Hafna vopnahléi 9. júlí 2006 12:08
Allt virðist á leiðinni í sama farið á Gaza, eftir að Ísraelsmenn höfnuðu í gær tilboði um vopnahlé frá forsætisráðherra Palestínu. Framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna krefst þess að Ísraelsmenn leyfi hjálparstarfsmönnum að vinna óhindrað á svæðinu. Það virtist glytta í langþrátt hlé á árásum við Gaza í gær, eftir að Ísraelsher dró liðsafla sinn burt frá norðurhluta Gaza og forsætisráðherra Palestínu bað um vopnahlé. En Adam var ekki lengi í paradís. Olmert forsætisráðherra Ísraels hafnaði vopnahléinu, nema ísraelskum hermanni sem herskáir Palestínumenn rændu í lok júní yrði sleppt. Í gærkvöldi hélt Ísraelsher áfram árásum úr lofti og í gærkvöldi féllu sjö, meðal annars sex ára gömul stúlka. Í morgun árásir svo áfram á báða bóga. Herskáir Palestínumenn gerðu árás á borgina Sderot í Suður Ísrael og í gasaborg mátti heyra sprenginingar í morgun og mikilvæg brú fór í sundur, þrátt fyrir að Sameinuðu Þjóðirnar hafi ítrekað lagt áherslu á að herjir beggja aðila á svæðinu geri ekki árásir á samgöngumannvirki, eða annað sem getur gert erfitt líf þegnanna enn erfiðara. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna sendi í gær frá sér yfirlýsingu, þar sem Ísraelsmenn eru hvattir til að leyfa hjálparstarfsmönnum að flytja mat og eldsneyti á svæðið, enda sé algjört ófremdarástand að skapast. Nokkrar undirstofnanir Sameinuðu Þjóðanna hafa líka sent frá sér yfirlýsingu, þar sem segir að heilbrigðisslys sé yfirvofandi á Gasa ef ekkert verði að gert.
Erlent Fréttir Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Fleiri fréttir Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Sjá meira