Gerrard skoraði fimm á 113 mínútum 20. júlí 2005 00:01
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, skoraði fimm mörk á aðeins 113 mínútum í leikjunum tveimur gegn velska liðinu TNS í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liverpool vann leikina samanlagt 6-0 og mætir FBK Kaunas frá Litháen í næstu umferð. Steven Gerrard skoraði þrennu í fyrri leiknum þar af var hann kominn með tvö mörk eftir aðeins 21 mínútna leik. Í seinni leiknum byrjaði Gerrard á bekknum en kom inn á þegar 23 mínútur voru eftir. Á þeim tíma tókst fyrirliðanum að skora tvívegis og hefur því heldur betur stimplað sig aftur inn í Liverpool-liðið eftir það rót sem var á hans málum í sumar. Gerrard spilaði samtals í 113 mínútur í leikjunum tveimur og skoraði því mark á 22,6 mínútna fresti sem er frábær árangur hjá miðjumanni. Eina mark Liverpool sem var ekki skorað af fyrirliðanum var fyrsta markið í seinni leiknum en það skoraði Frakkinn Djibril Cisse. "Við vorum að hugsa um að hvíla Steven í leiknum en hann vildi endilega koma inná og nú er hann búinn að skora fimm mörk í tveimur leikjum," sagði Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool eftir annan 3-0 sigurinn í röð á TNS. "Þetta er gott fyrir hann sjálfan og einnig mjög gott fyrir okkur. Þetta er góð uppskera fyrir miðjumann og ég tel að hann eigi eftir að skora miklu fleiri mörk í vetur en á síðasta tímabili. Hann getur núna tekið meiri áhættu með að stinga sér fram á völlinn því hann hefur betri leikmenn í kingum sig í ár. Ég vissi alltaf að Steven væri okkur mikilvægur en ég hef þó engar áhyggjur af því að við þurfum að treysta á að hann skori fimm mörk í tveimur leikjum," bætti Benitez við á blaðamannafundi eftir leikinn.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Íslenski boltinn Rannsaka hatursorðræðu í garð Banda Fótbolti Alfreð Gísla: „Skemmdarverk á handboltanum“ Handbolti Stórskotaliðið gerði sitt þegar Norðmenn lögðu Ísrael Fótbolti Portúgölsku Íslendingaliðin með mikilvæga sigra Handbolti Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Íslenski boltinn Elliði Snær átti sinn þátt í óvæntum sigri Handbolti Martin dældi út stoðsendingum í enn einu Evróputapinu Körfubolti Paul vill nú berjast við fyrrum heimsmeistara í pílu Sport Dagskráin í dag: Bónus deild kvenna frá A til Ö Sport Fleiri fréttir Paul vill nú berjast við fyrrum heimsmeistara í pílu Dagskráin í dag: Bónus deild kvenna frá A til Ö Rannsaka hatursorðræðu í garð Banda Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Portúgölsku Íslendingaliðin með mikilvæga sigra Martin dældi út stoðsendingum í enn einu Evróputapinu Stórskotaliðið gerði sitt þegar Norðmenn lögðu Ísrael Bjarki Már öflugur Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Elliði Snær átti sinn þátt í óvæntum sigri Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Barton dæmdur fyrir að ráðast á eiginkonu sína Enda án stiga á botni riðilsins Alfreð Gísla: „Skemmdarverk á handboltanum“ Sex marka sýning Íslands gegn Skotum Undraskot Curry fór ekki ofan í eftir allt saman Fimm ára fangelsi fyrir að reyna að myrða meintan barnaníðing Eygló í þyngri flokki en samt best allra Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Ekki pæla í því sem aðeins of feitur fyrrverandi leikmaður segir“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ „Aron í svona stóru hlutverki, það er búið“ Besta-spáin 2025: Í túninu heima Lífið í Brúnei einmanalegt Fjölskyldu Arnórs hótað „Eru sex mörk ekki nóg til að þú haldir kjafti?“ Myndi kannski hlusta ef þeir gætu bent á Gasa á korti Sagður hafa samið við Real og fá 2,2 milljarða á ári Ingebrigtsen fer fyrir dóm: Faðirinn neitar en börnin munu bera vitni Dagskráin í dag: Landsleikjahlénu lýkur Sjá meira