Fréttir „
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 334 ›
„Séra Jón stjórnmálaflokkanna og bara Jón almennings“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir það hættulegt fordæmi að stjórnmálaflokkar, sem ekki uppfylltu skilyrði til að fá styrki úr ríkissjóði síðustu þrjú ár, skuli ekki þurfa að endurgreiða styrkina. Það sama eigi að gilda um Jón og séra Jón. Innlent 13.2.2025 12:01
Meirihlutaviðræður enn í gangi Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um tilraunir til að mynda meirihluta í Reykjavík. Innlent 13.2.2025 11:40
Sebrahestur gengur laus á Jótlandi Dýrafræðingur óttast að erfitt verði að hafa hendur í hári sebrahests sem slapp úr dýragarði á Jótlandi í Danmörku í gær. Tveir aðrir sebrahestar sem sluppu voru fangaðir fljótt en sá þriðji er ófundinn. Erlent 13.2.2025 11:25
Sigrún aðstoðar kryddpíurnar í borginni Sigrún Einarsdóttir, verkefna- og viðburðarstjóri hjá Samfylkingunni, hefur tekið að sér að aðstoða oddvita flokkanna fimm sem standa í meirihlutaviðræðum í Reykjavíkurborg. Innlent 13.2.2025 11:17
Trump stjórnarformaður Kennedy miðstöðvarinnar og listamenn flýja Donald Trump Bandaríkjaforseti er orðinn stjórnarformaður Kennedy listamiðstöðvarinnar í Washington D.C., eftir að hafa hreinsað úr stjórninni. Erlent 13.2.2025 11:06
Lýsir ógnarástandi í bekk dóttur sinnar: „Ofbeldið er enn þá alvarlegra en fólk heldur“ Hermann Austmar, faðir stúlku í Breiðholtsskóla, segir ógnarstjórnun ráða ríkjum í árgangi dóttur hennar sem er á miðstigi skólans. Hann talar um að fámennur hópur ráði ríkjum og að börn hafi orðið fyrir andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Innlent 13.2.2025 10:44
Fundað um afmarkaðan þátt kjaradeilunnar Framhaldsskólakennarar og ríkið hittast hjá ríkissáttasemjara í dag. Rætt verður um afmarkaðan þátt kjaradeilunnar. Þá er fundur með samninganefnd grunnskóla-, leikskóla- og tónlistarkennurum á dagskrá eftir hádegi. Innlent 13.2.2025 10:38
Saksóknari hefði þurft að geta í eyðurnar Það er mat Landsréttar að það hefði verið hætt við því að Héraðssaksóknari þyrfti að geta í eyðurnar og setja fram tilgátur hefði hann lagt fram nákvæmari ákæru í Kiðjabergsmálinu svokallaða. Landsréttur vísaði málinu aftur í hérað. Innlent 13.2.2025 10:30
Ók á fólk á götum München: Segja að um árás sé að ræða og 27 eru særðir Að minnsta kosti 27 eru særðir eftir að hælisleitandi frá Afganistan ók inn í hóp mótmælenda á götum München í Þýskalandi í morgun. Ökumaður bílsins var handtekinn á staðnum en yfirvöld telja að um árás sé að ræða. Erlent 13.2.2025 10:18
Stöðvar framkvæmdir við Þorlákshöfn vegna kæru brimbrettafólks Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála úrskurðaði að stöðva skyldi framkvæmdir við gerð landfyllingar við Suðurvararbryggju í Þorlákshöfn. Félag brimbrettafólks kærði framkvæmdina en félagið hefur staðið fyrir mótmælum við Þorlákshöfn í vikunni. Innlent 13.2.2025 09:55
Danir telja Rússa geta hafið stórstríð í Evrópu á allra næstu árum Rússar gætu verið tilbúnir að hefja stórstríð á meginlandi Evrópu á næstu fimm árum telji þeir Atlantshafsbandalagið veiklað eða sundrað, að mati dönsku leyniþjónustunnar. Bandaríkjastjórn hefur sagt að varnir Evrópu séu henni ekki efst í huga. Erlent 13.2.2025 09:12
