Viðskipti innlent
49 50 51 52 53 54 55 56 57 … 334 ›
Ráðin sviðsstjóri sölusviðs Hreint Sólrún Björk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri sölusviðs hjá ræstingafyrirtækinu Hreint. Hlutverk hennar verður að efla og samræma sölustarf og auka ráðgjöf til viðskiptavina. Viðskipti innlent 27.10.2023 10:24
Norvik gerir yfirtökutilboð í nítján milljarða króna félag Norvik hefur sent tilkynningu til sænsku Kauphallarinnar um að lagt verði fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Bergs Timber AB, sem starfar í alþjóðlegum timburiðnaði. Tilboðið hljóðar upp á gengið 44,50 sænskar krónur fyrir hvern hlut í Bergs í reiðufé. Heildarverðmæti hlutafjár Bergs er því áætlað 1,54 milljarðar sænskra króna, sem samsvarar um 19,3 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti innlent 27.10.2023 10:07
Barbara Inga ráðin regluvörður Íslandsbanka Barbara Inga Albertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Regluvörslu Íslandsbanka. Viðskipti innlent 27.10.2023 09:55
Valdís ráðin mannauðsstjóri Sýnar Valdís Arnórsdóttir hefur verið ráðin mannauðstjóri Sýnar. hún leiða áfram teymi mannauðsmála og eignaumsýslu hjá félaginu. Viðskipti innlent 27.10.2023 09:08
Play skilar hagnaði eftir skatt í fyrsta sinn Flugfélagið Play skilaði hagnaði upp á 5,2 milljónir bandaríkjadala, eða því sem nemur 724 milljónum íslenskra króna á þariðja ársfjórðungi 2023. Í samanburði tapaði félagið 2,9 milljónum bandaríkjadala, 404 milljónum króna á sama tímabili í fyrra. Forstjóri félagsins segist stoltur af árangrinum en um sé að ræða fyrsta skiptið sem félagið skili hagnaði eftir skatt. Viðskipti innlent 26.10.2023 20:51
Arion banki skilaði 6,1 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi Arion banki hagnaðist um 6.131 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi 2023, í samanburði við 5.008 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá bankanum. Viðskipti innlent 26.10.2023 17:36
Bein útsending: Nýsköpunarþing 2023 - Líf í lífvísindum Hugverkastofan, Rannís, Íslandsstofa og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins standa fyrir Nýsköpunarþingi 2023 sem fram fer í Grósku milli klukkan 13:30 og 15:00. Á þinginu verður kastljósinu beint að nýsköpunarfyrirtækjum sem starfa á sviði líf- og heilbrigðisvísinda. Viðskipti innlent 26.10.2023 13:00
Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á þriðja ársfjórðungi Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2023 var 22,4 milljarðar króna, þar af 7,9 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi. Viðskipti innlent 26.10.2023 12:51
Nýtt félag um heilbrigðislausnir Origo stofnað Origo mun um mánaðamót stofna nýtt og sjálfstætt félag í kring um heilbrigðislausnir Origo, sem fær nafnið Helix. Markmið félagsins verður að flétta saman tækni, hugvit og innsæi til að bæta líf þeirra sem þiggja og veita heilbrigðisþjónustu. Viðskipti innlent 26.10.2023 11:58
Marinó tekur við Mílu af Marion Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka, hefur verið kjörinn stjórnarformaður Mílu. Hann tekur við hlutverkinu af Marion Calcine, sem sinnti hlutverkinu tímabundið en situr áfram í stjórn félagsins. Viðskipti innlent 26.10.2023 09:10
70 prósenta samdráttur í nýbyggingum milli ára Verulegur samdráttur hefur orðið í nýbyggingum milli ára og þá hefur einnig dregið verulega úr sölu nýrra íbúða. Kaupsamningum fjölgar hins vegar almennt milli mánaða. Viðskipti innlent 26.10.2023 06:46
Nýjar outlet fataverslanir opna í Holtagörðum Þrjár fataverslanir, NTC, S4S og Föt og skór, opna nýjar verslanir í Holtagörðum á morgun, svokallaðar „outlet“ verslanir. Verslanirnar eru alls um 4.500 fermetrar að stærð. Viðskipti innlent 25.10.2023 20:05
Afkoma Hafnarfjarðarbæjar betri en var vænst Afkoma Hafnarfjarðarbæjar á fyrri helmingi þessa árs var 208 milljónum króna betri en áætlanir geðru ráð fyrir. Eiginfjárhlutfall bæjarins og fyrirtækja í eigu hans nam 32,2 prósentum í lok júnímánaðar. Viðskipti innlent 25.10.2023 14:53
Bergný og Elín ráðnar til Kadeco Kadeco hefur ráðið til starfa þær Bergnýju Jónu Sævarsdóttur og Elínu R. Guðnadóttur. Bergný er nýr sjálfbærnistjóri Kadeco og Elín nýr yfirverkefnastjóri. Viðskipti innlent 25.10.2023 09:57
Telma til Héðins Telma Sveinsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri véltæknifyrirtækisins Héðins. Viðskipti innlent 25.10.2023 09:56
Stóru viðskiptabankarnir þrír lokaðir á morgun Landsbankinn og Íslandsbanki munu loka útibúum sínum um allt land vegna kvennaverkfallsins á morgun. Fyrr í dag var greint frá því að Arion banki myndi loka af sömu ástæðu. Þar af leiðandi verða útibú stóru viðskiptabankanna þriggja lokuð. Viðskipti innlent 23.10.2023 16:35
Arion banki lokar útibúum á morgun Útibú Arion banka verða lokuð á morgun, þriðjudag, vegna kvennaverkfalls. Viðskipti innlent 23.10.2023 11:07
Páll í Toyota er látinn Páll Breiðdal Samúelsson, fyrrverandi forstjóri Toyota, er látinn. Páll, sem ávallt var kenndur við Toyota var 94 ára að aldri þegar hann skildi við en síðustu árin dvaldi hann að hjúkrunarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka þar sem hann andaðist. Viðskipti innlent 23.10.2023 10:25
Ráðin framkvæmdastjóri Two Birds og Aurbjargar Ásdís Arna Gottskálksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjártæknifyrirtækisins Two Birds ehf. sem er rekstraraðili Aurbjorg.is. Hún kemur til Two Birds frá Abler þar sem hún starfaði sem fjármála - og rekstrarstjóri og bar meðal annars ábyrgð á fjármálum, áætlunum og daglegum rekstri félagsins. Viðskipti innlent 23.10.2023 09:57
Halldóra Anna stýrir markaðsmálum Vinnupalla Halldóra Anna Hagalín hefur verið ráðin til að sjá um markaðsmál Vinnupalla. Viðskipti innlent 23.10.2023 08:30
Skýr merki um að erfiðara gangi að selja nýbyggingar Nýjar tölur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sýna að framkvæmdir eru hafnar við byggingu á 8.683 íbúðum. Mikill samdráttur er þó í fjölda nýrra framkvæmda og nemur hann um 68 prósent á milli ára. Skýr merki eru um að erfiðara gangi að selja nýbyggingar. Viðskipti innlent 23.10.2023 06:25
Ákváðu að kaupa Kerið í hálfgerðu bríaríi „Við höfðum bara náttúruvernd í huga og engum hugkvæmdist gjaldtaka. Þetta var skyndiákvörðun, tekin í hálfgerðu bríaríi. Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að eignast eldgíg,“ segir Óskar Magnússon um kaup á Kerinu fyrir 23 árum. Viðskipti innlent 22.10.2023 08:40
Aðstoða fyrirtæki að vernda uppljóstrara Ný lausn frá fyrirtækinu Origo, sem hjálpar fyrirtækjum að uppfylla lög um vernd uppljóstrara, var kynnt í vikunni. Lögin tóku gildi 1. janúar 2020 en sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum hefur reynst þrautinni þyngri að uppfylla lagakröfurnar. Viðskipti innlent 21.10.2023 10:18
Sahara tók gull og silfur Markaðs- og auglýsingastofan Sahara hlaut verðlaunin Global Digital Excellence Awards 2023 í tveimur flokkum á dögunum. Gull fyrir herferðina „Keeping London Warm Since 2022“ sem stofan gerði fyrir 66°Norður og silfur fyrir herferðina „Life's Too Short“ sem gerð var fyrir Blue Car Rental. Viðskipti innlent 20.10.2023 23:23
Íslandsbanki hækkar vexti um allt að 0,8 prósentustig Íslandsbanki mun hækka vexti á inn- og útlánum frá og með mánudegi. Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka mest, eða um 0,8 prósentustig. Viðskipti innlent 20.10.2023 15:36
Skrúfa niður í djamminu á Prikinu Mikið stendur til á veitingahúsinu Prikinu í hjarta miðbæjar Reykjavíkur þessa dagana. Staðurinn gengur í gengum endurnýjun lífdaga og verður hér eftir aðeins á einni hæð. Skrúfað verður niður í djamminu sem hefur einkennt starfsemina síðusta áratug. Viðskipti innlent 20.10.2023 14:21
Auglýsa eftir nýjum rekstraraðilum í Mjódd Um þrjú þúsund manns fara á hverjum degi um biðstöðina í Mjódd. Reykjavíkurborg auglýsir nú eftir nýjum rekstraraðila sem eigi að móta hann upp á nýtt. Gerð er krafa um opnun frá 8 til 22 og aðgengi gesta að salerni. Viðskipti innlent 20.10.2023 12:31
Kaup Sýnar á Já frágengin Sýn hefur gengið frá kaupum á Eignarhaldsfélaginu Njálu, sem er móðurfélag Já hf. Áður hafði Samkeppniseftirlitið heimilað kaup Sýnar á Eignarhaldsfélaginu Njálu ehf. og Já hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn. Viðskipti innlent 20.10.2023 09:08
Heildartekjur Icelandair aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi Heildartekjur Icelandair voru 74,7 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi. Í tilkynningu frá félaginu segir að það sé það séu mestu heildartekjur félagsins frá upphafi, en þær jukust um sautján prósent frá því í fyrra. Viðskipti innlent 19.10.2023 17:39
Samherji borgar ekki laun starfsfólks í kvennaverkfalli Norðlenska fiskvinnslufyrirtækið Samherji hyggst ekki greiða konum og kvárum sem vinna hjá fyrirtækinu laun mæti þau ekki til vinnu næsta þriðjudag, þegar boðað hefur verið til kvennaverkfalls. Starfsfólki er þó frjálst að skreppa á 45 mínútna mótmælafund á Akureyri. Viðskipti innlent 19.10.2023 16:29