
Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þú skalt forðast tilfinningasemi og þó að ýmislegt komi upp á skaltu ekki láta skapið hlaupa með þig í gönur.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Eitthvað sem hefur farið úrskeiðis hjá vini þínum hefur truflandi áhrif á þig og áform þín. Þú þarft því að skipuleggja hlutina upp á nýtt.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þetta verður fremur rólegur dagur hjá þér en þó alls ekki leiðinlegur. Ástarlífið er með besta móti um þessar mundir.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Viðskipti ættu að heppnast vel í dag og núna er tækifæri til að fjárfesta. Farðu þó að öllu með gát.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þú átt auðvelt með að ná til fólks í dag og færð það til að hlusta á þig. Núna er tilvalið tækifæri til að brydda upp á nýjungum.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú gætir lent í erfiðleikum með að sannfæra fólk um það sem þér finnst. Þú mátt ekki taka það persónulega þó að hugmyndir sem þú hefur fram að færa mæti einhverri andstöðu.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þér gengur vel að ná sambandi við fólk og átt auðvelt með að fá það til að hlusta á þig. Fjölskyldumeðlimur kemur mikið við sögu í dag.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þú ert of viðkvæmur fyrir ákveðinni manneskju í dag og tekur of mikið mark á henni. Farðu þínar eigin leiðir.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Dagurinn einkennist af streitu og tímaleysi gæti haft mikil áhrif á vinnu þína. Haltu ró þinni því seinni hluta dagsins getur þú slappað af og sinnt áhugamálunum.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Reyndu að taka það rólega í dag, einkum fyrri hluta dagsins. Þú færð óvænt skilaboð í kvöld. Farðu gætilega í fjármálum.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Ástvinir eiga saman notalega stund og eru jafnvel að gera áætlanir um framtíðina. Ekki annað að sjá en nú sé hagstæður tími til þess.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Félagslífið er með besta móti þessa dagana og þú hefur varla tími fyrir annað. Gættu þess að vanrækja ekki fjölskylduna.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Breytingar eru í uppsiglingu. Hugaðu að því sem þú þarft að gera á næstunni. Það er mikilvægt að þú skipuleggir þig vel.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú þarft að gera þér grein fyrir hvað það raunverulega er sem þig langar til að gera. Þá verður mun auðveldara að taka ákvörðun.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þú mætir mikilli hlýju ef þú hittir einhvern sem þú hefur ekki hitt lengi. Það er mikilvægt að þú farir varlega og gætir vel að eigum þínum.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Vertu hreinskilinn og heiðarlegur í samskiptum við aðra. Óheiðarleiki borgar sig aldrei og kemur mönnum í koll. Kvöldið verður fjörugt.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú hefur mörg járn í eldinum og gengur illa að einbeita þér að einu verkefni. Þú ættir að vanda þig betur við það sem þú ert að gera.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Ímyndunarafl þitt er frjótt í dag og þú ættir að nýta þér það sem best. Þú þarft að treysta á sjálfan þig því að samvinna gengur ekki vel.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Það er gott að eiga góða vini og þú þarft mikið á þeim að halda um þessar mundir. Ekki vera feiminn við að leita til þeirra.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Ef þú ert að reyna eitthvað nýtt er viturlegt að taka eitt skref í einu. Það er best að ráðfæra sig við fjölskylduna áður en farið er út í breytingar.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Kergja virðist hlaupin í mál sem er bráðnauðsynlegt að reyna að leysa með einhverju móti. Þú ert fremur ráðalaus gagnvart þessum vanda.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Ef þú ert vingjarnlegur og hjálpsamur við aðra skilar það sér margfalt til baka. Þér virðist ganga allt í haginn og framfarir eru augljósar.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Búferlaflutningar virðast vera á döfinni eða einhverjar aðrar róttækar breytingar. Þú þarft að gæta þín á stjórnsamri manneskju.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Miklar breytingar eru fyrirsjáanlegar hjá þér á næstunni. Einhver reynir að telja þér hughvarf í máli sem þú hefur tekið ákvörðun í.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú leitar viðurkenningar frá öðrum. Þú ert eitthvað óöruggur með sjálfan þig um þessar mundir. Fjármálin virðast ganga vel.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þér finnst ef til vill sem fólk sé að ráðskast með þig og ert ósáttur við það. Reyndu að sýna fram á að þú kærir þig ekki um þetta.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú ert ekki alveg viss um hvort þú treystir þér til að takast á við afar krefjandi verkefni. Hugsaðu málið vel og reyndu að vera raunsær.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Einhver spenna liggur í loftinu. Þú verður fyrir óvæntu happi í fjármálum og allt virðist ganga upp hjá þér.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þér verður boðið tækifæri sem þú átt erfitt með að neita en gerir þér þó ekki almennt grein fyrir. Leitaðu ráða hjá öðrum.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þér tekst eitthvað sem þú hefur verið að reyna lengi og það hressir þig við. Dagurinn verður með líflegra móti.