Innlent
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 334 ›
Hljóti að styttast í gos og vonar að það komi sem fyrst Enn eru taldar auknar líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Reykjanesi, en landris heldur áfram. Eldgos gæti hafist með mjög skömmum fyrirvara en líklegast þykir að kvika kæmi fyrst upp á svæðinu milli Sundhnúks og Stóra-Skógfells. Benedikt Ófeigsson náttúruvársérfræðingur telur að nú sé lokakafl eldsumbrota á Sundhnúksgígaröðinni líklega hafinn. Innlent 8.3.2025 14:18
Tveggja bíla árekstur í Kömbunum Tveggja bíla árekstur varð í Kömbunum rétt fyrir hádegi. Vegrið varð fyrir skemmdum og bílarnir urðu báðir óökufærir, en engin slys urðu á fólki. Innlent 8.3.2025 13:29
Makríll, kvígukjöt og sauðakjöt í Hörpu um helgina Um fjörutíu smáframleiðendur af öllu landinu munu standa vaktina í Hörpu um helgina til að kynna sína vörur og leyfa fólki að smakka. Dæmi um vörur er makríll, kvígukjöt, geitaafurðir, sauðakjöt og ærkjöt svo eitthvað sé nefnt. Innlent 8.3.2025 13:07
Leikskólakerfið ráði ekki við allt Úthlutun leikskólaplássa fyrir haustið er hafin. Skrifstofustjóri hjá borginni segir miður að foreldrar þurfi stundum að þiggja pláss utan síns hverfis. Leikskólakerfið ráði ekki við ýmsar breytingar í samfélaginu. Innlent 8.3.2025 12:35
Ganga fylktu liði frá Arnarhóli Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna ganga konur og kvár fylktu liði frá Arnarhóli í Iðnó þar sem baráttufundur fer fram á eftir. Skipuleggjandi segir daginn sérstaklega mikilvægan í ár vegna umræðunnar í alþjóðasamfélaginu. Innlent 8.3.2025 12:31
Umferðarslys, leikskólamál og baráttuganga Í hádegisfréttum verður fjallað um alvarlegt umferðarslys á Hrunavegi við Flúðir í morgun. Útkall barst vegna slyssins rétt eftir klukkan níu í morgun en rannsókn stendur enn yfir á vettvangi. Innlent 8.3.2025 12:00
Breyta reglum um hljóðfærafarangur Flugfélagið Play hefur breytt reglum varðandi hljóðfæraflutninga með flugferðum á vegum félagsins. Fiðlur, básúnur og önnur sambærileg hljóðfæri eru nú velkomin í handfarangurshólfið. Innlent 8.3.2025 11:05
Einn fluttur á spítala eftir alvarlegt slys við Flúðir Einn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir alvarlegt umferðarslys við Flúðir. Innlent 8.3.2025 10:50
Húsbrot og rán í Hlíðunum Tilkynnt var um húsbrot og rán í íbúð í hverfi 105 í Reykjavík í nótt. Gerandinn var handtekinn skömmu síðar og færður til fangaklefa vegna málsins. Innlent 8.3.2025 08:46
Harður árekstur á Breiðholtsbraut Harður árekstur varð á Breiðholtsbraut þegar tveir bílar skullu saman rétt eftir klukkan ellefu. Innlent 7.3.2025 23:28
Afstaða þingmanns Flokks fólksins hafði ekki áhrif Menningarráðherra segir ekkert hæft í því að afstaða þingmanns Flokks fólksins til umfjöllunar um styrkjamálið sé valdur að breytingum á fjölmiðlafrumvarpi hans. Vinna við breytingar, á skjön við fyrri yfirlýsingar, hafi verið hafin um miðjan janúar, áður en styrkjamálið kom upp. Innlent 7.3.2025 22:19
