Innlent
1 2 3 4 5 6 7 8 … 334 ›
Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Nemendur í 5. til 10. bekk í Sunnulækjarskóla á Selfossi gátu ekki mætt í skólann í morgun vegna vatnsleka, sem varð á þeirra svæði í nótt. Slökkviliðið sá um hreinsunarstarf í morgun en reiknað er með að skólastarf verið með óbreyttu sniði eftir helgi. Innlent 29.11.2024 13:33
Ekkert D-vítamín í kæstum hákarli Baldvin Jónsson, tengdafaðir Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins, heldur uppteknum hætti á Facebook og boðaðar nú hákarlaát og segir að í honum sé mikið D-vítamín. Því er hins vegar haldið fram, á móti, að svo sé hreint ekki. Innlent 29.11.2024 13:14
Fleiri gular viðvaranir á kjördag Gular veðurviðvaranir verða í gildi á stórum hluta landsins á kjördag á morgun. Veðurspáin hefur aukið ásókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Austurlandi en nú hafa viðvaranir vegna hríðar á norðanverðu landinu bæst við. Innlent 29.11.2024 13:14
Slæm spá fjölgar þeim sem greitt hafa atkvæði Hátt í fjörutíu þúsund manns hafa greitt atkvæði utankjörfundar fyrir komandi Alþingiskosningar. Þátttakan hefur verið töluvert meiri á landsbyggðinni. Á Austurlandi greiddu helmingi fleiri atkvæði í morgun en á öðrum svæðum. Sýslumaður þar segir ljóst að slæm veðurspá á kjördag sé að hafa áhrif. Innlent 29.11.2024 12:32
Áframhaldandi gasmengun í Grindavík Stöðug virkni er í eldgosinu á Reykjanesi. Samkvæmt spá verður áframhaldandi gasmengun í Grindavík seinnipartinn í dag. Innlent 29.11.2024 12:17
Margir greiða atkvæði utan kjörfundar fyrir austan Í hádegisfréttum heyrum við í Sýslumanninum fyrir austan en mikil sókn hefur verið í að greiða atkvæði utan kjörfundar í komandi Alþingiskosningum. Innlent 29.11.2024 11:42
Heilskimun Intuens enn til skoðunar hjá landlæknisembættinu Mál heilbrigðisfyrirtækisins Intuens er enn til skoðunar hjá landlæknisembættinu, segir í skriflegum svörum embættisins við fyrirspurn fréttastofu. Ekki er hægt að veita upplýsingar um vinnslu málsins né næstu skref á meðan. Innlent 29.11.2024 11:31
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshellaferð Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að Kötlujökli rétt fyrir klukkan 11 vegna einstaklings sem slaðist á fæti í íshellaferð á svæðinu. Innlent 29.11.2024 11:23
Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Lögreglan á Vestfjörðum var við valdbeitingaræfingar við Stjórnsýsluhús Ísafjarðar á miðvikudag, sama dag og fíkniefnamál kom upp í bænum. Misskilningur milli blaðamanns og lögreglustjóra varð til þess að sá síðarnefndi neitaði að tjá sig um æfinguna. Innlent 29.11.2024 10:33
Þessi mættu best og verst í þinginu Fjórir þingmenn úr þremur flokkum voru með bestu mætinguna í atkvæðagreiðslur nýliðins þings, samkvæmt síðu sem tekið hefur saman ýmsa tölfræði um þingmenn og þingflokka yfir langt skeið. Innlent 29.11.2024 09:20
Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Sakborningur í Elko-málinu svokallaða er grunaður um fjölda annarra afbrota, þar eru átta þjófnaðarbrot og sex umferðarlagabrot. Hann er einnig grunaður um heimilisofbeldi og hlaut dóm fyrir ýmis brot í haust. Innlent 29.11.2024 09:01
Um 173 milljónir króna á hvern fanga í nýju fangelsi á Stóra-Hrauni Kostnaður við byggingu nýs fangelsis í landi Stóra-Hrauns er áætlaður um sautján milljarðar króna. Fangelsið á að koma í stað Litla-Hrauns og geta hýst hundrað fanga með möguleika á að bæta við 28 afplánunarrýmum síðar. Innlent 29.11.2024 07:00
Stefnir enn í hríðarveður á Austfjörðum á kjördag Gul veðurviðvörun tekur gildi síðdegis fyrir Suðausturland og klukkan átta í kvöld á Austfjörðum, þar sem spáð er norðaustan hríðarveðri þar sem vindhraði verði 15 til 20 metrar á sekúndu. Innlent 29.11.2024 06:51
Erfiðara að manna í frístund í austurhluta borgarinnar Í síðustu viku voru alls 194 börn á bið eftir plássi í frístund í Reykjavík. Enn á eftir að ráða í 31,6 stöðugildi í frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum. Á sama tíma átti eftir að ráða 62 grunnstöðugildi í leikskólum. Þetta kemur fram í minnisblaði um stöðu ráðninga á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Innlent 29.11.2024 06:46
„Talandi um að skila ekki til samfélagsins“ „Svo teiknar hann flóttafólk og innflytjendur upp sem stórkostlega ógn við okkar innviði, fólk sem er ógn við þessa innviði er fólk sem borgar ekki til samfélagsins, við erum að verða af hundruðum milljarða út af skattsvikum, við erum að verða af hundruðum milljarða út af fákeppni umhverfinu á Íslandi. Þessir herramenn hér voru báðir í Panama-skjölunum, nóta bene, talandi um að skila ekki til samfélagsins.“ Innlent 28.11.2024 23:11
