
Það þarf að breyta skipulaginu
Eftir misheppnaðan sáttafund í gær er ljóst að kennaradeilan verður í hnút næstu daga og jafnvel vikur. Það eru dapurlegar fréttir fyrir þjóðfélagið allt. Og í rauninni óviðunandi að við bjóðum börnum okkar upp á þetta. Vandinn er bara sá að svo breitt bil er á milli deilenda að erfitt er að sjá þeir hvernig þeir eiga að ná samkomulagi. Kennarar hafa komið sér í þá stöðu að þeir eiga erfitt með að samþykkja tilboð sem miðast við svipaðar kjarabætur og aðrir launþegar hafa verið að fá. Og gangi sveitarfélögin of langt til móts við kröfur kennara leiðir það af sér uppnám á almennum vinnumarkaði. Lausnin mun að líkindum liggja í breytingum á vinnufyrirkomulagi en hætt er við að það taki nokkurn tíma að útfæra viðunandi lausnir á því sviði.
Ekki er við því að búast að viðsemjendur í kennaradeilunni komi fram með eitthvert nýstárlegt útspil. Það kæmi að minnsta kosti mjög á óvart. Launanefnd sveitarfélaga er málsvari ólíkra aðila og hefur hvorki skipulagslegan styrk né pólitískt umboð til að láta sér detta í hug óvenjulegar eða róttækar lausnir. Kennarasamtökin hafa um árabil verið meðal íhaldssömustu stéttarsamtaka landsins og með fullri virðingu fyrir þeim mun óhætt að segja ekki sé von á nýmælum úr þeirri átt.
Aftur á móti hafa kennaradeilur stundum leyst úr læðingi hugmyndir og framkvæmdir sem til framfara hafa orðið. Kennaraverkfallið haustið 1984 varð þannig hvati að stofnun nýs einkaskóla, Tjarnarskóla, og deilan sem stendur yfir hefur kveikt áhugaverðar umræður í blöðum um nauðsyn skipulagsbreytinga í skólamálum. Hefur ungt fólk í Frjálshyggjufélaginu til dæmis viðrað að nýju hugmyndina um ávísanakerfi, frelsi til handa foreldrum skólabarna til að kaupa menntun þar sem hún býðst best.
Þorvaldur Gylfason hagfræðingur, fastur pistlahöfundur Fréttablaðsins, benti á það hér í blaðinu í gær að til þess að bæta kjör kennara verulega þyrfti að breyta skipulaginu sem skólakerfið byggir á. Í stað miðstýrðra samninga vekur hann athygli á kostum beinna samninga í hverjum skóla. Hann telur nauðsynlegt að fjölga einkaskólum og gefa þeim og ríkisskólunum frjálsari hendur en þeir hafa nú til að fara eigin leiðir til að koma til móts við óskir og þarfir barna og foreldra.
Þorvaldur Gylfason segir að skipulagsbreytingu skólamálanna þurfi að fylgja aukið fjárstreymi til menntamála. Annað hvort frá almannavaldinu eða að skólunum yrði leyft að afla fjár á eigin spýtur, til dæmis með því að leggja hófleg gjöld á nemendur eða stofna til samstarfs við einkafyrirtæki eins og hann segir að mjög hafi færst í vöxt í framhaldsskólum og háskólum í nálægum löndum. Bendir Þorvaldur í þessu sambandi á að nú þegar kaupi foreldrar margs konar viðbótarmenntun börnum sínum til handa.
Engum dettur í hug að leggja til að skólakerfi okkar verði umturnað í einu vetfangi. Allar breytingar þurfa að gerast í áföngum með eðlilegum hætti og finna sér farveg samráðs og skoðanaskipta. En kennaradeilan beinir sjónum að því að raunveruleg umskipti verða ekki á kjörum kennara nema menn þori að velta fyrir sér og rökræða róttækar hugmyndir um skólakerfið og skipulag þess.
Skoðun

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar