Handbolti

Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Viktor Gísli leikur með Barcelona frá og með næsta tímabili. 
Viktor Gísli leikur með Barcelona frá og með næsta tímabili.  vísir/vilhelm

Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson hefur samið við eitt besta handboltalið heims. Hann gerir tveggja ára samning við Barcelona.

Viktor yfirgefur Wisla Plock í Póllandi eftir tímabilið og gengur í raðir Evrópu- og Spánarmeistaranna. Viktor hefur verið orðaður við Barcelona í töluverðan tíma og nú hefur eitt versta geymda leyndarmál handboltans verið staðfest.

„Ég viðurkenndi aldrei neitt þegar fólk var að spyrja mig en ég gat auðvitað ekkert stoppað þetta þegar fólk byrjaði að gruna hluti. Barcelona bíður alltaf mjög lengi með að tilkynna nýja leikmenn en þetta var orðið nokkuð augljóst undir lokin. Þetta kannski því ekki alveg jafn súrealískt fyrir mig núna og þegar þetta gerðist fyrst,“ segir Viktor sem var í raun búinn að semja við liðið fyrir nokkrum mánuðum.

Spænski landsliðsmarkvörðurinn Gonzalo Pérez de Vargas fer til Kiel eftir tímabilið og Viktor mun fylla hans skarð hjá Barcelona og mynda markvarðateymi liðsins með Dananum Emil Nielsen.

Besti markvörður heims

„Þetta er líklega besti markvörður heims í dag og er búinn að vera frábær með Barcelona og danska landsliðinu. Ég hlakka til að fylgjast með honum og læra vonandi hluti frá honum og setja inn í minn leik. Ég þekki hann aðeins og hef verið í samskiptum við hann.“

Viktor verður fjórði Íslendingurinn til að spila fyrir Barcelona á eftir Viggó Sigurðssyni, Guðjóni Val Sigurðssyni og Aroni Pálmarssyni.

„Þegar þetta kom fyrst upp á borðið heyrði ég í Aroni og Guðjóni Val líka og þeir mældu hiklaust með þessu og sögðu að þetta væri frábær staður til að búa á og frábær klúbbur líka.“

Barcelona hefur unnið spænsku deildina öll tímabil síðan 2010-11 og vann Meistaradeild Evrópu í fyrra, í tólfta sinn. Barcelona er komið í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar á þessu tímabili og mætir Íslendingaliði Magdeburg í undanúrslitunum.

„Það er skilyrði að vinna hvern einasta leik og það hefur alltaf verið draumurinn að spila fyrir þennan klúbb. Maður ætlaði nú fyrst að gera það með fótboltaliðinu en handboltinn verður bara að duga,“ segir Viktor léttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×