„Við vitum að þessu er stjórnað af Áslaugu Örnu“ Sjálfstæðismaður til áratuga lýsir hallarbyltingu á hverfisfundi í Fossvogi í gær. Barist er um sæti á landsfundi Sjálfstæðisflokksins á hverjum slíkum fundi og komast færri að en vilja nú þegar baráttan magnast um nýjan formann. Stuðningsmaður Áslaugar Örnu og borgarfulltrúi segir ekkert nýtt að smalað sé á slíka fundi. Innlent 13.2.2025 08:27
Samgöngustofa hafnar beiðni Norlandair um undanþágu frá lokun Samgöngustofa hefur hafnað beiðni Miðstöðvar sjúkraflugs og Norlandair um undanþágu frá lokun austur-vestur flugbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli vegna sjúkraflugs í hæsta forgangsflokki. Innlent 13.2.2025 08:26
Tólf særðir eftir að handsprengju var kastað í Grenoble Tólf særðust, þar af sex alvarlega, þegar handsprengju var kastað inni á bar í borginni Grenoble í Frakklandi í gærkvöldi. Erlent 13.2.2025 07:22
Lægðagangur í suðri og hæðasvæði í norðri Langt suður í hafi er spáð talsverðum lægðagangi, en hæðasvæði norður af Jan Mayen. Þetta kemur fram í textaspá Veðurstofunnar en þar segir að í sameiningu muni þessi veðurkerfi valda austlægum áttum á landinu, allhvössum vindi eða hvassviðri syðst um tíma, en annars mun hægari. Veður 13.2.2025 07:22
Ráðamenn í Evrópu uggandi vegna viðræðna Trump og Pútín Stjórnvöld í sjö Evrópuríkjum sendu frá sér yfirlýsingu í gær þess efnis að þau þyrftu að eiga aðild að viðræðum um endalok átaka í Úkraínu, sem og ráðamenn þar í landi. Erlent 13.2.2025 06:57
Húsbrot, þjófnaðir og slagsmál Þrír voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt í tengslum við húsbrot, í tveimur aðskildum málum. Þá var tilkynnt um innbrot í heimahús og er það mál í rannsókn. Innlent 13.2.2025 06:28
Vill auka eftirlit með þungaflutningum Eyjólfur Ármannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vill auka eftirlit með þungaflutningum. Hann ræddi ástand vega í Reykjavík síðdegis í gær en fjallað hefur verið um málið, og sérstaklega holur í vegum, í þættinum síðustu daga. Innlent 13.2.2025 06:02
Líklegast að gos hefjist í seinni hluta febrúar Gos gæti hafist hvenær sem er á Reykjanesi þar sem kvikumagnið undir Svartsengi er komið upp í það sem þarf til að koma af stað kvikuhlaupi. Benedikt G. Ófeigsson segir erfitt að þrengja tímarammann en líklegast sé að gosið komið upp í kringum seinni hluta febrúar eða byrjun mars. Innlent 12.2.2025 23:44
Svekktar og reiðar yfir viðbrögðum veitingamannsins Ásta Þórdís Skjalddal, varaborgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, er svekkt og reið yfir viðbrögðum veitingamannsins, Árna Bergþórs Hafdal Bjarnasonar, eiganda Veisluþjónustu Suðurlands, sem sá um veitinga á þorrablótum í Ölfusi og Borg í Grímsnesi. Innlent 12.2.2025 23:29
Segist draga andann vegna staðsetningar flugvallarins Björn Sigurður Jónsson sauðfjárbóndi hefur þrisvar sinnum á síðustu sjö árum þurft að fara í sjúkraflug og segir það alveg á hreinu að hann væri ekki lengur á lífi væri Reykjavíkurflugvöllur lengra frá spítalanum. Björn liggur inni á Landspítalanum eins og stendur vegna veikinda eftir að hafa verið flogið í skyndi til Svíþjóðar í bráðaaðgerð fyrr á árinu. Björn skrifaði færslu á Facebook-síðu sína í gær um málið sem hefur vakið mikla athygli. Innlent 12.2.2025 22:56
