Innlent
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 334 ›
Bein útsending: Kynnir nýtt átak stjórnvalda í leit og nýtingu á jarðhita Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mun kynna nýtt jarðhitaátak stjórnvalda sem sagt er það stærsta sem stjórnvöld hafi skipulagt á þessari öld, á fundi sem hefst klukkan 13. Innlent 13.3.2025 12:33
Ekkert sérstakt eftirlit með afgangsflugeldum Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki miklar áhyggjur af geymslu flugelda utan sölutíma þeirra og annast ekki eftirlit með afgangsflugeldum. Meiri hætta myndist í kringum sjálfan sölutímann, þegar fyrirtæki eiga það til að geyma þá ótryggum svæðum. Innlent 13.3.2025 12:14
Mikilvægt að grípa snemma inn í: „Börnin okkar eru að þyngjast“ Heilbrigðisráðherra segir brýnt að stytta bið fyrir börn og því hún ákveðið að styðja við Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins sem styður við börn með offitu. Hún hyggst skipa starfshóp sem er falið að kortleggja nýjar áskoranir í lýðheilsu barna. Innlent 13.3.2025 11:46
Skýrari mynd að komast á atburðarrásina segir lögreglan Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um rannsókn lögreglunnar á andláti manns frá Ölfusi sem átt sér stað í vikunni. Innlent 13.3.2025 11:40
Vaktin: Halla kjörin formaður VR Halla Gunnarsdóttir hefur verið kjörin formaður VR samkvæmt heimildum fréttastofu. Allsherjaratkvæðagreiðslu vegna kjörs formanns og stjórnar VR lauk á hádegi í dag. Fréttastofa fylgist með þróun mála í vaktinni og í beinni útsendingu. Innlent 13.3.2025 11:40
Kallar eftir kjarkmiklum og óttalausum forystumanni Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, segir ekkert hafa heyrst frá sitjandi formanni, Sigurði Inga Jóhannessyni, um alvarlega stöðu flokksins. Ekki sé lengur „bara best að kjósa Framsóknarflokkinn“ og skorar hann á forystuna að bretta upp ermar. Innlent 13.3.2025 11:15
Hætti sér loksins út að leika og var laminn um leið Á meðan ráðalausir foreldrar barna í Breiðholtsskóla hittust til að bera saman bækur sínar í gærkvöldi var að tilefnislausu ráðist á tólf ára dreng sem hafði í fyrsta sinn í langan tíma hætt sér út að leika sér. Foreldri í Breiðholtinu segir tifandi tímasprengju í hverfinu. Einn gerandi sem hafi verið skilað á heimili sitt í handjárnum í gær hafi að líkindum verði tilkynntur fleiri hundruð sinnum til lögreglu. Innlent 13.3.2025 11:12
Manndrápsrannsóknin: Myndin að verða „skýrari og skýrari“ „Rannsóknin er enn á frumstigi. Það er mikil gagnaöflun í gangi og mikið um skýrslutökur. En í þeirri vinnu er að verða skýrari og skýrari mynd. En ég tek aftur fram að við erum á frumstigi,“ segir Jón Gunnar Þórhallsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi um rannsókn á manndrápi. Innlent 13.3.2025 11:02
Jón Gnarr vill skikkjur og hárkollur á þingmenn Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, hélt enn áfram að höggva í sama knérunn og gerði að umtalsefni klæðaburð sinn og annarra þingmanna í ræðu sem hann flutti í dagskrárliðnum störf þingsins nú rétt í þessu. Innlent 13.3.2025 10:56
Maðurinn sem lýst var eftir kominn í leitirnar Maður sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær er kominn í leitirnar. Um var að ræða karlmann á þrítugsaldri. Innlent 13.3.2025 10:38
Pallborðið: Umferðaröryggi og 200 milljarða viðhaldsskuld Fjórir hafa farist í umferðarslysum á árinu, þar af þrír á fjögurra daga tímabili. Fjöldi þeirra sem látast eða slasast alvarlega í umferðinni fer hækkandi þvert á markmið. Fjallað verður um umferðaröryggi og ástand samgönguinnviða á Íslandi í Pallborðinu á Vísi klukkan 12:30 í dag. Innlent 13.3.2025 10:06
Sýknaður af ákæru um að verða hjónum að bana Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Alfreð Erling Þórðarson, 46 ára Norðfirðing, af ákæru um manndráp vegna ósakhæfis. Honum var gefið að sök að verða eldri hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst í fyrra. Innlent 13.3.2025 09:40
Skjálftahrina á Reykjanestá og sá stærsti 3,5 „Hrinan mallar áfram þó örlítið virðist hafa dregið úr ákafanum,“ segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um skjálftahrinu sem hófst á Reykjanestá í gær. Innlent 13.3.2025 07:10
Þrír í gæsluvarðhald vegna manndráps í Gufunesi Þrír karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir að maður fannst illa haldinn í Gufunesi. Hann var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi. Alls voru átta manns handteknir en fimm þeirra hafa verið látnir lausir. Rannsókn lögreglu beinist að frelsissviptingu, fjárkúgun og manndrápi. Innlent 12.3.2025 21:32
