körfubolti Í beinni: Tindastóll - Stjarnan | Hvað gera Stólarnir eftir rassskellinn? Körfubolti Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Handbolti Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Enski boltinn Sonur Ronaldo spilaði fyrsta landsleikinn fyrir Portúgal Fótbolti Awoniyi sofandi á gjörgæslu og gengst undir aðra aðgerð í dag Enski boltinn Dæmdur fyrir að keyra yfir eiginkonu sína eftir rifrildi um eldhúsinnréttingu Sport Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Enski boltinn Fleiri fréttir Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Alfreð kom Þjóðverjum á EM Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Sjá meira
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn