Erlent
48 49 50 51 52 53 54 55 56 … 334 ›
Ísraelar kalla sendiherrana heim frá Noregi, Írlandi og Spáni Utanríkisráðherra Ísraels hefur ákveðið að kalla ísraelska diplómata í Noregi, Spáni og Írlandi heim til skrafs og ráðagerða eftir að stjórnvöld þar tilkynntu í morgun að þau viðurkenndu sjálfstætt ríki Palestínu. Erlent 22.5.2024 07:26
Búist við að Noregur viðurkenni Palestínu sem sjálfstætt ríki Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og utanríkisráðherrann Espen Barth Eide hafa boðað til blaðamannafundar í dag þar sem búist er við að þeir muni tilkynna að Noregur komi til með að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki. Erlent 22.5.2024 06:13
Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag vera opinn fyrir því að takmarka aðgengi Bandaríkjamanna að getnaðarvörnum og að framboð hans myndi brátt birta stefnuskjal um málefnið. Þetta sagði hann í sjónvarpsviðtali, skömmu áður en hann dróg í land og sagði að ummæli sín hefðu verið rangtúlkuð. Erlent 21.5.2024 23:53
Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Skólum hefur verið lokað og fjöldi fólks svaf í bílum sínum eða á götunni í kjölfar öflugrar skjálftahrinu nærri Campi Flegrei-eldfjallinu í nágrenni Napólíborgar. Erlent 21.5.2024 23:19
Kanna hvar Perry fékk ketamínið Rannsakendur lögreglunnar í Los Angeles, Fíkniefnalögreglu Bandaríkjanna og bandaríska póstsins vinna nú að því að komast að því hvaðan leikarinn Matthew Perry fékk ketamínið sem dró hann til dauða í fyrra. Perry fannst látinn í sundlaug sinni í Los Angeles í október í fyrra og fannst mikið magn ketamíns í líkama hans. Erlent 21.5.2024 21:42
Æfa notkun „taktískra“ kjarnorkuvopna Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Rússlands tilkynntu í dag að æfingar með svokölluð „taktísk kjarnorkuvopn“ hefðu hafist í dag. Það er sama dag og leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu að senda vexti af frystum eigum Rússa til Kænugarðs eða nota til hergagnakaupa fyrir Úkraínumenn. Erlent 21.5.2024 19:11
Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Íslendingur var á meðal farþega í þotu Singapore Airlines sem lenti í mikilli ókyrrð í háloftunum með þeim afleiðingum að einn lést og þrjátíu slösuðust. Þetta kemur fram í frétt BBC sem hefur birt lista með þjóðernum farþega vélarinnar. Erlent 21.5.2024 16:03
Þurfa ekki að rannsaka eiturtilræði við rússneskan andófsmann Dómstóll í Moskvu komst að þeirri niðurstöðu að rússneska rannsóknarlögreglan þurfi ekki að rannsaka tvær tilraunir til þess að ráða fangelsaðan stjórnarandstæðing af dögum í dag. Hann segir það lygi að lögregla hafi þegar rannsakað tilræðin. Erlent 21.5.2024 15:46
Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump Verjendur Donalds Trump luku við að kalla til vitni í þagnargreiðslumálinu í New York í dag. Trump bar ekki vitni í málinu þrátt fyrir að hann hefði fullyrt að hann ætlaði sér „algerlega“ að gera það áður en réttarhöldin hófust. Erlent 21.5.2024 15:04
Yfirvöld ábyrg fyrir dauða þúsunda einstaklinga sökum mengaðs blóðs Yfir 3.000 manns af 30.000 eru látnir í Bretlandi eftir að hafa fengið „mengað“ blóð eða blóðhluta á árunum 1970 til 1998. Höfundur nýútkominnar skýrslu segir málið áfellisdóm yfir heilbrigðiskerfinu og stjórnvöldum og að draga hefði mátt verulega úr skaðanum. Erlent 21.5.2024 11:44
Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Einn lét lífið og rúmlega þrjátíu slösuðust þegar farþegaþota frá Singpore Airlines lenti í mikilli ókyrrð á leið sinni frá London til Singapore. Erlent 21.5.2024 11:11
Aldraður eðlisfræðingur sendur í gúlagið fyrir landráð Rússneskur dómstóll dæmdi eðlisfræðing á áttræðisaldri í fjórtán ára í fanganýlendu fyrir landráð. Vísindamaðurinn er sagður hafa unnið að rannsóknum sem tengdust þróun hljóðfrárra flugskeyta. Erlent 21.5.2024 10:57
„Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Bandaríski fáninn blakti á hvolfi við heimili hæstaréttardómara dagana eftir að stuðningsmenn Donalds Trump réðust á þinghúsið fyrir þremur árum. Slíkur fáni var tákn stuðningsmannanna sem höfnuðu úrslitum forsetakosninganna en mál sumra þeirra eru nú á borði réttarins. Erlent 21.5.2024 09:39
Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Krafa einnar ríkustu konu heims um að mynd af henni sem nú er til sýnis í National Gallery of Australia verði fjarlægð hefur haft þau áhrif að myndin hefur farið út um allan heim á síðustu dögum og vakið mun meiri athygli en ella. Erlent 21.5.2024 09:26
Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Joe Biden Bandaríkjaforseti var ómyrkur í máli í gær þegar hann tjáði sig um ákvörðun Alþjóðaglæpadómstólsins (ICC) um að gefa út handtökuskipanir á hendur leiðtogum Ísrael vegna átakanna á Gasa. Erlent 21.5.2024 07:46
Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Réttarhöld yfir meintum höfuðpaurum valdaránssamsæris í Þýskalandi hefjast í Frankfurt í dag. Erlent 21.5.2024 07:04
OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Leikkonan Scarlett Johansson hefur gagnrýnt OpenAI eftir að fyrirtækið afhjúpaði nýjar raddir fyrir ChatGPT, meðal annars rödd sem þótti afar lík rödd Johansson. Erlent 21.5.2024 06:57
Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Þyrlan sem hrapaði í gær með Ebrahim Raisi, forseta Írans, og Hossein Amir-Abdollahian utanríkisráðherra, var annað hvort ekki með merkissvara um borð eða að slökkt hafi verið á honum þegar slysið varð. Erlent 20.5.2024 23:39
Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hafnar alfarið handtökuskipun á hendur sér sem aðalsaksóknari hins Alþjóðlega sakamáladómstóls hefur farið fram á. Aðalsaksóknarinn sakar Netanjahú, Yoav Gallant varnarmálaráðherra og þrjá leiðtoga Hamas um aðild að stríðsglæpum í mannskæðum átökum Hamas og Ísraels sem staðið hafa yfir í um sjö mánuði. Erlent 20.5.2024 21:59
Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Spænska ríkisstjórnin hefur kallað sendiherrann sinn í Búenos Aíres, höfuðborg Argentínu, heim og ítrekað kröfu sína um að Javier Milei, forseti Argentínu, biðjist afsökunar á hegðun sinni. Leiðtogar þjóðanna tveggja hafa eldað grátt silfur undanfarnar vikur í kjölfar ummæla samgönguráðherrans spænska Óscar Puente í garð Milei. Erlent 20.5.2024 17:47
Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Julian Assange, stofnandi WikiLeaks fær að áfrýja ákvörðun um framsal hans til Bandaríkjanna til hæstaréttar Bretlands eftir að dómarar við dómstól í London úrskurðuðu honum í vil. Erlent 20.5.2024 15:33
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Aðalsaksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins hefur farið fram á handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, Yoav Gallant, varnarmálaráðherra landsins og þriggja leiðtoga Hamas. Allir eru sakaðir um aðild að stríðsglæpum í mannskæðum átökum Hamas og Ísrael sem hafa staðið yfir í um sjö mánuði. Erlent 20.5.2024 11:20
Komst loks út í geim sextíu árum síðar Ed Dwight var fyrsti svarti Bandaríkjamaðurinn til að eiga möguleika á því að fara út fyrir lofthjúp jarðar þegar hann var árið 1961 valinn inn í þjálfunarbúðir fyrir tilvonandi geimfara. Erlent 20.5.2024 10:09
Íransforseti fórst í þyrluslysinu Ríkisfjölmiðlar í Íran hafa staðfest að Ebrahim Raisi, forseti Írans, sé í hópi þeirra sem hafi farist í þyrluslysi sem varð í norðurhluta landsins í gær. Utanríkisráðherrann Hossein Amir-Abdollahian lét auk hans lífið í slysinu, ásamt nokkrum til viðbótar. Erlent 20.5.2024 06:47
Leitin enn ekki borið árangur Leit að þyrlunni sem er sögð hafa brotlent í dag með forseta og utanríkisráðherra Íran innanborðs stendur enn yfir. Slæm veðurskilyrði hafa gert björgunarsveitum erfitt fyrir og yfirvöld nágrannalanda hafa boðið fram hjálp við leitina. Erlent 19.5.2024 23:55
Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Tveir létust og fimm er saknað eftir slys í ánni Dóná um fimmtíu kílómetrum norður af höfuðborginni Búdapest í Ungverjalandi í gær. Skemmtiferðabátur er sagður hafa rekist á vélbát með þeim afleiðingum að vélbáturinn sökk. Erlent 19.5.2024 22:25
Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Bandaríski tónlistarmaðurinn Sean Diddy Combs hefur beðist afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ sinni eftir að myndefni sem sýndi hann ráðast á fyrrverandi kærustu sína, tónlistarkonuna Cassie Ventura, birtist á CNN í vikunni. Erlent 19.5.2024 21:09
Óljóst hvort þyrlan sé fundin Þyrlan sem flutti Ebrahim Raisi forseta Íran og utanríkisráðherrann Hossein Amirabdollahian er sögð hafa „lent harkalega“ á hálendi á norðvesturhluta Íran fyrr í dag vegna þoku. Íranskir miðlar tilkynntu fyrr í kvöld um að þyrlan væri fundin en talsmenn Rauða hálfmánans sögðu það ekki rétt og leit stæði enn yfir. Erlent 19.5.2024 17:55
Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Þyrla íranska forsetans Ebrahim Raisi lenti harkalega í dag. Þetta kemur fram í írönskum ríkismiðlum án þess að frekari upplýsingar séu gefnar upp. Erlent 19.5.2024 13:56
Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Lögþing Færeyja hefur fallið frá áformum um að leggja á 4.500 króna aðgangseyri, 225 danskar krónur, á alla erlenda ferðamenn sem heimsækja eyjarnar. Í staðinn verður tekið upp gistináttagjald, 20 krónur danskar, um 400 krónur íslenskar, fyrir hverja nótt, þó að hámarki tíu nætur, eða um 4.000 krónur. Erlent 19.5.2024 11:20