Viðskipti erlent
202 203 204 205 206 207 208 209 210 … 334 ›
Mikil uppsveifla á Evrópumörkuðum Mikil uppsveifla er nú á mörkuðum í Evrópu eftir að fréttir bárust um að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væri að setja saman neyðaraðstoð fyrir Ítalíu og Spán. Viðskipti erlent 28.11.2011 09:10
Indland stærra en Kína og Bandaríkin 2050 Árið 2050 verður heimurinn breyttur í efnahagslegu tilliti. Hjarta alþjóðahagkerfisins verður ekki á Wall Street, eins og nú. Helstu lífæðar hagkerfisins verða í Indlandi og Kína. Viðskipti erlent 28.11.2011 09:06
Heimsmarkaðsverð á áli lækkar verulega Heimsmarkaðsverð á áli hefur stöðugt gefið eftir frá því í apríl s.l. þegar það náði hámarki á árinu. Í dag er álverðið komið niður í rétt rúma 2.000 dollara á tonnið en í apríl s.l. fór verðið í tæpa 2.800 dollara. Viðskipti erlent 28.11.2011 07:41
Moody´s: Lánshæfiseinkunn allra ESB ríkja í hættu Matsfyrirtækið Moody´s hefur gefið út aðvörun um að lánshæfiseinkunn allra ríkja innan Evrópusambandsins sé í hættu vegna skuldakreppunnar á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 28.11.2011 07:26
AGS setur saman neyðaraðstoð fyrir Ítalíu og Spán Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) er nú að setja saman 800 milljarða dollara, eða 96.000 milljarða króna, neyðaraðstoð sem bjarga á Ítalíu, Spáni og evrunni úr þeim hremmingum sem skuldakreppan hefur valdið á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 28.11.2011 07:19
Írak vinnur með Shell og Mitsubishi Stjórnvöld í Írak hafa samið við olíufyrirtækið Shell og véla- og farartækjaframleiðandann Mitsubishi um nýtingu á jarðgasauðlindum í sunnaverðu Írak. Samningurinn er talinn vera upp á um 17 milljarða dollara, eða um 2.000 milljarða króna, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC í kvöld. Viðskipti erlent 28.11.2011 00:01
Lánshæfismat Belgíu lækkar Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poors hefur lækkað lánshæfismatseinkunn Belgíu. Matið lækkar úr AA+ í AA. Niðurstaðan þýðir að það gæti orðið dýrara fyrir ríkissjóð í Belgíu að taka lán í framtíðinni. Viðskipti erlent 27.11.2011 16:48
Ungverjaland í ruslflokk Lánshæfismatsfyrirtækið Moody's lækkaði í dag lánshæfiseinkunn Ungverjalands niður í ruslflokk. Ástæðan var mikill skuldavandi og veikar vonir um hagvöxt. Þá er enn talin vera mikil óvissa um hvort landið nær að standa á eigin fótum í efnahagslegu tilliti. Frá því að Ungverjar fengu 20 milljarða evra að láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hefur ekki tekist nægilega vel að örva hagkerfi landsins. Nú er jafnvel litið svo á að landið verði að fá neyðaraðstoð á nýjan leik. Viðskipti erlent 26.11.2011 00:06
Lánshæfi Belgíu lækkað Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn Belgíu. Einkunin var AA+ en er nú AA. S&P hafa áhyggjur af möguleikum landsins til endurfjármögnunar auk þess sem markaðsaðstæður séu erfiðar. Ekkert lát virðist því vera á þeirri svartsýni sem ríkir á evrusvæðinu en S&P metur horfur Belgíu neikvæðar. Viðskipti erlent 25.11.2011 20:09
Ítalir greiða himinháa vexti Ítalir voru neyddir til þess að greiða himinháavexti vegna 10 milljarða evra skuldabréfaflokks sem landið þarf að endurfjármagna. Viðskipti erlent 25.11.2011 14:49
Vírus í gjafabréfum frá iTunes Öryggissérfræðingar hjá tölvurisanum Apple segja tölvuglæpamenn hafa komið fyrir vírus í vefverslun fyrirtækisins. Viðskipti erlent 25.11.2011 09:30
Íbúð í Peking fimmfaldast í verði á sex árum Mesta húsnæðisbóla allra tíma er í Kína, segja sumir hagfræðingar. Og hún er þegar farin að sýna merki um að hún sé að springa. Tugþúsundir íbúða standa tómar á stórum svæðum. Uppgangurinn í Peking hefur verið ævintýri líkastur á síðustu árum og drifið áfram eitt mesta húsbyggingaskeið í sögu mannkynsins. Viðskipti erlent 25.11.2011 09:00
Eigandi Portsmouth handtekinn vegna fjársvika og peningaþvættis Breska lögreglan hefur handtekið rússneska kaupsýslumanninn Vladimir Antonov og litháenskan viðskiptafélaga hans. Viðskipti erlent 25.11.2011 07:44
Enn einn rauði dagurinn Það var rauður dagur beggja vegna Atlantsála í dag. Í Kauphöllinni í New York lækkaði Dow Jones um 2,05%, Nasdaq á 2,43% og S&P 500 lækka um 2,21%. Viðskipti erlent 24.11.2011 21:51
Portúgal komið í ruslið Matsfyrirtækið Fitch ákvað í dag að lækka lánshæfi ríkissjóðs Portúgals niður í ruslflokk. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Staða Portúgals er nú talin afar veik efnhagslega og er almennt álitið að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn þurfi að aðstoða landið með frekari fjárframlögum. Viðskipti erlent 24.11.2011 13:56
Arcadia Group lokar 260 verslunum Philip Green, forstjóri og stærsti eigandi Arcadia, tilkynnti um það í morgun að Arcadia hygðist loka 260 verslunum á næstu þremur árum. Ástæðan er minnkandi hagnaður. Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC féll hagnaður Arcadia saman um 38% milli ára, niður í 133 milljónir punda. Viðskipti erlent 24.11.2011 11:08
Síminn og Domino´s endurnýja þjónustusamning Síminn og Domino´s á Íslandi hafa endurnýjað þjónustusamning sinn til næstu þriggja ára en Síminn hefur síðustu ár veitt Domino‘s fjarskiptaþjónustu. Viðskipti erlent 24.11.2011 10:32
Hagnaður Iceland talinn verða 46 milljarðar í ár Talið er að hagnaður Iceland Foods verlsunarkeðjunnar í Bretlandi muni aukast verulega milli ára. Talið er að brúttóhagnaðurinn á yfirstandandi rekstrarári sem lýkur í mars næstkomandi muni nema nær 230 milljón punda eða tæplega 46 milljarða króna. Viðskipti erlent 24.11.2011 09:29
Warren Buffett er ekki "sósíalisti" Þátturinn The Young Turks gerði viðbrögð Fox News við hugmynd Warren Buffett, um hækkun skatta á þá ofurríku, að umtalsefni. "Þeir eru að kalla Warren Buffett sósíalista. Hvað næst?" segir Cenk Uygur, stjórnandi þáttarins. Viðskipti erlent 24.11.2011 08:22
Mikill taugatitringur á fjarmálamörkuðum Mikill taugatitringur er nú á fjármálamörkuðum heimsins eftir misheppnað skuldabréfaútboð þýska ríkisins á skuldabréfum til tíu ára. Viðskipti erlent 24.11.2011 07:25
Kína orðinn stærsti snjallsímamarkaður heims Kína er orðinn stærsti markaður heims fyrir snjallsíma með um 24 milljónir pantana inn á markað á þriðja ársfjóðungi, á meðan Bandaríkin voru á sama tíma með 23 milljónir. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í kvöld. Viðskipti erlent 23.11.2011 23:41
Sautján þúsund missa vinnuna Nokia Simens símafyrirtækið ætlar að fækka starfsmönnum um 17 þúsund. Um er að ræða 23% af vinnuafli hjá fyrirtækinu. Viðskipti erlent 23.11.2011 14:53
Samsung gerir grín að iPhone notendum Ný sjónvarpsauglýsing Samsung gerir stólpagrín að notendum iPhone snjallsímans sem hannaður er af Apple. Tæknifyrirtækin hafa staðið hatrammri baráttu um yfirráð á snjallsímamarkaðnum. Viðskipti erlent 23.11.2011 10:04
Larry Page: Ég er að "springa" úr stolti Larry Page, annar stofnenda Google og einn stærsti eigandi fyrirtækisins, flutti ræðu fyrir útskriftarnema á heimasvæði sínu í Michigan vorið 2009. Hann fer þar yfir sögu sína og hvernig hún tengist University of Michigan, en foreldrar hans kynntust þar. Ræðan þykir sú besta sem hann hefur flutt, en hann gerir það sjaldan. Viðskipti erlent 23.11.2011 09:00
Söngvari Iron Maiden vill endurreisa Astraeus flugfélagið Bruce Dickinson söngvari þungarokkshljómsveitarinnar Iron Maiden ætlar sér að endurreisa Astraeus flugfélagið. Viðskipti erlent 23.11.2011 08:35
Portúgal þarf frekari neyðaraðstoð Portúgal mun sennilega þurfa meiri neyðaraðstoð en þær 78 milljarðar evra sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópusambandið hafa lofað að veita landinu. Viðskipti erlent 23.11.2011 07:38
Fréttaskýring: Allt á suðupunkti í Suður-Evrópu Staða efnahagsmála í nær öllum ríkjum í Suður-Evrópu er fjárfestum mikið áhyggjuefni í augnablikinu, samkvæmt fréttum breska ríkisútvarpsins BBC og Wall Street Journal í dag. Þetta hefur enduspeglast í sífellt hækkandi skuldatryggingaálagi á tíu ára ríkisskuldabréf ríkjanna. Álagið á undanförnum vikum hefur hækkað snarlega og er nú á bilinu 5 til rúmlega 7 prósent. Viðskipti erlent 22.11.2011 23:03
Apple fær einkaleyfi á tækninýjungum Einkaleyfis barátta tölvurisans Apple heldur áfram en í vikunni náði fyrirtækið að tryggja einkarétt á þremur tækninýjungum. Viðskipti erlent 22.11.2011 22:45
Facebook hannar snjallsíma Samskiptasíðan Facebook hefur nú hafið þróun á sérhönnuðum snjallsíma. Talið er að samskiptasíðan sé nú þegar komin í samstarf við farsímaframleiðandann HTC. Viðskipti erlent 22.11.2011 22:30
Rauðar tölur á hlutabréfamörkuðum í Evrópu Hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa lækkað í dag um tæplega 1% að meðaltali. Áhyggjur vegna vaxandi skuldavanda Evrópuríkja eru sagðar ástæður fyrir lækkunum, að því er fram kemur á vefsíðu Wall Street Journal. Viðskipti erlent 22.11.2011 17:05