Erlent
50 51 52 53 54 55 56 57 58 … 334 ›
Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Björn Höcke, leiðtogi hins öfgafulla þýska stjórnmálaflokks Valkosts fyrir Þýskaland í Þýringalandi, hefur verið dæmdur til að greiða sekt fyrir að hafa notað eitt af slagorðum brúnstakka nasistanna á stuðningsmannafundi. Erlent 14.5.2024 22:59
Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Borgarstjóri Þórshafnar vill bjóða NATO að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum. Hann segir núverandi flugvöll of lítinn til að geta þjónað Færeyingum til framtíðar. Erlent 14.5.2024 22:22
Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og formaður Sósíaldemókrataflokksins, segist myndu veðja bjór á það að hún verði áfram forsætisráðherra eftir sumarfrí ríkisstjórnarinnar. Erlent 14.5.2024 17:58
Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Bandarískt tímarit hefur lokað fyrir aðgang að nýrri grein sem fjallar á gagnrýninn hátt um sakfellingu yfir hjúkrunarfræðingi fyrir barnadráp á sjúkrahúsi í Bretlandi. Fyrrverandi ráðherra gagnrýnir að lokað sé á umfjöllun um málið með dómsúrskurði. Erlent 14.5.2024 15:42
Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Umfangsmikil leit stendur nú yfir að þungvopnuðum mönnum sem skutu að minnsta kosti tvo fangaverði til bana og særðu þrjár aðra alvarlega þegar þeir hjálpuðu fanga að strjúka í norðanverðu Frakklandi í dag. Strokufanginn var dæmdur fyrir rán. Erlent 14.5.2024 14:10
„Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Georgíska þingið samþykkti í dag umdeilt frumvarp í anda rússneskra laga sem hafa verið notuð til þess að bæla niður andóf og þagga niður í fjölmiðlum. Þúsundir manna mótmæltu frumvarpinu við þinghúsið á meðan atkvæðagreiðsla fór fram. Erlent 14.5.2024 12:42
Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Fyrrverandi hægrihandarmaður Donalds Trump sagði fyrrverandi forsetinn hefði verið virkur þátttakandi í að greiða konum til að þegja um meinta kynlífsfundi þegar hann bar vitni fyrir dómi í gær. Hann sagðist jafnframt hafa logið og ógnað fólki fyrir hönd Trump. Erlent 14.5.2024 09:09
Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Dómstóll í Austurríki hefur úrskurðað að flytja eigi hinn 89 ára Josel Fritzl af réttargeðdeild og í venjulegt fangelsi. Fritzl var árið 2009 dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa misnotað og haldið dóttur sinni innilokaðri í kjallara í bænum Amstetten í 24 ár. Á þeim tíma eignaðist hann með henni sjö börn. Erlent 14.5.2024 08:19
Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Antony Blinken Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom í morgun til Kænugarðs í Úkraínu en stór vopnasending var loksins að berast Úkraínumönnum á víglínurnar eftir að málið hafði stöðvast í bandaríska þinginu í langan tíma. Erlent 14.5.2024 07:41
Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Notkun lyfjanna Ozempic og Wegovy, sem njóta sívaxandi vinsælda í baráttunni við aukakílóin, virðist draga verulega úr líkunum á hjartaáfalli ef marka má nýja rannsókn. Erlent 14.5.2024 07:22
Fjöldi látinna á Gasa á reiki Sameinuðu þjóðirnar hafa neitað því að áætlaður fjöldi látinna á Gasa hafi minnkað eftir að nýjar tölur voru birtar á vefsvæði samtakanna. Þar stendur nú að 24.686 hafi látist, ekki 35.000 eins og áður hafði verið gefið út. Erlent 14.5.2024 06:34
Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Færeyingar stefna að því að hætta raforkuframleiðslu með dísilolíu fyrir árið 2030. Samtímis vinna þeir að því að skipta út olíukyndingu íbúðarhúsa fyrir varmadælur og hyggjast þrefalda fjölda vindmylla, úr þrjátíu í níutíu. Erlent 13.5.2024 20:02
Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum Á þriðja tug frambjóðenda til kosninga í Mexíkó í næsta mánuði hafa verið myrtir í einni blóðugustu kosningabaráttu í manna minnum. Hundruð annarra hafa helst úr lestinni vegna ofríkis ofbeldisfulltra glæpagengja sem halda samfélögum í heljargreipum. Erlent 13.5.2024 14:15
„Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Georgísk þingnefnd afgreiddi umdeild „rússnesk lög“ á rétt rúmri mínútu í morgun þrátt fyrir fjölmenn mótmæli við þinghúsið um helgina sem héldu áfram í dag. Mikil lögregluviðbúnaður er við þinghúsið og frásagnir eru um harkaleg átök lögreglu og mótmælenda. Erlent 13.5.2024 11:37
Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Þrír karlmenn eru í haldi lögregluyfirvalda á Bretlandseyjum og liggja undir grun um að hafa unnið fyrir öryggisyfirvöld í Hong Kong. Nákvæmar sakir liggja ekki fyrir. Erlent 13.5.2024 08:57
Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Þýskur dómstóll staðfesti flokkun hægrijaðarflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) sem mögulegra hættulegra öfgasamtaka. Niðurstaðan þýðir að lögregla hefur rétt til þess að fylgjast með flokknum með hlerunum og uppljóstrurum. Erlent 13.5.2024 08:53
Sló eigið met á Everest Nepalski Sherpinn Kami Rita sló heimsmet í gær þegar þegar hann komst á topp hæsta fjalls í heimi, Everest, í tuttugasta og níunda sinn. Erlent 13.5.2024 08:50
Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Kórónuveirufaraldurinn virðist smávægilegur samanborið við þær áskoranir sem mannkynið mun standa frammi fyrir ef þeim bakteríum og veirum heldur áfram að fjölga sem eru ónæmar fyrir lyfjum. Erlent 13.5.2024 08:12
Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Til bardaga kom milli Ísraelshers og sveita Hamas í norðurhluta Gasa yfir helgina, á meðan þúsundir flúðu Rafah af ótta við yfirvofandi áhlaup Ísraelsmanna. Erlent 13.5.2024 07:18
Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Aðskilnaðarsinnar sem hafa myndað meirihluta á þingi í Katalóníuhéraði á Spáni virðast ætla að missa þingmeirihluta sinn í kosningum sem fóru fram í dag. Nær öll atkvæði hafa verið talin og útlit er fyrir sigur sambandssinnaðra sósíalista. Erlent 12.5.2024 23:33
Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Vladímír Pútín hefur tekið ákvörðun um að skipta út varnarmálaráðherra hans Sergei Shoigu fyrir Andrei Belousov. Shoigu hefur verið varnarmálaráðherra í tæp tólf ár en verður nú skipaður aðalritaði öryggismálanefndar Rússlands. Erlent 12.5.2024 19:59
Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Hluti fjölbýlishús í borginni Belgorod í Rússlandi hrundi í morgun. Ráðamenn í Rússlandi hafa haldið því fram að húsið hafi orðið fyrir braki úr úkraínskum eldflaugum sem Rússar skutu niður. Erlent 12.5.2024 12:32
Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Fyrsti maðurinn sem fékk grætt í sig svínsnýru á meðan hann var lifandi er látinn, um tveimur mánuðum eftir að nýrun voru grædd í hann og rúmum fimm vikum eftir að hann var útskrifaður af sjúkrahúsi. Richard Slayman fékk tvö erfðabreytt nýru úr svíni á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum í mars og var vonast til þess að nýrun myndu duga honum í minnst tvö ár. Erlent 12.5.2024 08:50
Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Gífurlega umfangsmikil mótmæli fóru fram í Tíblisi í Georgíu í gær. Þar hafa fjöldi mótmælenda komið saman á undanförnum vikum vegna umdeildra laga sem yfirvöld vinna að. Mótmælin virðast hafa náð nýjum hæðum í gærkvöldi. Erlent 12.5.2024 08:05
Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Ályktun um aukinn rétt Palestínu til þátttöku í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna var samþykkt með yfirgnæfandi stuðningi á neyðarfundi þingsins í dag. Ísland kaus með ályktuninni Erlent 11.5.2024 20:56
Hundruð létust í flóðum Hunduð létust í flóðum í Baghlan-héraði í norðurhluta Afganistan í dag og er óttast að tala látinna muni hækka. Erlent 11.5.2024 18:56
Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Ísraelsher hefur fyrirskipað þúsundum að yfirgefa Rafah en búist er við því að herinn ráðist þangað inn af fullum þunga á næstunni. Erlent 11.5.2024 18:05
Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Hollenska söngvaranum Joost Klein hefur verið meinað að keppa í úrslitakvöldi Eurovision í kvöld. Forsvarsmenn söngvakeppninnar lýstu því yfir í dag, eftir að hann var yfirheyrður í gær. Erlent 11.5.2024 10:40
Evrópa böðuð bleiku Óvenju sterkur sólstormur skapaði í nótt umfangsmikla ljósasýningu á stórum hluta jarðarinnar. Himininn yfir Evrópu var víða bleikur á litinn og norðurljós sáust víða um heimsálfuna. Erlent 11.5.2024 07:57
Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Bandaríkjastjórn telur líklegt að ísraelsk stjórnvöld hafi brotið alþjóðleg mannúðarlög með notkun sinni á bandarískum vopnum í hernaði sínum á Gasa. Ekki hafi þó verið hægt að staðfesta það og hún trúi fullyrðingum Ísraela um að þeir fari að lögum. Erlent 10.5.2024 22:27