Ný kosningaspá: Sjö flokkar sem næðu inn manni Í nýrri kosningaspá Metils, sem tekur mið af nýjum fylgiskönnunum Maskínu og Prósent er Sjálfstæðisflokki spáð betra gengi en áður. Píratar næðu inn manni samkvæmt spánni, en ekki Vinstri græn eða Sósíalistaflokkur. Innlent 28.11.2024 22:47
Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Fyrsta gullið úr grænlenskri gullnámu, sem Íslendingar standa fyrir, er komið úr gullkvörninni. Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri málmleitarfélagsins Amaroq, segir þetta ólýsanlega tilfinningu eftir tíu ára undirbúningsstarf. Innlent 28.11.2024 22:42
„Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Í Kappræðum sem sýndar voru á Stöð 2 fyrr í kvöld voru formenn flokkana teknir í atvinnuviðtal og var frammistaða þeirra mis góð. Innlent 28.11.2024 22:08
„Er ekki hægt að hafa sér þátt fyrir hann?“ Leiðtogum stjórnmálaflokkanna varð heitt í hamsi þegar að þeir ræddu húsnæðismarkaðinn, lóðaframboð og aðkomu ríkisins að uppbyggingu í kappræðum flokksleiðtoganna í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Innlent 28.11.2024 21:14
Fjölmenn lögregluaðgerð á Ísafirði Fjölmenn lögregluaðgerð var við Stjórnsýsluhús Ísafjarðar síðdegis í gær. Innlent 28.11.2024 21:10
„Leikurinn er ekki búinn fyrr en hann er búinn“ „Maður finnur að fólk vill breytingar. Það er skýlaus krafa um samheldna ríkisstjórn. Þetta eru náttúrulega frábærar tölur. Við erum auðvitað afar þakklát. Liðið er bara samheldið, það eru engin vandræði og fullt af reynslu og þekkingu og bara gleði. Ég er samt keppnismanneskja, leikurinn er ekki búinn fyrr en hann er búinn. Það eru tíu mínútur eftir af seinni hálfleik.“ Innlent 28.11.2024 20:13
Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Íslendingar munu kjósa sér nýtt þing laugardaginn 30. nóvember. Fylgst verður með nýjustu tíðindinum í aðdraganda kosninga hér í Kosningavaktinni. Innlent 28.11.2024 19:29
Óvenjumikil aðsókn vegna veðurs „Fólk tekur það yfirleitt fram þegar það kemur til okkar að það sé eins gott að fara drífa sig, því það sem vofir yfir er það sem að Íslendingar þekkja því miður betur en aðrar þjóðir, vont veður.“ Innlent 28.11.2024 18:39
Rýnt í fylgið á lokasprettinum og mögnuð heimsókn í íslenska gullnámu Samfylking og Viðreisn leiða áfram skoðanakannanir á fylgi flokkanna fyrir alþingiskosningarnar. Spennan magnast fyrir lokakannanirnar sem birtar verða á morgun. Við rýnum í stöðuna í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 og förum yfir möguleg þingsæti í beinni útsendingu. Innlent 28.11.2024 18:01
Ósennilegar skýringar á því hvernig DNA endaði á kynfærum Finnur Ingi Einarsson hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga samstarfskonu eiginkonu sinnar. Það er niðurstaða Landsréttar, en áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknað hann. Innlent 28.11.2024 17:48
„Ég mun deyja á þessari hæð“ Dagur B. Eggertsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, hefur verið kærður til héraðssaksóknara fyrir að hafa með ummælum sínum í orðaskaki á Facebook-síðu Baldvins Jónssonar reynt að villa um fyrir Sjálfstæðismönnum í kjörklefanum. Innlent 28.11.2024 17:39
Ákærður fyrir morð og tvær tilraunir til manndráps Sextán ára drengur sem er grunaður um að hafa stungið sautján ára stúlku til bana á Menningarnótt hefur verið ákærður fyrir manndráp og tvær tilraunir til manndráps, fyrir að hafa stungið tvö önnur ungmenni í sömu árás. Innlent 28.11.2024 17:29
Ekki rétt að nefndin hafi boðað aukafund til að hækka vexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur aldrei komið saman á sérstökum aukafundi til þess að hækka stýrivexti. Forseti ASÍ hélt hinu gagnstæða fram í dag. Innlent 28.11.2024 17:05
Sýkna Þórðar Más og Sólveigar Guðrúnar í milljarðamáli staðfest Landsréttur hefur staðfest sýknudóm í máli félagsins Lyfjablóms ehf. á hendur þeim Þórði Má Jóhannessyni og Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur. Lyfjablóm krafðist 2,3 milljarða króna skaðabóta vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir í viðskiptum með hlutafé í fjárfestingafélaginu Gnúpi í aðdraganda efnahagshrunsins. Innlent 28.11.2024 16:09
Auka alþjóðasamvinnu í ljósi vaxandi spennu Aukin áhersla hefur verið lögð á þátttöku Íslands í alþjóðasamvinnu vegna mikilla breytinga og aukinnar spennu í sviði alþjóðasamskipta á undanförnum árum. Þátttaka Íslands í starfi Atlantshafsbandalagsins hefur verið aukin og hefur sérstök áhersla verið lögð á öryggi og varnir á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 28.11.2024 15:19