Olíuútgjöld mun meiri en ætlað var 12. ágúst 2005 00:01
Olíureikningur Icelandair, eða Flugleiða, er orðinn einum milljarði hærri en gert var ráð fyrir um áramót. Sérstakt olíugjald, sem lagt hefur verið á hvern farmiða, hrekkur hvergi nærri upp í mismuninn. Að sögn Jóns Karls Ólafssonar forstjóra samsvarar hækkun á olíu frá áramótum um það bil 20 prósentum og nýverið var gripið til þess ráðs að hækka svonefnt olíugjald á hvern farseðil upp í 17 evrur eða rúmar 1300 krónur á hvern legg. Olíugjaldið í ár mun þó ekki skila nema broti upp í þær þúsund milljónir sem olíureikningurinn hefur hækkað um. Jón Karl rifjar upp að flugvélaeldsneyti sé allt að þrefalt dýrarara nú en það var fyrir þremur árum að olíutunnan var á 25 dollara. Verð á olíufatinu á heimsmarkaði nú er hins vegar komið yfir 66 dollara sem er nýtt met. Auk almenns óöryggis vegna hryðjuverka og takmarkaðs framboðs voru það fregnir af efnahagsvexti í Bandaríkjunum með tilheyrandi eldsneytisþörf sem juku á verðþrýstinginn, en olíuhreinsunarstöðvar hafa ekki undan. Þessu til viðbótar valda deilur Írans og alþjóðasamfélagsins vegna kjarnorkuáætlunar Írans nokkurri spennu sem hefur áhrif á verðið.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Neytendur Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Viðskipti innlent Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Viðskipti innlent „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Viðskipti innlent Verðbólga 4,2 prósent og ekki minni í fjögur ár Viðskipti innlent Norskir komast í Víking gylltan Neytendur Misstu þrjá dróna í gosið við tökur á sýningunni Viðskipti innlent Nýjar verðbólgutölur gefa von um hraðari lækkun vaxta Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Íslandsbanki afþakkar boð Arion um samrunaviðræður Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Misstu þrjá dróna í gosið við tökur á sýningunni Nýjar verðbólgutölur gefa von um hraðari lækkun vaxta Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Verðbólga 4,2 prósent og ekki minni í fjögur ár Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Sjá meira