Danir eru þekktir fyrir góða hönnun. Zone-vörurnar eru engin undantekning á þeirri reglu, einföld og formfögur hönnun á nytsamlegum hlutum. Í Húsgagnahöllinni var opnuð sérstök Zone-deild í gjafavöruversluninni í síðustu viku. Susanne Kristensen, einn hönnuða fyrirtækisins, var stödd á landinu af því tilefni en hún hafði umsjón með uppsetningu á vörunum í versluninni. "Það er til eitthvað fyrir alla í Zone-línunni," segir hún. "Og verðið er mjög sanngjarnt." Jórunn Skúladóttir verslunarstjóri tekur undir þetta. Hún segir Zone-vörurnar örugglega eftir að vekja lukku og vera góða viðbót við gjafavöruverslunina. Vörurnar eru að mestu leyti bað-, eldhús- eða gjafavörur. Hvíti liturinn er langmest áberandi, en rauður, grænn og brúnn eru meðal lita sem skjóta upp kollinum núna. Fréttablaðið fékk Susanne í lið með sér að velja fallegar vörur sem endurspegla fjölbreytnina.Stór diskur 1.190 kr.
Millistærð 240 kr.
Minnsti diskurinn 140 kr.
glasamottur 290 kr.Melanínskálar
390-1790 kr.Ávaxtaskál 4.980 kr.Bolli sem heldur heitu 2.180 kr.
mynsturskífa, seld í setti með 6 skífum 2.980 kr.Brúsi undir sápu 1.980 kr.
Tannkrem 1.490 kr.
Diskur undir sápu 1.490 kr.Klukka 4.980 kr.Flugnaspaði 2.490 kr.
Tímamælir 2.490 kr.Glerskál 6.980 kr.