Sviss er áfram með fullt hús stiga á toppi A-riðils undankeppni HM 2018 eftir 0-2 sigur á Færeyjum í Þórshöfn í kvöld.
Það voru tveir leikmenn sem spila í ensku úrvalsdeildinni sem gerðu mörk Svisslendinga í leiknum í kvöld.
Granit Xhaka, leikmaður Arsenal, skoraði það fyrra á 36. mínútu og Xherdan Shaqiri, leikmaður Stoke City, það síðara á 59. mínútu.
Sviss er á toppi A-riðils með 18 stig, þremur stigum á undan Portúgal. Færeyjar eru í 4. sæti með fimm stig.
Gunnar Nielsen, markvörður FH, lék allan leikinn fyrir Færeyjar sem og Jónas Tór Næs, leikmaður ÍBV. Annar leikmaður ÍBV, Kaj Leó í Bartalstovu, sat allan tímann á varamannabekknum.
Xhaka og Shaqiri fundu leiðina framhjá Gunnari
