Neymar fær 5,5 milljarða í árslaun hjá PSG Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2017 08:30 Neymar þarf ekki að svekkja sig mikið yfir laununum hjá PSG. Vísir
Það verður svo sannarlega kostnaðarsamt fyrir franska félagið Paris Saint-Germain að fá til sín Brasilíumanninn Neymar frá Barcelona. Paris Saint-Germain þurfti að borga Barcelona 222 milljónir evra fyrir leikmanninn sem er meira en tvöföldun á metinu yfir dýrasta knattspyrnumann heims. 222 milljónir evra eru 27,5 milljarðar íslenskra króna. Þar með er þetta ekki upptalið því þá á Parísar-liðið eftir að borga leikmanninum sjálfum ofurlaun og ofurbónusa. Sky Sports hefur heimildir fyrir því að Neymar muni kosti franska félagið um 500 milljón evrur eða rétt tæplega 62 milljarða íslenskra króna. Neymar ákvað það í byrjun júlí að yfirgefa Barcelona samkvæmt frétt Sky Sport en hann ræddi þá við fulltrúa franska liðsins á meðan hann var í fríi rétt hjá Rio de Janeiro. Á fundinum voru Neymar, faðir hans og umboðsmaður hans Pini Zahavi. Neymar mun gera fimm ára samning við Paris Saint-Germain og þar verður hann með 30 milljónir evra í árslaun eftir skatta eða 3,7 milljarða íslenskra króna. Þetta þýðir að Brasilíumaðurinn fær tíu milljónir á dag alla 365 daga ársins. Hann er því með miklu meira en milljón á tímann ef við miðum við átta daga vinnudag og fimm daga vinnuviku. Vinnuskylda hans er þó minna en það en pressan á honum verður gríðarleg. Peningarnir er vissulega stór ástæða þess að Neymar er að fara til PSG en það spilar líka stóra rullu að hann vill verða stærsta stjarnan í sínu liði og sleppa undan skugga Lionel Messi. Neymar vill vinna Gullboltann og verða besti knattspyrnumaður heims en það er erfitt að skara framúr í sínu liði þegar þú spilar við hlið Messi sem er þegar orðið besti leikmaðurinn í sögu Barcelona. Neymar kemur í síðasta lagi á föstudaginn til Parísar þar sem hann mun ganga frá samningnum en franska deildin hefst um helgina.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Enski boltinn Eygló ætlar að vinna Ólympíugull: „Ég hlýði bara Vésteini“ Sport Í beinni: Afturelding - Valur | Mosfellingar ætla að jafna Handbolti Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Fótbolti Í beinni: Man. City - Aston Villa | Mikilvægur leikur í Meistaradeildarbaráttunni Enski boltinn Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Körfubolti Leik lokið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi Íslenski boltinn Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Enski boltinn Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum Íslenski boltinn Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-6 | Áslaug Dóra með þrennu í stórsigri Víkinga Í beinni: Barcelona - Mallorca | Geta náð sjö stiga forskoti Í beinni: Man. City - Aston Villa | Mikilvægur leikur í Meistaradeildarbaráttunni Stutt stopp í Vesturbæ: Valor aftur til Eyja Leik lokið: Fram - FH 0-2 | Nýliðarnir enn án sigurs Leik lokið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi Leikmenn ÍBV hjálpuðu til við að færa sætin á milli valla í Eyjum United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Maður leiksins fékk lifandi lamb í verðlaun Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham FCK tímabundið á toppinn Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum Sjá meira