Boris Spasskí grafinn með viðhöfn í Moskvu Rússneski skákmeistarinn Boris Spasskí var jarðsettur með viðhöfn í Moskvu í vikunni í kirkjugarði þar sem margar af hetjum Rússlands og Sovétríkjanna hvíla. Útförin var gerð frá höfuðkirkju rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar. Innlent 7.3.2025 22:11
Kjarasamningurinn felldur vegna „örfárra þátta“ Fundir með Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), Sambandi íslenska sveitarfélaga og ríkissáttasemjara hófust aftur í gær eftir að fyrri kjarasamningur náði ekki í gegnum atkvæðagreiðslu félagsmanna LSS. Innlent 7.3.2025 21:35
Versta sviðsmyndin að „klemmast á milli“ í tollastríði stórvelda Mikil óvissa ríkir á alþjóðasviðinu eftir aðgerðir Bandaríkjaforseta í tollamálum. Komi til tollastríðs milli ríkja Evrópusambandsins og Bandaríkjanna er versta sviðsmynd Íslendinga að „klemmast einhvern veginn á milli“ að sögn framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Innlent 7.3.2025 20:24
Upplifir lífið eins og stofufangelsi Nýbökuð móðir segist upplifa lífið eins og stofufangelsi þar sem hún fær ekki þá þjónustu sem hún á lögbundinn rétt á. Henni sé nóg boðið eftir tveggja ára bið og krefst þess að Reykjavíkurborg aðhafist eitthvað í málinu. Innlent 7.3.2025 19:38
Varnarsamningur við Bandaríkin standi sterkt Bandaríkjaforseti hótar auknum refsiaðgerðum gegn Rússum eftir árásir á Úkraínu í nótt. Á sama tíma segist hann trúa því að Pútín vilji frið. Forsætisráðherra Íslands segir varnarsamning Íslands við Bandaríkin standa sterkt þrátt fyrir stefnubreytingu Bandaríkjanna í varnarmálum. Innlent 7.3.2025 18:57
Nýbökuð móðir fær ekki lögbundna þjónustu og líf Ladda á fjölunum Nýbökuð móðir segist upplifa lífið sem stofufangelsi þar sem hún fái ekki þá þjónustu sem hún á lögbundinn rétt á. Rætt verður við konuna í kvöldfréttum Stöðvar 2 á eftir en hún hefur nú beðið í tvö ár eftir NPA-þjónustu. Innlent 7.3.2025 18:14
„Litli besti vinur minn endaði í ruslinu“ Maður sem missti hundinn sinn í upphafi árs segir það hafa þónokkur áhrif á sorgarferlið að vita ekki hvað varð um hræ hundsins en það týndist í meðhöndlun dýraspítala. Innlent 7.3.2025 17:45
Furðar sig á dómi Hæstaréttar og kallar eftir lagabreytingu Forstjóri Justikal, sem býður upp á rafrænar lausnir í tengslum við dómsmál, furðar sig á niðurstöðu Hæstaréttar um að rafræn undirskrift á stefnu dugi ekki til. Nauðsynlegt sé að breyta réttarfarslögum tafarlaust. Innlent 7.3.2025 17:03
Ólöglegt starfsfólk og skattaóreiða veitingastaða Eftirlit Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Skattsins á veitingastöðum höfuðborgarsvæðisins leiddi í ljós að einhverjir veitingastaðir eru með starfsfólk sem eru án réttinda til vinnu hérlendis og sumsstaðar var skattaskilum ábótavant. Á flestum stöðum var vel haldið utan um starfsmannamál, skattskil og brunavarnir. Innlent 7.3.2025 15:40
Kórfélagarnir sorgmæddir og „enginn hafði trú á því að þetta færi svona“ Formaður kirkjukórs Lágafellssóknar segist vera í öngum sínum yfir því að organisti kirkjunnar skyldi gera kórnum að hætta. Hún segist ekki álasa organistanum en ljóst sé að hann hafi ekki ráðið við kórinn. Innlent 7.3.2025 15:33
Góður vilji bjargar ekki leikskólamálunum Björg Magnúsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður borgarstjóra, birti í dag pistil um biðlista borgarinnar eftir leikskólaplássi. Sonur hennar bíður nú eftir plássi og ef fer sem horfir kemst hann ekki inn fyrr en ári of seint miðað við upplýsingar á vef borgarinnar. Innlent 7.3.2025 14:31
Skipulagsstofnun bíður upplýsinga um kjötvinnsluna Skipulagsstofnun bíður gagna frá Álfabakka 2, eiganda skemmunnar margumtöluðu við Álfabakka, en þegar þau liggja fyrir mun stofnunin taka ákvörðun um hvort framkvæmdin þurfi að fara í umhverfismat. Innlent 7.3.2025 13:42
„Nei, hættu nú alveg Jóhann Páll!“ Varaformaður Vinstri grænna og Ung vinstri græn fordæma ákvörðun umhverfisráðherra um að falla frá ráðstöfun 600 milljóna króna af fjárheimildum ársins 2025. Ráðuneyti hans hafi lengi verið fjársvelt og einsýnt sé að mikilvæg mál muni sitja á hakanum vegna ákvörðunar hans. Innlent 7.3.2025 13:36
Efast um að ráðherra sé í herferð gegn fjölmiðlum Formaður Blaðamannafélags Íslands segir skorta rök fyrir stefnubreytingu ríkisstjórnarinnar þegar kemur að styrkjum til fjölmiðla sem boðaðir hafa verið. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir útlit fyrir að refsa eigi fjölmiðlum sem reynst hafi erfiðir stjórnvöldum. Innlent 7.3.2025 13:00
Hafði verið veðurtepptur á Sprengisandsleið í þrjá daga Landhelgisgæslan, lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir voru kallaðar út vegna manns sem var í vanda á Sprengisandsleið milli Þórisjökuls og Hofsjökuls á þriðjudaginn. Hann hafði verið veðurtepptur á staðnum í þrjá daga og sendi því frá sér neyðarboð. Innlent 7.3.2025 12:57
„Sambandið er ekki frosið í báða fætur heldur komið í aðgerðaham“ Forsætisráðherra Íslands fundaði með æðstu embættismönnum Evrópusambandsins og forsætisráðherrum Bretlands, Kanada, Noregs og Tyrklands til að ræða 800 milljarða framlag Evrópusambandsíkja til varnarmála. Innlent 7.3.2025 12:29
Börn vistuð í allt að sex daga í fangageymslu í Flatahrauni Umboðsmaður barna kallar eftir því að ráðuneyti mennta- og barnamála upplýsi tafarlaust um hvaða ráðstafana verði gripið til svo að loka megi neyðarúrræði fyrir börn á lögreglustöðinni í Flatahrauni í Hafnarfirði. Þá gagnrýnir umboðsmaður harðlega villandi upplýsingar um hámarksvistunartíma barna í úrræðinu. Innlent 7.3.2025 12:16
Götunöfnin geti ógnað öryggi fólks Örnefnanefnd hefur gert Reykjavíkurborg að nefna bæði Bjargargötu og Fífilsgötu á nýjan leik vegna líkinda við önnur götunöfn í grenndinni. Formaður nefndarinnar segir að um öryggisatriði sé að ræða og lumar á hugmyndum. Innlent 7.3.2025 12:02
Skjálftar á Reykjanesi ekkert til að kippa sér upp við Steinunn Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir skjálftana í Krýsuvík sem urðu um klukkan níu í morgun ekki endilega tengjast atburðarrásinni við Sundhnúkagígaröðina. Sjö jarðskjálftar mældust í morgun norðvestur af Krýsuvík. Sá stærsti var 0,9 stig að stærð. Svæðið er mjög virkt en ekki endilega meira núna en venjulega, að sögn Steinunnar. Innlent 7.3.2025 11:59