Sveifluðust til og frá í krefjandi lendingum Flugmenn hafa mátt takast á við krefjandi hliðarvindslendingar á Reykjavíkurflugvelli í dag. Flugrekstrarstjóri Norlandair segir þetta sorglegt og hefur flugfélagið sótt um undanþágu fyrir sjúkraflug til lendinga á lokuðu flugbrautinni. Innlent 12.2.2025 21:45
Fimm með réttarstöðu sakbornings vegna andláts í Grindavík Lögreglan á Suðurnesjum lauk í síðustu viku rannsókn sinni á banaslysi í Grindavík þann 10. janúar í fyrra. Fimm hafa réttarstöðu sakbornings í málinu að sögn Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum. Málið er nú á borði héraðssaksóknara. Innlent 12.2.2025 20:39
Kennarar funda með sáttasemjara á morgun Samninganefnd Kennarasambands Íslands fundar hjá ríkissáttasemjara á morgun. Samninganefnd sveitarfélaga hefur ekki verið boðuð á sama fund. Formaður samningsnefndar sveitarfélaga segir enn eigi eftir að semja um nokkur atriði en vonar að samningar náist. Innlent 12.2.2025 19:30
Orðræða kolleganna um slitin geri lítið úr Framsóknarkonum Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segir Einar Þorsteinsson, borgarstjóra, ekki hafa tekið ákvörðun um að slíta meirihlutanum einn síns liðs síðastliðið föstudagskvöld heldur hafi hann tilkynnt um ákvörðun sem allir borgarfulltrúar flokksins hafi stutt og að einhugur hafi ríkt um að málefnin yrðu að ráða för. Innlent 12.2.2025 19:21
Ekkert rætt um borgarstjóra sem verður „vonandi kona“ Oddvitar fimm flokka sem hafa hafi formlegar meirihlutaviðræður segja mikið traust ríkja í viðræðunum. Samstarfið byggir á félagslegum grunni og verður lögð áhersla á húsnæðis- og skólamál. Ekkert hefur verið rætt um borgarstjóraembættið. Innlent 12.2.2025 18:35
Trump segir samningaviðræður um Úkraínustríðið hefjast strax Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ræddi við forseta Rússlands, Vladimír Pútín í dag í síma um Úkraínu, Miðausturlönd, orkumál, gervigreind og peningamál. Trump segir símtalið hafa verið langt og mjög árangursríkt í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Erlent 12.2.2025 18:02
„Kryddpíur“ með gæsahúð, krefjandi lending og hraðstefnumót Oddvitar fimm félagshyggjuflokka í Reykjavík ákváðu eftir fundahöld í dag að ganga til formlegra viðræðna um meirihlutamyndun. Tveir oddvitar hins fallna meirihluta segja hina þrjá flokkana ekki vera að ganga inn í gamalt samstarf heldur nýtt. Við ræðum kryddpíurnar svokölluðu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þá heyrum við einnig í borgarfulltrúa Framsóknar sem gagnrýnir ummæli þeirra fyrrnefndu um tiltekt eftir vesen karlanna í borginni. Innlent 12.2.2025 18:00
McConnell greiddi atkvæði gegn Gabbard Tilnefning Tulsi Gabbard til embættis yfirmanns leyniþjónusta Bandaríkjanna hefur verið samþykkt. Það var gert með atkvæðagreiðslu í öldungadeild Bandaríkjaþings en hún fór 52-48. Erlent 12.2.2025 17:49
Fróm fyrirheit í jómfrúarræðuhlaðborði Ekki er víst að annar eins her þingmanna hafi flutt sínar jómfrúarræður og gerðist nú síðdegis á Alþingi Íslendinga. Ræðurnar voru flestar fluttar af nokkru öryggi og í máli sumra hinna nýju þingmanna mátti greina fróm fyrirheit; þeir ætla að vinna landi og þjóð gagn með störfum sínum. Innlent 12.2.2025 17:46