Marokkóskur lambaréttur 27. janúar 2005 00:01
Hnífur og skeið Guðrún Jóhannsdóttir eldar hægt. Þótt frjósi í æðum blóð hér á Fróni getum við alltaf horfið á vit þúsundar og einnar nætur. Angan og bragð þessa marokkóska lambaréttar seiða fram hita í beinin og sólskin í sinnið. Saffron, kanill, hunang og pistasíuhnetur, keimur af roðagullinni sól sem sest í túrkisblátt haf. Lengi.1,5 kg beinlaust lambakjöt (skorið í frekar litla bita)Ólífuolía1 laukur (smátt saxaður)2 hvítlauksgeirar (marðir með hnífsblaði og saxaðir smátt)25 g engiferrót (rifinn)Klípa af saffrani (eða turmerik)1 tsk kanill2 msk tómatkraftur650 ml lamba- eða grænmetissoð (af teningi)350 gr þurrkaðar apríkósur (skornar í tvennt)1 msk hunang (seigfljótandi)50 g pistasíuhnetur Setjið lambakjötið í pott eða pönnu með þykkum botni. Blandið saman við olíu, lauk, hvítlauk, engifer, saffroni, kanil, tómatkrafti og kryddið svo með salti og pipar. Steikið örlitla stund en hellið svo soðinu yfir. Látið suðuna koma upp og látið síðan kássuna malla á vægum hita í lokuðum potti í 1 og 1/2 tíma. Bætið þá apríkósunum út í ásamt hunanginu og látið malla áfram, nú loklaust, í 45 mínútur til viðbótar eða þar til sósan hefur þykknað hæfilega. Takið hneturnar úr skelinni og stráið þeim yfir réttinn og berið fram með kúskús og soðnum gulrótum. Gulræturnar eru steiktar örlitla stund ásamt cumin fræjum upp úr ólífuolíu og sítrónusafi kreistur yfir .
Lambakjöt Uppskriftir Mest lesið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið