Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Næstu dagar verða nokkuð fjölbreyttir og það verður mikið að gera hjá þér. Kvöldið verður rólegt í faðmi fjölskyldunnar.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú skipuleggur ferðalag með elskunni þinni. Bjartsýni gætir hjá þér og almennrar ánægju með lífið og tilveruna.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú ert orðinn þreyttur á venjubundnum verkefnum. Einhver leiði er yfir þér í dag og þú þarft á einhverri upplyftingu að halda.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Vertu þolinmóður þó að þér finnist vinna annarra ganga of hægt. Það væri góð hugmynd að hitta vini í kvöld.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Heppnin verður með þér fyrri hluta dagsins og þú færð tækifæri sem þú hefur beðið eftir lengi. Ekki er ólíklegt að senn dragi til tíðinda í ástarlífinu hjá þér.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú verður að láta þér skiljast að ekki eru allir viðhlæjendur vinir. Eitthvað sem þú áttar þig ekki á liggur í loftinu.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú vinnur vel sérstaklega í samvinnu við aðra og það ætti að bera umtalsverðan árangur. Kvöldið verður sérstaklega skemmtilegt.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Allt gengur fremur hratt fyrir sig í dag og viðhorf þín breytast til ákveðinna verkefna. Þú hefur ekki mikla orku um þessar mundir.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Atburðir dagsins gera þig líklega bjartsýnan en þú verður að gæta hófs, sérstaklega í peningamálum. Ekki vera kærulaus.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Morgunninn nýtist þér vel en þér verður lítið úr verki síðdegis. Þú ættir að gera þér dagamun og fara út á lífið.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þessi dagur verður eftirminnilegur vegna óvæntra atburða. Viðskiptin ganga vonum framar og fjármálin ættu að fara batnandi.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Venjubundin störf leika í höndunum á þér. Síðari hluti dagsins hentar best fyrir viðskipti.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Eitthvað sem þú hefur vonast og beðið eftir lengi rætist í dag. Þú þarft að taka mikilvæga ákvörðun og þú veist ekki alveg í hvorn fótinn þú átt að stíga.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Reyndu að skilja aðalatriðin frá aukaatriðunum. Gættu þess að hafa ekki of mikið að gera.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Heimilislífið er fremur rólegt í dag og það hentar vel að fjölskyldan setjist niður og spjalli saman um lífið og tilveruna.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Einhver sýnir þér viðmót sem þú áttir ekki von á. Þótt þú sért ekki sáttur við það skaltu ekki láta það koma þér úr jafnvægi.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú nýtur góðs af hæfileikum þínum á ákveðnu sviði í dag. Fólk kann vel að meta ákveðni þína í vinnunni.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Ekki má einbeita sér of mikið að smáatriðum. Þú gætir misst sjónar á aðalatriðunum. Fjölskyldan má ekki gleymast.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Líf þitt er stöðugt um þessar mundir og þú ættir að vera jákvæður og bjartsýnn.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þér verður mest úr verki um morguninn, sérstaklega ef þú ert að fást við erfið verkefni. Seinni hluti dagsins verður rólegur og einnig verður kvöldið ánægjulegt.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú ættir að hugleiða það sem gerst hefur undanfarna daga og gera upp hug þinn varðandi ákveðið mál.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þu færð skemmtilegt tækifæri til að sýna hvað í þér býr. Skipuleggðu fjármálin vel.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Dagurinn verður annasamur en þú vinnur vel og átt góðan dag fyrir höndum. Þú færð óvænt hrós.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þér berast fréttir í dag sem gefa ef til vill villandi upplýsingar. Þú skalt spyrjast fyrir um þær og fá þær staðfestar áður en þú aðhefst nokkuð.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú kynnist nýju og áhugaverðu fólki á næstunni. Það skiptir miklu máli að þú komir vel fyrir. Þú átt framtíðina fyrir þér.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Dagurinn verður fremur viðburðarlítill og þú ættir að nota frítíma þinn til að slaka á og hitta fólk sem þú hefur ekki hitt lengi.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Dagurinn verður eftirminnilegur á jákvæðan hátt. Þú færð gott tækifæri til að sýna hæfileika þína á ákveðnu sviði.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Láttu sem ekkert sé þótt einhver sé að reyna að ráðleggja þér í máli sem þér finnst þú ekki þurfa ráð til að leysa. Mikilvægt er að halda friðinn.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þetta er ekki góður dagur til að breyta miklu. Venjubundin vinna gengur þó vel og ástarsamband sem þú átt í blómstrar.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Fjölskyldan krefst mikils af þér og þér finnst þú ekki rísa undir þeim kröfum að öllu leyti. Þú veltir fyrir þér að leita leiða til að auka tekjur þínar.