Stefán Gíslason hættur með Leikni og tekur við liði í Belgíu Anton Ingi Leifsson skrifar 26. júní 2019 17:59 Stefán er hættur í Breiðholtinu og heldur aftur til Belgíu. vísir/andri marinó
Þjálfarabreytingar hafa orðið hjá Leikni í Inkasso-deild karla en félagið tilkynnti þetta með yfirlýsingu á heimasíðu félagsins nú í kvöld. Stefán Gíslason, sem tók við liðinu fyrir tímabilið, er á leið til Belgíu þar sem hann tekur við liði þar í landi en ekki kemur fram hvaða lið það er. Stefán hefur bæði þjálfað Leikni og Hauka hér á landi en hafði gert fína hluti með Leiknis-liðið sem situr í 7. sæti Inkasso-deildarinnar. Hann er ekki ókunnugur Belgíu en hann lék þar og spilaði um árabil."Það er eftirsjá af Stefáni sem tók við Leikni síðasta vetur en hugmyndafræði hans og félagsins lágu virkilega vel saman. Honum er þakkað fyrir afar góð störf fyrir félagið og óskað velfarnaðar." Viðtal við Stefán birtist á https://t.co/zYyY8etWNG á morgun! — Leiknir Reykjavík FC (@LeiknirRvkFC) June 26, 2019 Við Leiknis-liðinu tekur Sigurður Heiðar Höskuldsson en hann hefur verið aðstoðarþjálfari Stefáns í ár. Sigurður hefur aldrei stýrt liði í meistaraflokki áður en verið lengi þjálfari yngri flokka. Leiknir spilar við Keflavík annað kvöld í Inkasso-deildinni en yfirlýsingu Leiknis má lesa hér að neðan.Yfirlýsing Leiknis: Hlutirnir breytast fljótt í boltanum. Stefán Gíslason hefur látið af störfum sem þjálfari Leiknis til að taka við þjálfarastarfi í Belgíu. Það er eftirsjá af Stefáni sem tók við Leikni síðasta vetur en hugmyndafræði hans og félagsins lágu virkilega vel saman. Það er leiðinlegt að horfa á eftir þessum flotta þjálfara og honum er þakkað fyrir afar góð störf fyrir félagið og óskað velfarnaðar í nýju og spennandi verkefni. Að sama skapi fagnar Leiknir því að erlend félög séu að horfa hingað upp í Breiðholtið, enda ansi margt gott sem héðan kemur! Það er ekki oft sem íslenskum þjálfurum býðst tækifæri sem þetta. Sigurður Heiðar Höskuldsson, sem verið hefur aðstoðarþjálfari Stefáns, tekur nú við keflinu og stöðu aðalþjálfara. Áfram verður haldið í sömu vegferð. Valur Gunnarsson markvarðaþjálfari verður honum til aðstoðar í leiknum gegn Keflavík á morgun en verið er að vinna í að fá inn nýjan aðstoðarþjálfara. Áfram Leiknir!
Inkasso-deildin Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Körfubolti Fleiri fréttir Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni „Gerðum gott úr þessu“ Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1 | Breiðablik er meistari meistaranna Herra Víkingur kvaddur: „Rosalega gott tækifæri til að hætta“ Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í mjög ljótri stöðu“ Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ „Lærir með hverju árinu hvað maður á að hlusta á og hvað ekki“ Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ Sjá meira