Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Það lítur út fyrir að einhver sé að baktala þig en ef þú hefur öll þín mál á hreinu þarft þú ekkert að óttast.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Eitthvað gerist í dag sem styrkir fjölskylduböndin og samband þitt við ættingja þína.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Gamall draumur þinn virðist um það bil að rætast. Þetta verður á margvíslegan hátt sérstakur gleðidagur hjá þér.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þér finnst þú vera óvelkominn þar sem þú kemur. Aðrir virðast uppteknir af sjálfum sér og hafa ekki tíma fyrir gesti.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Viðbrögð þín við því sem þér er sagt eru mikilvæg. Ekki vera of gagnrýninn það gæti valdið misskilningi.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Nú eru tímar mikilla breytinga og þú reynir margt sem þú hefur ekki reynt fyrr. Þú kynnist nýju fólki.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Nú er rétti tíminn til að hrinda nýjum hugmyndum í framkvæmd og líta opnum huga á aðstæður. Þú ert í góðu jafnvægi og líður í alla staði vel um þessar mundir.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú mátt vænta gagnlegrar niðurstöðu í máli sem lengi hefur beðið úrlausnar. Þú þarft að hvíla þig og góð leið til þess er að hitta góða vini. Ekki dæma fólk eftir fyrstu kynnum, hvorki því sem það gerir eða segir. Athugaðu þess í stað hvern mann það hefur

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Fjölskyldan skipar stóran sess hjá þér um þessar mundir og ef til vill verður eitthvað um að vera á næstunni hjá þínum nánustu.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú ættir að reyna að koma hugmyndum þínum á framfæri í stað þess að hætta á að gleyma þeim. Kvöldið verður rólegt.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Ástarlífið blómstrar um þessar mundir en ekki er víst að það muni standa lengi. Njóttu augnarbliksins.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Fjölskyldan er áberandi þessa dagana. Þú þyrftir að sýna ákveðnum fjölskyldumeðlim meiri athygli þar sem hann er ekki alls kostar sáttur við lífið og tilveruna.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þér verður sýnd einhver óvirðing í dag og upp kemur misskilningur sem brýnt er að þú leiðréttir. Vertu varkár í fjármálum.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þér finnst allt vera erfitt þessa dagana. Ástæðan gæti verið sú að þú hefur ekki hvílt þig nóg að undanförnu. Taktu það rólega í kvöld.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þér finnst þú mæta miklu mótlæti þessa dagana en það gæti einungis stafað af því að þú ert svartsýnn.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þér hættir til að vera of fljótur að dæma aðra og sannfærast um að þú hafir á réttu að standa.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Varastu að sýna fólki tortryggni og vantreystu því. Þér gengur betur í dag ef þú vinnur með fólki heldur en að vinna einn.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Eitthvað óvænt hendir þig og þú veist ekki almennilega hvernig þú átt að bregðast við því. Haltu ró þinni og þá fer allt vel.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú verður mjög svartsýnn fyrri hluta dagsins og þér hættir til að vanmeta sjálfan þig. Ekki taka mikilvægar ákvarðanir á meðan þú ert í þannig skapi.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Óvæntur atburður setur strik í reikninginn og gæti raskað áætlun sem var gerð fyrir löngu. Vertu þolinmóður við þína nánustu í dag.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þín bíða mörg og skemmtileg verkefni í vinnunni. Leggðu þig allan fram og þá muntu uppskera eftir því.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Treystu sannfæringu þinni og farðu eftir eigin hugboði í samskiptum við aðra í dag. Þú gætir lent í erfiðum samræðum.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú umgengst marga í dag og tekur að þér að stjórna einhverju. Þú þarft að sýna skilning og þolinmæði.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú eyðir miklum tíma með fjölskyldunni og færð þann tíma margfalt borgaðan til baka í ást og umhyggju.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú átt ánægjulegt ferðalag í vændum. Persóna sem þú hittir hefur mjög ákveðnar skoðanir þér til mikillar ánægju. Þú ferð að hugleiða alvarlega eitthvað sem þú hefur lítið hugsað um áður.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Einbeittu þér að því sem þú ert að fást við og láttu ekki truflanir úr umhverfinu koma þér úr jafnvægi. Það eru bjartari tímar fram undan.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Fyrri hluti dagsins verður fremur strembinn hjá þér en þú kemur líka miklu í verk. Kvöldið verður hins vegar fremur rólegt.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Það hentar þér betur að vinna einn í dag. Þú þreytist við að hafa of mikið af fólki í kringum þig og ættir að eyða tíma með sjálfum þér.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Ekki láta álit þitt í ljós nema þú sért beðinn um það. Oft má satt kyrrt liggja. Hugsaðu fyrst og fremst um eigin hag í ákveðnu máli.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Vinur þinn hefur áhrif á skoðanir þínar í dag. Þú ættir að hlusta á hugmyndir hans en varast að taka orð hans of bókstaflega.