Tíska og hönnun

Poppstjarna í gegnsæjum kjól
Stórstjarnan hún Kylie Minogue kann svo sannarlega að gera allt vitlaust á rauða dreglinum en hún mætti í gegnsæjum kjól á frumsýningu kvikmyndarinnar Holy Motors á kvikmyndahátíðinni í New York í gær. Minogue hefur aldrei verið feimin við að sýna línurnar og var engin undandtekning þar á í gær.

Saga til næsta bæjar á enda
Sýning sem tengist íslenskri hönnun.

Glæsilegt blað hjá Þórunni Högna
NUDE HOME er komið út en um er að ræða nýtt tímarit um heimili, hönnun, mat og vín. Blaðið er gefið út af Origami ehf. sem er útgáfufyrirtæki NUDE magazine sem komið hefur út frá árinu 2010. Þetta fyrsta tölublað af NUDE HOME er 154 síður að stærð. Ritstjóri blaðsins er Þórunn Högnadóttir, stílisti og blaðamaður, sem er fyrrverandi ritstjóri sjónvarpsþáttarins Innlit/Útlit.

Kíkt í heimsókn til Lóu Pind
Fréttakonan Lóa Pind fréttakona býr í fallegu, skandinavísku húsi í Góugötu í litla Skerjafirði í Reykjavík ásamt eiginmanni og tveimur sonum. Lóa leggur mikla áherslu á að heimilið sé þægilegt og vill sem minnst af styttum og öðrum fínum hlutum í kringum sig. Sjónvarpsmaðurinn Sindri Sindrason heimsækir Lóu í þættinum Heimsókn sem er í opinni dagskrá strax að loknum kvöldfréttum á Stöð 2 annað kvöld.

Eldgamlar módelmyndir af Victoriu Beckham
Kryddpían Victoria Beckham er með smartari konum í heiminum. En hún lenti samt líka í þeirri hræðilegu tísku sem var boðið upp á snemma á tíunda áratugnum eins og sést á þessum gömlu myndum sem teknar voru árið 1992.

Allt um hár í einni bók
Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack miðlar visku sinni um hár og hárumhirðu í bókinni Hárið. Þar er að finna yfir 70 uppskriftir að hárgreiðslum en ljósmyndarinn Saga Sig sá um myndskreytingar.

Klæddu þig eins og Taylor Swift
Athygli vakti að Taylor Swift var ekki jafn kvenleg til fara og oft áður þegar sást til hennar í London í vikunni. Söngkonan sem er þekkt fyrir sinn dömulega stíl var klæddi í húðlitaðar þröngar buxur, sléttbotna skó og köflótta skyrtu. Við dressið bar hún klassíska fallega tösku úr brúnu leðri en nýji stíllinn fór henni óneitanlega vel.

Kjóllinn entist ekki kvöldið
Söngkonan og X Factor dómarinn Nicole Scherzinger stal senunni svo um munaði á rauða dreglinum fyrir eitt af mörgum úrslitakvöldum X Factor í London um helgina í mjög svo stuttum, gylltum kjól. Stundum borgar sig þó líklega að velja þægindi fram yfir útlitið því kjóll þokkagyðjunnar entist ekki út kvöldið en eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá þurfti Scherzinger að halda kjólnum uppi þar sem rennilásinn hafði gefið sig.

Ber að ofan fyrir Esquire
Tímaritið Esquire hefur kosið leikkonuna Milu Kunis kynþokkafyllstu konu heims. Hún prýðir forsíðu nóvemberheftis tímaritsins í sexí stellingu.

Svona á að mæta á svæðið!
Glamúrgyðjan Kim Kardashian kann svo sannarlega að vekja athygli. Hún mætti á hótelið sitt í Miami í rauðum síðkjól og engum brjóstahaldara svo tekið var eftir.

Kjólastríð! Sjóðheitir spéfuglar
Hnyttnu leikkonurnar Aubrey Plaza og Leslie Mann eru báðar stórglæsilegar í þessum litríka kjól frá Rodarte.

Best klæddu stjörnur vikunnar
Það er ekki að sjá að haustið sé komið miðað við myndirnar af best klæddu stjörnum vikunnar en það voru þær Olivia Palermo, Kim Kardashian, Anna Kendrick, Taylor Swift og Karlie Kloss sem þóttu bera af.

Steldu götustílnum
Það er komin helgi og eflaust margir sem ætla að kíkja aðeins í búðir og skoða hausttískuna. Í meðfylgjandi myndasafni má fá smá innblástur af flottum fatnaði fyrir helgina eða bara haustið eins og það leggur sig en myndirnar eru meðal annars teknar á götum New York.

Eru Twiggy augnhár það nýjasta?
Glee leikkonan Dianna Agron vakti verðskuldaða athygli á Miu Miu vor og sumar tískusýningunni á dögunum enda var hún eins og klippt út úr sjöunda áratugnum. Leikkonan klæddist fagurbláum kjól og var förðuð í anda Twiggy en stór og mikil augnhár hafa verið mjög áberandi undanfarið og verða það áfram í vetur. Spurning hvort Twiggy stíllinn málið!

