Hagnaður Landsbanka 6 milljarðar 29. júlí 2004 00:01
Hagnaður Landsbankans á fyrstu sex mánuðum ársins eru sex milljarðar króna en heildareignir bankans eru 558 milljarðar króna. Mikill innri vöxtur hefur einkennt þróun bankans síðustu mánuðina og hafa heildareignir hans tvöfaldast frá lokum fyrsta ársfjórðungs 2003. Hagnaður bankans fyrir tímabilið janúar - júní 2004 nam 7.426 milljónum króna fyrir skatta, en að teknu tilliti til skatta og hlutdeildar minnihluta nam hagnaðurinn 6.035 milljónum króna. Hagnaður bankans fyrir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins 2003 nam 1.439 milljónum króna og 1.221 milljón króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár eftir skatta á fyrri helming ársins 2004 var óvenju góð eða 54% samanborið við 16% fyrir sama tímabil á fyrra ári. Heildareignir Landsbankans námu 558 milljörðum króna í lok júní 2004 og hafa þær aukist um 25% eða 110 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2004. Útlán bankans voru 432 milljarðar króna í lok júní 2004 samanborið við 326 milljarða króna í upphafi ársins og hafa þau aukist um 106 milljarða króna eða 32% það sem af er ári. Þar af nemur aukning vegna erlendrar starfsemi bankans og lána móðurfélagsins til erlendra aðila 40 milljörðum króna og námu lánin 24% af heildarútlánum samstæðunnar í lok júní 2004 samanborið við 20% í ársbyrjun og hafa þau aukist um 63% á tímabilinu.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Áhrif kosninga á starfsfólk og vinnustaði í næstu viku Atvinnulíf „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Atvinnulíf Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Viðskipti erlent Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Viðskipti innlent Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu Viðskipti innlent Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Viðskipti innlent „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Tryggja tólf milljarða króna fjármögnun Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Steyptu fyrsta gullmolann Verðbólgan komin undir fimm prósent Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Helena til Íslandssjóða Two Birds verður Aurbjörg Hafa sótt milljarð í nýtt hlutafé Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Fyrrverandi ferðamálastjóri opnar ráðgjafarstofu með syninum Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Birta Ósk og Jenna Kristín til Akademias Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra Kosningapróf Viðskiptaráðs: Mikil andstaða við sölu á Landsvirkjun Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Sjá meira