Hannes orðinn leikmaður Vals Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. apríl 2019 15:45 Hannes tekur í spaðann á Ólafi Jóhannessyni, þjálfara Vals. vísir/vilhelm
Hannes Þór Halldórsson er genginn í raðir Vals. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Íslandsmeistarana.Hannes fékk sig lausan undan samningi hjá Qarabag í Aserbaídsjan í síðustu viku og er nú kominn aftur til Íslands. Auk þess að leika með Val mun einnig koma að þjálfun markvarða yngri flokka félagsins. Hannes lék í þrjú tímabil með KR (2011-13) áður en hann fór út í atvinnumennsku. Hann varð Íslandsmeistari með KR 2011 og 2013 og bikarmeistari 2011 og 2012. Hannes var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins 2011. Á árunum í atvinnumennsku lék Hannes með Brann, Sandnes Ulf og Bodö/Glimt í Noregi, NEC í Hollandi og Randers í Danmörku.Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður í Val Hannes Þór Halldórsson landsliðmarkvörður Íslands gengur til liðs við Íslandsmeistara Vals. #valurfotbolti#fotboltinet#ksi#pepsideildin#pepsimaxdeildin#origo#ruvithrottir#stod2sporthttps://t.co/AVH2pVdKdgpic.twitter.com/vBUn3kWnh8 — ValurFotbolti (@Valurfotbolti) April 9, 2019 Valur er fjórða Reykjavíkurfélagið sem Hannes spilar fyrir og það sjötta hér á landi. Hann hóf ferilinn hjá Leikni R., lék svo eitt tímabil með Aftureldingu og eitt með Stjörnunni áður en hann gekk í raðir Fram. Þar var hann í fjögur tímabil en fór svo yfir í KR. Hannes hefur leikið 147 leiki í efstu deild á Íslandi. Hannes, sem verður 35 ára síðar í mánuðinum, hefur verið aðalmarkvörður íslenska landsliðsins undanfarin ár. Hann hefur leikið 59 landsleiki og lék alla leiki Íslands á EM 2016 og HM 2018. Anton Ari Einarsson hefur varið mark Vals undanfarin þrjú tímabil. Óvíst er hvar framtíð hans liggur eftir komu Hannesar. Valur hefur orðið Íslandsmeistari síðustu tvö ár undir stjórn Ólafs Jóhannessonar sem gaf Hannesi sitt fyrsta tækifæri í íslenska landsliðinu. Valur mætir Víkingi R. í 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar 26. apríl.Hannes með Íslandsmeistarabikarinn, sem Valur hefur unnið tvö ár í röð, í bakgrunni.vísir/vilhelm
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Hannes laus allra mála hjá Qarabag Landsliðsmarkvörðurinn er líklega á leið heim í Pepsi-deildina. 5. apríl 2019 11:29 Mest lesið „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Selfoss jafnaði metin Handbolti „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ Körfubolti Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Körfubolti „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” Íslenski boltinn Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR ÍA og Vestri mætast inni Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Fimmtán ára og skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum í efstu deild Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Uppbótartíminn: „Draumar eru til þess að stefna hátt“ „Þetta var skrýtinn leikur“ „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ „Hugur minn er bara hjá henni“ Sjá meira
Hannes laus allra mála hjá Qarabag Landsliðsmarkvörðurinn er líklega á leið heim í Pepsi-deildina. 5. apríl 2019 11:29