Matur

Matartónn Ingvars á Argentínu

Ingvar Sigurðsson matreiðslumeistari og annar eiganda Argentínu segir margt spennandi að gerast í matargerð á Íslandi. Veitingahúsið Argentína tekur þátt í matarævintýrinu Food&Fun. Kokkurinn Ramon Beuk ætlar að elda fyrir gesti en hann er frægasti sjónvarpskokkur Hollands. Hér eru fjögur sniðug ráð fyrir gesti veitingahúsa að hætti Ingvars:

"Hjá okkur fókusum við mikið á samsetta seðla. Þá er búið að leggja upp 3, 4 eða 5 rétta seðil fyrir gestinn á góðu verði. Þessir seðlar eru vel saman settir og árstíðabundnir. Punkturinn yfir i-ið er svo vínseðillinn. Þá er búið að taka ómakið af gestinum því það er alltaf spurningin um val á víni en þarna er vínþjóninn búinn að velja vínglas með hverjum rétti. Þetta er mjög vinsælt."

Lestu meira í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.