Pétur Pétursson ráðinn þjálfari Vals Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. október 2017 17:00 Pétur Pétursson með barnabarni sínu. vísir/ernir
Pétur Pétursson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta, hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Vals í Pepsi-deildinni í fótbolta en hann var kynntur til leiks á blaðamannafundi félagsins í dag. Pétur skrifaði undir þriggja ára samning við Val. Pétur tekur við starfinu af Úlfi Blandon sem entist í eitt ár á Hlíðarenda en undir hans stjórn endaði Valsliðið í þriðja sæti með 37 stig. Það var aldrei í alvöru titilbaráttu eftir slaka byrjun. Á síðustu leiktíð var Pétur aðstoðarþjálfari Jóhannesar Karls Guðjónssonar hjá HK í Inkasso-deildinni en þar áður var hann aðalþjálfari Fram í sömu deild sumarið 2015. Hann hefur aldrei áður þjálfað kvennalið. Pétur, sem er einn af bestu leikmönnum Íslands frá upphafi, hóf þjálfaraferil sinn hjá Tindastóli árið 1993 en hann hefur einnig þjálfað Keflavík, Víking, KR og Fram. Hann gerði KR að Íslandsmeistara árið 2000 og var svo aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar hjá íslenska landsliðinu frá 2009-2010. Mikið hefur verið lagt í Valsliðið undanfarin tímabil til að vinna aftur Íslandsmeistaratitilinn sem liðið hefur ekki hampað síðan 2010 þegar að það varð Íslandsmeistari fimmta árið í röð. Á blaðamannafundinum í dag var einnig greint frá því að þriggja manna teymi, skipað Rakel Logadóttur, Margréti Magnúsdóttur og Þórði Jenssyni, muni þjálfa 2. og 3. flokk kvenna hjá Val.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Enski boltinn „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Fótbolti „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Handbolti Í beinni: Arsenal - West Ham | Standast skyttur Arteta prófið eða falla þær? Enski boltinn Fleiri fréttir Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Sjá meira