Ótrúlega oft ekið á búfé á Suðurlandi Varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi hefur verulegar áhyggjur af því hvað ekið er mikið á búfé í umdæminu með tilheyrandi skemmdum á bílum og dauðum skepnum, aðallega sauðfé. Á árunum 2014 til 2024 var ekið 1550 sinnum á búfé með tilheyrandi tjónum. Innlent 12.3.2025 21:05
Um fimm þúsund börn með offitu á Íslandi Rúmlega sjö af hverjum hundrað íslenskum börnum glíma við offitu sem er vaxandi vandamál hér á landi. Hlutfallið er hærra á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Sjötíu börn bíða nú eftir því að komast í Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins en aukafjárveiting hefur orðið til þess að unnt er að stytta biðlista. Innlent 12.3.2025 20:02
Reykjavíkurborg dregur úr áformunum Reykjavíkurborg hefur dregið úr fyrirhuguðum áformum um þéttingu byggðar í Grafarvogi. Þetta kemur fram í nýjum drögum tillögu að aðalskipulagsbreytingu um fjölgun íbúa í grónum hverfum. Innlent 12.3.2025 19:19
Hafna ásökunum á hendur forystu flokksins „Við höfnum ásökunum Karls Héðins Kristjánssonar, sem birti í dag póst um afsögn sína úr kosningastjórn flokksins síðastliðna helgi, um að „hunsa lýðræðislega gagnrýni, viðhalda óheilbrigðri menningu og refsa þeim sem benda á vandamálin.“ Innlent 12.3.2025 18:45
Varðhald í manndrápsmáli, offita barna og íslenskir kafbátar Farið hefur verið fram á gæsluvarðhald yfir nokkrum þeirra sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á manndrápsmáli. Karlmaður á sjötugsaldri lést í gær eftir að hafa fundist þungt haldinn í Gufunesi og fimm eru í haldi lögreglu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sjáum við myndir frá héraðsdómi þegar sakborningar voru leiddir fyrir dómara og förum yfir málið. Innlent 12.3.2025 18:09
Berklasmit á Fáskrúðsfirði Einstaklingur hefur verið greindur með berkla á Fáskrúðsfirði. Aðeins um eitt tilfelli sé að ræða og verður það meðhöndlað á Heilsugæslunni í Fjarðabyggð. Innlent 12.3.2025 17:48
Berghildur Erla hlaut blaðamannaverðlaun fyrir Vistheimilin Blaðamannaverðlaunin voru veitt fyrr í kvöld. Berghildur Erla Bernharðsdóttir, blaðamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, hlaut verðlaun fyrir umfjöllun ársins fyrir þættina Vistheimilin. Innlent 12.3.2025 17:44
Guðni verður prófessor í nafni Jóns Sigurðssonar Rektor Háskóla Íslands hefur ákveðið, að höfðu samráði við forseta Hugvísindasviðs, að Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, verði prófessor í nafni Jóns Sigurðssonar við háskólann. Innlent 12.3.2025 17:18
Leikarar og dansarar á leið í verkfall Leikarar og dansarar í Leikfélagi Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu eru á leið í verkfall eftir að kjaradeilum var lýst sem áranguslausum. Verkföllin falla á „stóra sýningardaga“ en ný sýning um Ladda kemur hvað verst út. Innlent 12.3.2025 16:50
Bein útsending: Blaðamannaverðlaunin afhent Blaðamannaverðlaun ársins 2024 verða afhent í Sykursal í Grósku í dag og hefst útsending frá verðlaunaafhendingu klukkan 17. Innlent 12.3.2025 16:20
Tekið á móti nýju hafrannsóknaskipi Tekið var á móti Þórunni Þórðardóttur HF 300, nýju hafrannsóknaskipi, í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar í dag. Skipið tekur við af hinum dygga Bjarna Sæmundssyni og heitir í höfuðið á einum helsta svifþörungafræðingi landsins. Innlent 12.3.2025 16:06
Taldir hafa nýtt sér óvissu um starfsemi Zuism til þess að svíkja út fé Tveir bræður sem ráku trúfélagið Zuism notfærðu sér óvissu um starfsemi félagsins til þess að svíkja sóknargjöld út úr ríkinu samkvæmt dómi Hæstaréttar yfir þeim. Rétturinn hafnaði rökum þeirra um sýknu á grundvelli trúfrelsisákvæði stjórnarskrá. Innlent 12.3.2025 15:37
Ögurstund upp runnin hjá VR Mikið kapp hefur hlaupið í kosningabaráttuna í VR - Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur - en henni lýkur um hádegi á morgun. Fjórir eru í framboði til formanns og er hlaupinn nokkur hiti í leikinn. Innlent 12.3.2025 15:24
Skjálftahrina við Reykjanestá Nokkrir jarðskjálftar hafa orðið á Reykjanestá á þriðja tímanum og hafa þeir stærstu mælst um 3,5 stig. Skjálftarnir tengjast þó Sundhnúksgígaröðinni ekki með beinum hætti. Innlent 12.3.2025 15:07
Lýsir ofríki og andlegu ofbeldi Gunnars Smára Forseti ungra Sósíalista hefur sagt sig úr kosningastjórn Sósíalistaflokksins í mótmælaskyni. Hann segist útskúfaður fyrir að segja sannleikann um „ofríki, andlegt ofbeldi og trúnaðarbrot“ Gunnars Smára Egilssonar, formanns framkvæmdastjórnar flokksins. Gunnar Smári hefur boðað til skyndifundar í kvöld vegna ásakananna. Innlent 12.3.2025 14:51
Samþykkt að fella 700 til 900 tré í næsta áfanga Fyrirhugað er að fella 700 til 900 tré í næsta áfanga aðgerðaáætlunar um trjáfellingar í Öskjuhlíð í þágu flugöryggis. Nú þegar er búið að fella 730 tré. Innlent 12.3.2025 14:26