
Viðskipti erlent

Síðasti eigandi Nyhedsavisen er gjaldþrota
Morten Lund, síðasti eigandi Nyhedsavisen í Danmörku, var lýstur gjaldþrota við Sjó- og kaupréttinn í Kaupmannahöfn í dag.

Findus í þrot í Bretlandi vegna Landsbankans
Enn berast fréttir af vandræðum erlendra fyrirtækja vegna íslenska bankahrunsins í haust. Nú hefur matvælafyrirtækið Findus í Newcastle í Bretlandi óskað eftir greiðslustöðvun og eru 430 störf þar á bæ í hættu. Landsbankinn var helsti lánveitandi fyrirtækisins.

Iceland bætir við sig 2.500 starfsmönnum
Breska matvörukeðjan Iceland hefur keypt 51 verslun, sem áður voru reknar af Woolworths verslanakeðjunni í Bretlandi. Reiknað er með, að við kaupin bæti Iceland við sig 2.500 nýjum starfsmönnum.

Alcoa greinir frá fyrsta tapi sínu í sex ár
Alcoa, stærsti álframleiðandi Bandaríkjanna, hefur greint frá fyrsta tapi sínu í sex ár. Samkvæmt uppgjöri fyrir fjórða ársfjórðung síðasta árs nam tap Alcoa 1,2 milljörðum dollara eða um 130 milljörðum kr.. Til samanburðar nam hagnaður Alcoa fyrir sama tímabil árið áður 632 milljónum dollara eða um 70 milljörðum kr..

Sjóður í eigu Milestone í London á leið í greiðslustöðvun
Fjárfestingarsjóðurinn Kcaj í London, sem er í meirihlutaeigu Milestone, gæti farið í greiðslustöðvun í þessari viku. Þetta kemur fram í Financial Times í dag.

Ekkert lát á lækkun hlutabréfa í Asíu
Hlutabréf á Asíumörkuðum héldu áfram að lækka í verði í morgun og var lækkun sumra hlutabréfavísitalna sú mesta í einn mánuð.

Olíuverð lækkar áfram á heimsmarkaði
Olía heldur áfram að lækka á heimsmarkaði á ný, eftir að hafa verið komin upp undir 40 dollara á tunnuna. Nú er verðið komið niður í rúma 37 dollara vestanhafs.

Hlustuðu ekki á viðvaranir um Icesave
Bæjarstjórnin í Norðaustur Lincolnskíri í Bretlandi sem átti 7 milljónir breskra punda á Icesave reikningum Landsbankans hlustaði ekki á aðvaranir sem komu fram í vikulegum skýrslum sem bæjarstjórninni barst frá fjármálaráðgjöfum sínum. Frá þessu er greint á fréttavef BBC í dag. Peningarnir sem bæjarfélagið tapaði jafngilda 1,3 milljarði króna.

Alcoa féll um 6,6% eftir að Deutche Bank mælti með sölu
Hlutir í álrisanum Alcoa hafa fallið um 6,6% á Wall Street í dag en markaðurinn þar hefur verið í niðursveiflu frá opnuninni. Lækkunin kom í kjölfar þess að greining Deutche Bank mælti með sölu á hlutum Alcoa en félagið á Fjarðarál á Reyðarfirði.

Stofnandi Biva ánægður með kaup Straums
Fjónbúinn Henry Johansen, stofnandi Biva, er ánægður með kaup Straums á húsgagnakeðjunni. "Þetta var verulega góð lausn," segir Johansen. "Áframhaldandi rekstur er tryggður og það er aðalatriði málsins."

Lloyd´s segir að skipa- og viðlagatryggingar muni stórhækka
Einn af helstu eigendum alþjóðlega tryggingarfélagsins Lloyd´s í London segir að framundan séu miklar hækkanir á skipa-. eigna- og viðlagatryggingum í heiminum. Eigandinn, tryggingarfélagið Amlin, telur að þessar tryggingar muni hækka um 20% í ár.

Rússar skrúfa frá gasinu til Evrópu á morgun
Evrópubandalagið og Rússland hafa komist að samkomulagi um gasflutninga til ERvrópu og munu Rússar skrúfa frá gasinu til Evrópu klukkan sjö í fyrramálið. Þetta kemur fram á Reuters fréttaveitunni.

Fjármálakreppan fellir fegurðardrottningu Bretlands
Fjármálakreppan hefur nú leitt til þess að hætta verður við fegurðarkeppina Ungfrú Bretland. Stjórnandi hennar, Robert de Keyser, hefur blásið keppnina af tímabundið þar sem kostunaraðilar fengust ekki.

Mosaic Fashion leitar að langtímafjármögnun
Tískuvörukeðjan Mosaic Fashion leitar nú að langtímafjármögnun en helsti viðskiptabanki keðjunnar var Kaupþing í Bretlandi. Mosaic er að meirihluta í eigu Baugs en keðjan inniheldur m.a. Karen Millen og Principles.

Fyrirtæki á Taiwan tapaði milljörðum á íslensk bönkunum
Mega Financial, þriðja stærsta fjármálafyrirtæki Taiwan tapið rúmlega 47 milljónum dollara, eða yfir 5 milljarða kr. á fjármálagerningum sem fyrirtækið átti í íslensku bönkunum.

Asíubréf lækkuðu í morgun
Hlutabréf á asískum mörkuðum lækkuðu í morgun, einkum bréf iðn- og framleiðslufyrirtækja hvers kyns. Bréf alþjóðlega námufyrirtækisins Rio Tinto Group, móðurfélags Alcan í Straumsvík, lækkuðu til að mynda um 5,3 prósentustig og Keppel-fyrirtækið, sem smíðar olíuborpalla, lækkaði um rúmlega sjö prósentustig eftir að stór pöntun til þess var dregin til baka.

Bagger sagður krónískur lygari
Danska lögreglan trúir ekki framburði fjársvikamannsins Stein Baggers. Hann er sagður krónískur lygari og segir aðstoðarsaksóknari allt eins líklegt að Bagger hafi grafið hluta af þýfinu í eyðimörkinni í Nevada meðan hann var á flótta í Bandaríkjunum.

Uppsagnir vegna Icesave
Hrun Icesave og slæmt ástand á fasteignamarkaði varð til þess að fasteignalánveitandinn Newcastle Building Society þarf að segja upp 150 manns. Félagið rekur sögu sína til 1863 en óx hratt á síðasta ári eftir að Northern Rock féll en þá voru 200 nýir starfsmenn ráðnir. Ákveðinn starfsemi Icesave var á hendi félagsins en eftir bankahrunið er hún það ekki lengur. Við það töpuðust 100 störf hjá Newcastle Building Society.

FIH þarf að segja upp fjórðungi starfsmanna
Danska dótturfyrirtæki gamla Kaupþings, FIH banki í Danmörku, mun þurfa að segja upp fjórðungi af starfsfólki sínu, eða um 100 manns. Útlán bankans eru að mestu til fyrirtækja en FIH gerir ráð fyrir verulegum samdrætti á árinu og eru ráðstafirnar til að bregðast við því. Með uppsögnunum mun bankinn spara um 2 milljarða íslenskra króna á þessu ári. Í frétt Reuters um málið kemur fram að gamli Kaupþing hafi reynt síðan í október að selja bankann en efnahagsástandið hafi ekki gert það mögulegt.

Mótmælt fyrir utan sendiráð Íslands
Um 200 innistæðueigendur Kaupþings mótmæltu fyrir utan íslenska sendiráðið í Brussel í dag. Fólk er óttaslegið um hag sinn og bíður þess að deilan leysist, segir sendiherra Íslands í Brussel. Nú þegar hafa stjórnvöld í Lúxemborg og Belgíu undirritað samkomulag um sölu Kaupþings í Lúxemborg.

Hyggjast niðurgreiða lærlingsstöður
Atvinnulausum nýútskrifuðum námsmönnum í Bretlandi verða boðnar lærlingsstöður þar sem launakostnaður verður niðurgreiddur af ríkinu. Þetta kemur fram í viðtali við John Denham vinnumálaráðherra í Daily Telegraph.

Ætla að skapa 2500 ný störf
Iceland verslanirnar, sem eru að stærstum hluta í eigu Baugs, hafa keypt 51 verslun sem áður var í eigu Woolworths keðjunnar.

Olíuverðið aftur niður fyrir 40 dollara á tunnuna
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði niður fyrir 40 dollara á tunnuna á markaðinum í New York í dag. Kom þetta í kjölfar nýrra talna um atvinnuleysi í Bandaríkjunum.

Snéri aftur úr vopnuðu bankaráni til að borga yfirdrátt sinn
Bankaræningi vopnaður haglabyssu og með lambúshettu til að hylja andlit sitt rændi nær 6 milljónum króna úr banka í Serbíu. Hann kom svo aftur í bankann nokkrum mínútum síðar, án byssunnar og hettunnar, og vildi gera upp yfirdrátt sinn í bankanum.

Þýsk stjórnvöld eignast 25% í Commerzbank
Þýsk stjórnvöld hafa veitt næststærsta banka landsins neyðarlán upp á 10 milljarða evra, eða 1.700 milljarða kr. og hafa í staðinn eignast 25% í bankanum.

Morten Lund viðurkennir svik við stjórnendur Nyhedsavisen
Morten Lund fyrrum eigandi Nyhedsavisen viðurkennir nú að hann hafi svikið stjórnendur Nyhedsavisen um launagreiðslur. Biður hann þá Svenn Dam og Morten Nissen NIelsen afsökunnar á athæfi sínu.

Hlutur Samson í Sjælsö Gruppen er til sölu
Tæplega 8% hlutur í danska fasteignafélaginu Sjælsö Gruppen er nú til sölu en hluturinn er í eigu Samson sem er gjaldþrota og í skiptameðferð.

Hlutabréf japanskrar bruggverksmiðju hækka
Morguninn var mislitur í asískum kauphöllum og var ýmist um lækkun eða hækkun helstu hlutabréfavísitalna að ræða. Þannig lækkaði japanska Nikkei-vísitalan um tæpt hálft prósentustig en Hang Seng-vísitalan í Hong Kong þokaðist upp um rúmt prósentustig.

Ómögulegt að selja FIH bankann við núverandi aðstæður
Stjórn FIH bankans hefur í fyrsta sinn viðurkennt opinberlega að ekki hafi reynst mögulegt að selja bankann. JP Morgan reyndi hvað hann gat til að selja FIH í nóvember s.l. en án árangurs.

Mesta verðfall á olíu í sjö ár
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur fallið um 12% frá því í gærkvöldi og er þetta mesta verðfall á olíu á svo skömmum tíma á síðustu sjö árum. Verðið fór í 50 dollara á tunnuna í gærmorgun en var komið niður fyrir 43 dollara í morgun.