Tískan að hausti …
Haustið er komið í allri sinni dásamlegu dýrð og dulúð. Að því tilefni fékk Lífið fagfólk með meiru til að setja saman það heitasta í tísku, hári og förðun.

Alveg með'etta í París
Leikkonurnar Emma Stone, Dianna Agron, Amanda Seyfried og Chloe Sevigny stálu senunni þegar Miu Miu kynnti vor- og sumarlínuna á tískuvikunni í París í gær.

Með regnhlíf í stíl við varalitinn
Leikkonan Emma Stone var stórglæsileg þegar hún mætti á vor og sumar tískusýningu Miu Miu í París í vikunni. Stone var mjög klassísk til fara en kryddaði hressilega upp á útlitið með kynþokkafullum krullum og rauðum varalit. Athygli vakt að regnhlíf leikkonunnar var í stíl við varalitinn

Greiddu þér eins og súpermódel
New York, London, Mílanó, París - hér má sjá fimmtán frábærar hugmyndir af einföldum en flottum greiðslum beint af tískupöllunum víðs vegar um heim. Þrátt fyrir að tískuvikurnar undanfarið hafi snúist um vor og sumartísku næsta árs er alltaf gaman að tileinka sér eitthvað nýtt af pöllunum. Mikill þokki hefur verið í hárgreiðslunum og margar þeirra eru auðveldar í framkvæmd. Láttu reyna á það...

Svona klæða módelin sig
Meðfylgjandi myndir sýna fyrirsætur á förnum vegi á götum stórborganna New York, London, Míllanó og Parísar undanfarnar vikur á milli þess sem þær sýndu hátískuna á tískuvikum. Það vekur athygli að flestar velja þær sér flatbotna og þægilega skó og fatnað úr þæginlegum efnum til að klæðast á milli verkefna.

Mat og tísku tvinnað saman
Ágústa Margrét Arnardóttir hönnuður stendur fyrir viðburðinum Fashion with Flavor sem fram fer á Grand hóteli um helgina. Hugmyndin að baki viðburðinum er að sýna fullnýtingu íslenskra hráefna á einstakan hátt.

Með mömmu á fremsta bekk á tískusýningu
Það þarf líklega enga sérfræðinga til að átta sig á því að Emme Maribel, dóttir Jennifer Lopez stefnir í að verða svolítil díva eins og mamma. Kannski ekki nema von þar sem hún er nú þegar búin að stíga sín fyrstu skref í tískubransanum með því að landa verkefni hjá Gucci.

Steldu stílnum
Leikkonan Rachel Bilson er með frekar afslappaðan og klassískan fatastíl miðað við margar Hollywoodstjörnur en einmitt það gerir hana svo ekta og yndislega. Auðvelt er að tileinka sér stíl leikkonunnar en í meðfylgjandi myndasafni má fá hugmyndir að svipuðum flíkum og hún klæddist í Soho í gær þegar hún fór að versla með vinkonu sinni.

Bomba í bleiku
Bjútíbomban Jennifer Lopez vakti verðskuldaða athygli á tískuvikunni í París í gær þegar hún kíkti á vor- og sumarlínu Valentino.

Dóttir Michaels Jacksons stælar Miley
Poppsöngkonan Miley Cyrus kom öllum að óvörum þegar hún klippti á sér hárið fyrir stuttu og litaði það ljóst. Miley skapaði nýtt trend og er Paris Jackson ein af þeim sem hefur apað eftir henni.

Fyrirsætuslagur! Hvor er flottari?
Fyrirsæturnar Rebecca Romijn og Kimora Lee Simmons vekja báðar óskipta athygli í þessum klæðilega kjól frá Issa London.

Stórglæsileg í síðkjól
Kim Kardashian var stórglæsileg í bláum síðkjól þegar hún yfirgaf hótel sitt í Miami í gær. Síðkjólnum klæddist hún sérstaklega fyrir fjölskyldumyndatöku. Kardashian fjölskyldan hefur það fyrir sið að taka mjög reglulega mynd af allri stórfjölskyldunni, kannski ekki þessa klassísku eins og við flest þekkjum heldur stíliseraða og útpælda þar sem fagfólk sér um allt frá a - ö. Eins og sjá má var raunveruleikastjarnan flott að vanda.

Nautnalegir á nærbuxunum
Þeir eru margir Hollywood-hönkarnir sem hafa auglýst nærfatnað. Eins og gefur að skilja eru þeir langt frá því að vera kappklæddir þegar þeir skella sér í módelhlutverkið.

Leynitrix förðunarmeistarans
Ég er mjög hrifin af dökkum vörum og „smokey" augum í haust og vetur og finnst gaman að prófa mig áfram...

Heitustu trendin í haust
Haustið er án efa uppáhalds árstíð margra fyrir ýmsar sakir. Bæði er náttúran í sínu fegursta pússi, kertaljósin eru tendruð á ný eftir sumarbjartar nætur og síðast en ekki síst fyllast búðirnar af fallegum fatnaði fyrir veturinn.

Hjördís Gissurar heimsótt á Kjalarnesið
Meðfylgjandi má horfa á þriðja þátt Sindra Sindrasonar sem ber heitið Heimsókn þar sem hann tekur hús á Hjördísi Gissurardóttur, fagurkera með meiru...