Rashford skaut United áfram í undanúrslit | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. apríl 2017 21:30
Manchester United er komið áfram í undanúrslit Evrópudeildarinnar eftir 2-1 sigur á Anderlecht á Old Trafford í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum í kvöld. United vann einvígið, 3-2 samanlagt. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að framlengja. Þar reyndist Marcus Rashford hetja United en hann skoraði sigurmarkið á 107. mínútu. United náði forystunni á 10. mínútu þegar Henrikh Mkhitaryan skoraði með góðu skoti. Sofiane Fanni jafnaði metin í 1-1 á 36. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. United sótti linnulítið í seinni hálfleiknum og framlengingunni en gekk erfiðlega að koma boltanum yfir línuna. Rashford tókst það þó á endanum og 2-1 sigur United staðreynd. Hér að neðan má lesa beina lýsingu frá gangi mála.21:32: Leik lokið! United er komið áfram eftir tvo hörkuleiki. Rashford gerði gæfumuninn í kvöld.21:30: Martial skorar en markið réttilega dæmt af vegna rangstöðu.21:27: Acheampong í úrvalsfæri en nær engum krafti í skallann og Romero ver.21:21: Pogba í dauðafæri en skotið er slakt og Rubén ver.21:18: MARK!!! Rashford skorar og kemur United yfir! Blind með langan bolta á Fellaini sem skallar boltann fyrir Rashford sem kemur honum í markið.21:16: Seinni hálfleikur framlengingarinnar er hafinn.21:10: Pogba skorar en búið að dæma brot á Fellaini.21:01: Rashford með rabona-fyrirgjöf og Pogba klippir svo boltann á lofti en í varnarmann.20:59: Anthony Martial kemur inn á fyrir Zlatan. Tækifæri fyrir Frakkann að sýna sig og sanna.20:57: Það þarf að framlengja þrjá af fjórum leikjum kvöldsins. Eina liðið sem er komið áfram er Celta sem vann Genk 4-3 samanlagt.20:54: Venjulegum leiktíma lokið og við erum á leið í framlengingu. Zlatan liggur eftir á vellinum og virðist þjáður.20:51: Flott sókn hjá United endar með skoti frá Rashford í hliðarnetið.20:44: Michael Carrick finnur Zlatan sem skýtur framhjá úr dauðafæri. Verður United-mönnum refsað fyrir að nýta ekki færin?20:40: Pogba skýtur yfir af örstuttu færi. Þetta ætlar ekki að ganga hjá heimamönnum.20:33: Zlatan Ibrahimovic í dauðafæri en Rubén ver.20:31: Rashford sleppur aleinn í gegn, reynir að leika á Rubén en missir boltann of langt frá sér og færið rennur út í sandinn.20:27: Rashford með skot framhjá úr ágætis stöðu. Á að gera betur þarna.20:12: Shaw með sprett upp vinstri kantinn og á stórhættulega fyrirgjöf sem Lingard rétt missir af.20:07: Seinni hálfleikurinn á Old Trafford er hafinn.19:52: Það er búið að flauta til hálfleiks á Old Trafford. Staðan 1-1.19:44: Pogba með góða sendingu á Shaw sem er í ágætis færi en skotið er laust og beint á Rubén.19:36: MARK!!! Sofiane Fanni skorar og jafnar metin í 1-1! Tekur frákastið eftir skot Yoeri Tielemans sem fór í slána. Belgarnir hafa verið líklegir og nú er markið komið.19:27: Marcos Rojo er meiddur og borinn af velli. Daley Blind kemur í hans stað.19:26: Frank Opoku Acheampong í dauðafæri en Sergio Romero ver í horn!19:17: Paul Pogba með skalla sem Rubén ver í slánna og yfir. Jesse Lingard á svo skot sem Spánverjinn ver. Hann er í yfirvinnu í markinu.19:14: MARK!!! Marcus Rashford kemur boltanum á Henrikh Mkhitaryan sem skorar með góðu skoti! Armeninn skoraði einnig í fyrri leiknum.19:05: Leikurinn er hafinn!18:48: Ander Herrera, sem var svo frábær í sigri United á Chelsea á sunnudaginn, er á bekknum í kvöld. Mourinho segir að hann geti einfaldlega ekki spilað alla leiki.18:27: José Mourinho, knattspyrnustjóri United, gerir eina breytingu frá fyrri leiknum. Luke Shaw kemur inn fyrir Mateo Darmian.18:25: Góða kvöldið og velkomin í beina lýsingu frá seinni leik Manchester United og Anderlecht í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Liðin skildu jöfn í fyrri leiknum, 1-1, og United dugir því markalaust jafntefli til að komast áfram.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Leik lokið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Fótbolti Varð pabbi sjö mánuðum eftir að hann lést Sport Landsliðskonum borist skilaboð og sagðar styðja Ísrael Handbolti Glórulaus tækling Gylfa Þórs Íslenski boltinn „Við völdum okkur ekki andstæðinga“ Handbolti Gæti HSÍ orðið gjaldþrota: „Okkar að sjá til þess að svo verði ekki“ Handbolti Stúkan segir ekki rautt og framkvæmdastjórinn æfur: „Má leggja hana niður“ Íslenski boltinn Sjáðu markið umdeilda í Garðabæ: „Ekki var hann hræddur við Örvar?“ Íslenski boltinn „Vælum og öskrum þó við meiðum okkur ekki neitt“ Íslenski boltinn Borgaði ósáttum aðdáanda eftir rothögg Stefáns Inga Fótbolti Fleiri fréttir „Ég hefði tekið þrjú stig í staðinn“ Sjáðu þrennu Karólínu Leu Leik lokið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Í beinni: Arsenal - Real Madrid | Risaleikur í London Í beinni: Bayern - Inter | Tekst Ítölunum að stöðva Kane? Aron Elís með slitið krossband Ein breyting á byrjunarliðinu Aron í tveggja leikja bann Stúkan segir ekki rautt og framkvæmdastjórinn æfur: „Má leggja hana niður“ Stórir draumar í Laugardalnum: „Allir vilja að Þróttur fari sem hæst“ Sjáðu hitt rauða spjaldið sem Gylfi hefur fengið á ferlinum „Vælum og öskrum þó við meiðum okkur ekki neitt“ Settu met sem enginn vill eiga Borgaði ósáttum aðdáanda eftir rothögg Stefáns Inga Of ungur til að auglýsa veðmál Hittu misáhugasama Íslendinga: „Ég á selló, ég fylgist ekki með fótbolta“ Sjáðu markið umdeilda í Garðabæ: „Ekki var hann hræddur við Örvar?“ „Er allavega engin þreyta í mér“ „Get ekki setið við hliðina á þér lengur“ „Bæði svekktur en líka stoltur“ „Maður þarf að skora til að vinna leiki“ „Verðum bara að vona það besta en undirbúa okkur fyrir það versta“ „Ég tek þetta bara á mig“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 2-1 | Stjarnan slapp með sigur úr grannaslagnum Newcastle heldur áfram að klífa töfluna Glórulaus tækling Gylfa Þórs Nálægt því að vera skúrkurinn en stóð uppi sem hetjan Uppgjörið: Víkingur - ÍBV 2-0 | Gylfi Þór sá rautt í sannfærandi sigri Sóknarlína Chelsea veldur áhyggjum Van Dijk tjáir sig um samningaviðræðurnar Sjá meira
Leik lokið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Fótbolti
Leik lokið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Fótbolti