Fyrirliði íslenska landsliðsins er á heimleið | Á sitt óskalið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2017 08:30 Karen Knútsdóttir. vísir/ernir
Karen Knútsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handbolta og atvinnumaður í sex ár, ætlar að spila heima á Íslandi á næsta tímabili. Karen staðfesti þetta í viðtali við Morgunblaðið sem birtist í dag. Karen hefur ekki enn samið við lið hér heima en allt bendir til þess að hún fari aftur í Fram. „Fram er mitt óskalið,“ sagði Karen í samtali við Ívar Benediktsson hjá Morgunblaðinu. Karen Knútsdóttir hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu í langan tíma en hún hefur skorað 310 mörk í 86 landsleikjum. Hún er fjórða markahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi. Karen náði aldrei að verða Íslandsmeistari áður en hún fór í atvinnumennsku. Hún fékk silfur með Framliðinu fjórum sinnum eða árið 2008, 2009, 2010 og 2011. Karen spilaði fyrst tvö ár í Þýskalandi, þá eitt ár í Danmörku og hefur undanfarin þrjú tímabil spilað með franska liðinu Nice. Hún hefur þó ekkert getað spilað frá því í febrúar vegna nárameiðsla. Framliðið er byrjað að endurheimta sínar stelpur úr atvinnumennsku því áður hefur landsliðshornamaðurinn Þórey Rósa Stefánsdóttir ákveðið að snúa heim í Safamýri en hún hefur spilað erlendis frá því að hún yfirgaf Fram árið 2009. Hún á því eftir að verða Íslandsmeistari með Fram alveg eins og Karen. Fram er búið að taka eitt skref í átt að Íslandsmeistaratitlinum í ár með því að komast í 1-0 í úrslitaeinvíginu á móti Stjörnunni en liðin mætast aftur í Safamýri í kvöld. Fái liðið síðan Karen og Þórey báðar fyrir næsta tímabil má búast við miklu af Framliðinu á næsta tímabili.
Íslenski handboltinn Handbolti Olís-deild kvenna Mest lesið Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Enski boltinn Eygló ætlar að vinna Ólympíugull: „Ég hlýði bara Vésteini“ Sport Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Fótbolti Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Körfubolti Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Enski boltinn Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum Íslenski boltinn „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Fótbolti Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Enski boltinn „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Anton og Jónas dæma stórleikinn í Ungverjalandi Selfoss jafnaði metin Fram einum sigri frá úrslitum Höfðu betur eftir framlengdan leik Aldís Ásta og stöllur einum sigri frá úrslitunum Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Sjá meira