Rafrettan á dagskrá Alþingis í dag Heimir Már Pétursson skrifar 25. apríl 2017 12:30 Frumvarp heilbrigðisráðherra um rafrettur verður rætt á þingi í dag. vísir/getty
Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata segir að þeim sem noti eimsígarettur til að reyna að hætta að reykja sé gert erfiðara fyrir með frumvarpi sem heilbrigðisráðherra mælir fyrir á Alþingi í dag. Með frumvarpinu verður nikótínvökvi færður undan lyfjalögum og settur undir tóbakasvarnarlög. Það verður í nógu að snúast hjá alþingismönnum á þingfundi sem hefst klukkan hálf tvö í dag. En fundurinn byrjar með sextán kosningum fulltrúa í ýmsar stjórnir og ráð. Þar má nefna bankaráð Seðlabankans, landskjörstjórn og yfirkjörstjórnir kjördæmanna sex, Landsdóm, stjórn Ríkisútvarpsins og Þingvallanefnd. Þegar öllum þessum kosningum verður lokið eru fjölmörg mál á dagskrá, meðal annars fyrsta umræða um frumvarp heilbrigðisráðherra um tóbaksvarnir, eða rafsígarettur. Það frumvarp er umdeilt en með því er ætlunin að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á rafsígarettum og áfyllingarílátum. Einnig er í frumvarpinu mælt fyrir um eftirlit með innflutningi, dreifingu og sölu á rafsígarettum og áfyllingarílátum til þess að tryggja viðhlítandi öryggi þessara vara á markaði, eins og segir í frumvarpinu. Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata er ein þeirra þingmanna sem ekki er sátt við hvaða leið er farin í frumvarpinu. „Mér finnst bagalegt að þetta sé sett undir tóbaksvarnarlög út af því að þetta er að sjálfsögðu ekki vara sem inniheldur tóbak heldur nikótín,“ segir Birgitta. Samkvæmt gildandi lögum er vökvi sem inniheldur nikótín flokkaður sem lyf og fellur því undir ákvæði lyfjalaga. Skilyrði fyrir sölu lyfja samkvæmt lyfjalögum frá árinu 1994 er að viðkomandi lyf hafi fengið markaðsleyfi hér á landi og gefur Lyfjastofnun út slík leyfi. Ekkert slíkt leyfi hefur verið gefið út fyrir nikótínvökva hér á landi og er því óheimilt að selja áfyllingarílát sem innihalda nikótínvökva samkvæmt gildandi löggjöf og er verið að bregðast við því með frumvarpinu. Birgitta segir skrýtið að ekki sé brugðist með sama hætti við nikotíntyggjói og öðrum nikótínvörum. „En ég veit til þess og þekki mjög marga sem verið hafa stórreykingamenn og hafa náð að hætta alveg og hætta á þessu,“ segir Birgitta. Það sé því bagalegt hvernig tekið sé á þessari nýbreyttni í frumvarpinu.Þannig að þú vilt meina að það sé verið að gera fólki sem vill hætta að reykja með þessari leið erfiðara fyrir? „Já algerlega. Þetta er ein mesta byltingin í skaðaminnkun varðandi tóbaksreykingar sem hefur komið fram. Þess vegna finnst mér nauðsynlegt að það sé tekið á þessu máli með opnari huga. Það hefur verið rosalegur hræðsluáróður gagnvart þessu sem hefur verið hrakinn með staðreyndum. Ég ætla að nota tækifærið í dag til að benda á það í fyrstu umræðu um þetta mál,“ segir Birgitta Jónsdóttir.
Tengdar fréttir Píratar leggja fram sitt eigið veipfrumvarp Fjórir þingmenn Pírata lögðu í gær fram frumvarp til laga um rafrettur og tengdar vörur. 31. mars 2017 06:00 FA gagnrýnir rafrettufrumvarp "Þetta plagg heilbrigðisráðherra virðist illa undirbúið og lítið hugsað. Það er ástæða til að vinna þetta mál mun betur og draga úr þeim inngripum í athafna- og atvinnufrelsi sem felast í frumvarpsdrögunum,“ 2. mars 2017 07:00 Lögregla segir kannabisvökva í rafrettur vera kominn í sölu um allt land „Það má segja það að við höfum orðið vör við það.“ 25. apríl 2017 10:12 Mest lesið Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Misstu aðra herþotu í sjóinn Erlent Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Erlent Fleiri fréttir Ekkert sem bendi til málþófs um veiðigjöld Þeir sem gangi inn sem páfaefni gangi út sem kardinálar Skorað á Ísraela og átök hafin milli Indlands og Pakistans Ekki hægt að renna sér í Lágafellslaug næstu vikuna Rekstur Reykjanesbæjar fram úr vonum vegna hærri útsvarstekna Veiðigjöldin enn rædd en þó ekki á dagskrá í dag Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Stútur á 106 þar sem hámarkshraði var sextíu Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Moskítóflugur muni koma til Íslands Áberandi ráðamenn „keppist við að hnykla vöðva sína, beita hótunum og þvingunum“ Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Álfurinn í landsliðsbúningi í ár Líflátshótanir í kjölfar veðmála og óttaslegin eftir útburð Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys við Smáralind Ekki talin yfirvofandi hætta en maðurinn geti orðið hættulegur Núverandi fyrirkomulag „virðist hylma yfir ábyrgð og gagnsæi“ Ítarleg skýrsla á borði ráðherra Inga skipar konu í stað karls í stjórn HMS Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Líkur á nýju gosi munu aukast þegar líða fer á haustið „Því miður er þetta þrautalending“ Reikningum Flokks fólksins lokað um stund „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Konan í Bríetartúni komin á götuna Hækkandi matarverð hringir bjöllum hjá ráðherra Sjá meira
Píratar leggja fram sitt eigið veipfrumvarp Fjórir þingmenn Pírata lögðu í gær fram frumvarp til laga um rafrettur og tengdar vörur. 31. mars 2017 06:00
FA gagnrýnir rafrettufrumvarp "Þetta plagg heilbrigðisráðherra virðist illa undirbúið og lítið hugsað. Það er ástæða til að vinna þetta mál mun betur og draga úr þeim inngripum í athafna- og atvinnufrelsi sem felast í frumvarpsdrögunum,“ 2. mars 2017 07:00
Lögregla segir kannabisvökva í rafrettur vera kominn í sölu um allt land „Það má segja það að við höfum orðið vör við það.“ 25. apríl 2017 10:12