Fjöldi íslenskra leikara í Eurovision-mynd Will Ferrell sem verður að hluta tekin upp á Íslandi Birgir Olgeirsson skrifar 29. júlí 2019 11:59 Will Ferrell og Rachel McAdams leika íslenska söngvara í myndinni. Vísir/Getty
Eurovision-mynd bandaríska gamanleikarans Will Ferrell verður tekin upp að hluta hér á landi og mun fjöldi Íslendinga fara með hlutverk í henni. Þetta herma heimildir Vísis en í myndinni mun Will Ferrell og Rachel McAdams leika íslenska söngvara sem munu væntanlega keppa í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision. Ásamt því að leika eitt af aðalhlutverkum myndarinnar skrifar Ferrell handrit hennar en hann hefur verið viðstaddur Eurovision undanfarin ár til að kynna sér keppnina betur. Ferrell hefur lengi verið aðdáandi Eurovision en eiginkona hans er sænska leikkonan Viveca Paulin. Á IMDB-síðu myndarinnar kemur fram að Jóhannes Haukur Jóhannesson mun leika mann að nafni Johans en nöfn annarra íslenskra leikara koma ekki fram þar. Samkvæmt heimildum Vísis hafa þó nokkrir verið ráðnir til að leika í myndinni, þeirra á meðal eru Björn Hlynur Haraldsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Hannes Óli Ágústsson. Myndin verður að mestu tekin upp í Pinewood-myndverinu í Lundúnum en eins og áður segir verða einhver atriði tekin upp hér á landi í haust. Will Ferrell og Rachel McAdams hafa áður leikið í sömu mynd en þó ekki á móti hvort öðru. Það var myndin Wedding Crashers sem kom út árið 2005. Leikstjóri þeirrar myndar var David Dobkin sem mun einmitt leikstýra Eurovision-myndinni. Er þessi mynd framleidd fyrir streymisveituna Netflix.
Eurovision Eurovision-mynd Will Ferrell Netflix Tengdar fréttir Will Ferrell leikur íslenskan söngvara í Eurovision-myndinni Leikarinn Will Ferrell mun sjálfur leika íslenskan Eurovision-söngvara í væntanlegri mynd bandaríska grínistans um Eurovision-söngvakeppnina. 17. maí 2019 18:59 Rachel McAdams leikur íslenska söngkonu í Eurovision-mynd Will Ferrell Fór til Ísrael til að kynna sér keppnina. 15. maí 2019 07:36 Mest lesið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Menning Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Stjörnum prýdd stikla Black Mirror Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Happy Gilmore snýr aftur Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Ólafur Darri og félagar framleiða sína fyrstu teiknimynd Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Sjá meira
Will Ferrell leikur íslenskan söngvara í Eurovision-myndinni Leikarinn Will Ferrell mun sjálfur leika íslenskan Eurovision-söngvara í væntanlegri mynd bandaríska grínistans um Eurovision-söngvakeppnina. 17. maí 2019 18:59
Rachel McAdams leikur íslenska söngkonu í Eurovision-mynd Will Ferrell Fór til Ísrael til að kynna sér keppnina. 15. maí 2019 07:36
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein