Viðskipti innlent

Út­boðið á ríkis­hlutum í Ís­lands­banka hafið

Kjartan Kjartansson skrifar
Ríkið á 45,2 prósent í Íslandsbanki. Grunnmagn útboðsins nú er tuttugu prósent hlutabréfa í bankanum en það gæti verið hækkað ef vel gengur.
Ríkið á 45,2 prósent í Íslandsbanki. Grunnmagn útboðsins nú er tuttugu prósent hlutabréfa í bankanum en það gæti verið hækkað ef vel gengur. Vísir/Vilhelm

Sala á almennum hlutum ríkisins í Íslandsbanka er hafið og stendur fram á fimmtudag. Einstaklingar með íslenska kennitölu hafa forgang umfram aðra í útboðinu og njóta lægsta verðsins.

Útboðið á hlutum ríkisins í Íslandsbanka hófst klukkan 8:30 í morgun Gert er ráð fyrir að því ljúki klukkan 17:00 fimmtudaginn 15. maí. Almenningur getur tekið þátt í útboðinu á vef Kviku.

Grunnmagn útboðsins nær til fimmtungs af heildarhlutafél bankans. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur heimild til þess að auka ótboðsmagnið ef umframeftirspurn reynist til staðar. Alls á ríkið 45,2 prósent í bankanum.

Þrjár leiðir eru í boði fyrir kaupendur í útboðinu: tilboðsbók A, B og C. Þær eru ólíkar hvað varðar forgang stærð tilboða og úthlutun. Einstaklingar geta tekið þátt í gegnum tilboðsbók A og B, lögaðilar í gegnum tilboðsbók B og eftirlitsskyldir fagfjárfestar í gegnum tilboðsbók C sem var bætt við á dögunum.

Þeir sem kaupa í gegnum tilboðsbók A njóta forgangs við úthlutun hluta gagnvart tilboðsbók B en hún nýtur aftur forgangs gagnvart tilboðsbók C.

Útboðsgengi fyrir tilboðsbók A 106,56 krónur á hvern útboðshlut og lágmarkstilboð er bundið við útboðshluti af verðmæti 100.000 króna. Mest er hægt að kaupa fyrir tuttugu milljónir króna.

Útboðsgengi fyrir tilboðsbók B verður ákvarðað með tilboðsfyrirkomulagi en það getur aldrei verið lægra en fast verð á hlutum í tilboðsbók A. Lágmarkstilboð er tvær milljónir króna.

Í tilboðsbók C verður verðið ákvarðað með hliðsjón af útboðsgengi í tilboðsbók B. Lágmarkstilboð eru 300 milljónir króna. Engin hámarksupphæð verður á tilboð í tilboðsbók B og C að öðru leyti en því sem takmarkast við heildarstærð útboðsins.

 Að útboðinu lokna ætlar fjármála- og efnahagsráðuneytið að birta lista yfir kaupendur, bæði einstaklinga og lögaðila.

Uppfært 9:45 Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar sagði að hámarkstilboð í tilboðsbók A væri tvær milljónir. Mest er hægt að kaupa fyrir tuttugu milljónir í tilboðsbók A.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×