Bræðurnir sameinaðir hjá KR og Brynjar snýr líka aftur á heimaslóðirnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2019 15:00 Brynjar og Matthías Orri taka í spaðann á Böðvari E. Guðjónssyni, formanni körfuknattleiksdeildar KR. Jakob er á skjánum í bakgrunni. vísir/vilhelm
Íslandsmeistarar KR í körfubolta fengu mikinn liðstyrk í dag þegar þrír gamlir KR-ingar gengu aftur til liðs við félagið. Leikmennirnir eru Brynjar Þór Björnsson, áttfaldur Íslandsmeistari með KR, og bræðurnir Jakob Örn Sigurðarson og Matthías Orri Sigurðarson sem hafa ekki verið í KR í næstum því áratug. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi KR-inga í dag sem var haldinn í höfuðstöðvum Alvogen á Íslandi. Brynjar Þór kemur aftur til KR eftir eitt tímabil hjá Tindastóli en það er mun lengra síðan að hinir tveir léku með KR. Matthías fór kornungur frá félaginu árið 2011 og hefur spilað með ÍR undanfarin ár. Jakob kemur til Íslands 6. júní næstkomandi en hann gerir eins árs samning við KR. Matthías og Brynjar gera aftur á móti tveggja ára samning. Jakob varð Íslandsmeistari með KR vorið 2009 en hefur síðan spilað sem atvinnumaður í Svíþjóð með liðum Sundsvall (2009-2015) og Borås (2015-19). Hann er nú að snúa aftur heim til Íslands. Brynjar Þór Björnsson á mörg félagsmet hjá KR en enginn leikmaður hefur orðið oftar Íslandsmeistari með félaginu (8), leikið fleiri leiki fyrir KR í efstu deild (256) eða skorað fleiri stig fyrir KR í úrvalsdeildinni (3353). Brynjar var fyrirliði fimm Íslandsmeistaraliða KR frá 2014 til 2018. Matthías Orri Sigurðarson var aðeins sautján ára gamall þegar hann yfirgaf KR eftir að hafa verið í litlu hlutverki hjá Íslandsmeistaraliði KR vorið 2011. Hann var enn í yngri flokkum þegar eldri bróðir hans Jakob spilaði síðasta með meistaraflokki KR. Matthías fór út í skóla 2011 en samdi síðan við ÍR þegar hann kom aftur heim. Matthías hefur síðan blómstrað hjá ÍR undanfarin ár og er einn aðalmaðurinn á bak við uppkomu Breiðholtsliðsins sem fór alla leið í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn í vor. Jakob Örn Sigurðarson lék síðast með KR tímabilið 2008-2009 en hann yfirgaf félagið þá í annað skiptið sem Íslandsmeistari. Jakob var einnig Íslandsmeistari með KR vorið 2000 en eftir það fór hann út í nám. Eftir nám við Birmingham–Southern frá 2001 til 2005 þá reyndi Jakob fyrir sér atvinnumaður í Þýskalandi, á Spáni og í Ungverjalandi. Jakob kom síðan heim í eitt tímabil haustið 2008 en hefur síðan spilað í Svíþjóð þar sem hann varð meðal annars sænskur meistari með Sundsvall Dragons vorið 2011. Allir eiga þeir Brynjar Þór Björnsson, Jakob Örn Sigurðarson og Matthías Orri Sigurðarson það sameiginlegt að hafa yfirgefið KR sem Íslandsmeistarar. Endurkoma þeirra ætti að ýta undir líkurnar að KR vinni sjöunda Íslandsmeistaratitilinn í röð.
Dominos-deild karla Mest lesið Markverði Víðis boðið til Real Madrid „Agndofa við að sjá þetta allt“ Fótbolti Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Körfubolti Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Handbolti Dæmir úrslitaleik Evrópudeildar þrátt fyrir umdeilda fortíð Fótbolti Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn Rændi banka á leiðinni á völlinn og dæmdur í 32 ára fangelsi Sport Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann Handbolti Alltaf markmiðið að spila fyrir Barcelona Sport Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Enski boltinn Fara fram á tveggja og hálfs árs fangelsi yfir Ingebrigtsen Sport Fleiri fréttir Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Lögmálið: „Er eitthvað að því að Randle sé búinn að vera betri en Ant?“ Indiana tók Cleveland í bakaríið „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu „Gerðum hlutina rétt í þessum leik“ Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis KKÍ breytir reglum varðandi erlenda leikmenn „Stoltið sem fylgir því að verja sinn heimavöll verður að vera til staðar“ „Við ætluðum bara ekki að tapa“ Úlfarnir búnir að snúa einvíginu sér í vil Meistararnir á lífi eftir stórsigur í New York „Persónulega fannst mér þær byrja að fagna of snemma“ Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 94-78 | Njarðvíkingar settu í fimmta gír í seinni „Mikilvægt að okkar uppöldu KR-ingar spili með félaginu“ Hamarsmenn tryggðu sér oddaleik Hristi af sér meiðsli á „ódauðlega“ ökklanum og fagnaði sigri Stóð við stóru orðin og fór í átta klukkutíma göngutúr heim til sín Miðasala á Dúllubar í dag og VIP-miðar á 15.000 krónur „Helmingurinn af liðinu var veikur“ Ægir Þór: Við vorum heilt yfir miklu betri Uppgjör: Tindastóll-Stjarnan 93-90 | Stólarnir með ótrúlega endurkomu í blálokin Deandre Kane áfram með Grindvíkingum Sjá meira
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn