Matur

Grænmetislasagna

Bakki af sveppum

Gulrætur (ég sleppi þeim reyndar)

Laukur

Hvítlaukur

Zucchini/kúrbítur/dvergbítur

Kotasæla (stór dós)

1 dós maukaðir tómatar

Lasagna-plötur (spínat – grænar)

Rifinn ostur

Chilipipar

Paprikukrydd

Pipar



Skerið lauk, sveppi og zucchini í teninga – um það bil í munnbitastærð. Snöggsteikið sveppi og lauk á pönnu, kryddið og setjið örlítinn hvítlauk (ef vill). Bætið kúrbítnum í og snöggsteikið létt svo hann taki bragðið í sig. Tómatadósin er þá látin út í og látið mallast saman án þess að allt fari í graut.

Smyrjið ofnfast lasagna-fat, byrjið á gumsi í botninn, svo plötur, og þá þykkt lag af kotasælu á plöturnar, aftur gums yfir, plötur, kotasæla og svo koll af kolli, byrja og enda á gumsi og dreifa svo rifnum osti yfir.

Bakað á 180 gráðum um 25 mínútur – fylgist með ostinum!








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.